Hrottaleg líkamsárás

Ég vona að það verði tekið harkalega á þessum óþverrum og þeir ekki  bara yfirheyrðir og sleppt. Menn sem veitast að lögreglunni og slasa eins og í þessu tilfelli ættu að eiga yfir höfði mun þyngri dóm en ef um væri að ræða almennan borgara þó það sé nógu slæmt. Það er ekki hægt að líða það að ráðist sé að lögreglunni, lögreglan verður að geta unnið sitt verk. Það má líta á þetta sem tilræði til manndráps. Mjög alvarlegt mál. Ég öfunda ekki laganna verði í dag.
mbl.is Lögreglumaður kinnbeinsbrotinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg Óskar Giannakoudakis

Grjótið er ekki mikið verra en gasið, ég hreinlega skil ekki, laganaverði, eru þeir eitthvað menntaðir englar, sem ekkert má koma fyrir? geta verið bölvaðir skítbuxnar, jafn og þeir sem hentu grjótinu.

Georg Óskar Giannakoudakis, 31.12.2008 kl. 20:00

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er algerlega ósammála því að refsingar eigi að vera mismunandi eftir því hverjir eiga í hlut.

Sigurður Þór Guðjónsson, 31.12.2008 kl. 20:11

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég er algerlega á því að þú lesir bloggið birgitta.blog.is áður en þú lætur glepjast af fréttaflutningi og setur svona vitleysu frá þér.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 1.1.2009 kl. 01:51

4 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Óhlýðni við lögreglu verður ekkert réttlætt með einhverri frásögn birgittu - lögreglan var að reyna að koma í veg fyrir árás á formenn allra stjórnmálaflokkanna og starfsmenn Stöðvar 2.

Mín vegna geta þeir notað hver þau tól og tæki sem þeim sýnist. Óþarfa harka ?? Hættið þá að brjóta lögin með því að hlýða þeim ekki. Hóf lögreglan átökin??? Hvað með það ??? Áttu þeir að bíða eftir því að þeir  eða forsvarsmenn

þjóðarinnar yður fyrir frekari árásum??

Áfram löggur

Ólafur I Hrólfsson

Ólafur Ingi Hrólfsson, 1.1.2009 kl. 06:04

5 Smámynd: corvus corax

Ólafur Hrólfsson veit allt enda fasisti og rassasleikja Davíðs drullusokks og Björns Bjarnasonar sem er með skítlegasta eðlið í ríkisstjórninni eins og hann á ætt til. Lögreglan hóf átökin í anda skítlegs eðlis og fasistainnrætis dómsmálaráðherrans. Það er ekki nema eðlilegt að löggufíflin verði fyrir hnjaski þegar þeir ráðast á almenning. Og það má búast við meiru en kinnbeinsbroti ef þeir ætla að halda til streitu fasískum tilburðum við borgara þessa lands. Og svo voru það starsmenn Stöðvar 2 sem voru í lögguleik og réðust að mótmælendum eins og best sést á myndbandi sem birt er á visir.is.

corvus corax, 1.1.2009 kl. 12:36

6 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þakka þér fyrir Ólafur. Ef við ætlum að búa við lýðræðislegt fyrirkomulag þá verður að halda uppi lögum og reglum. Það gengur ekki vera með skrílslæti og vinna spjöll á eigum annarra. Mótmælið á siðsamlegan hátt. Þessi læti gera bara illt verra. Lögreglan virðist ekki mega blaka við fólki og þá er strax komið með skítkast á hana. Það var búin að vara fólkið við sem hafði ruðst inn og biðja það að fara út. Corvus, þú ert gott dæmi um hvað lögreglan á við að glíma ef þú ert að spá fleirum líkamsmeiðingum.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 1.1.2009 kl. 13:03

7 Smámynd: corvus corax

Það er sorglegt hvað þeir sem ekki voru á vettvangi virðast vita mikið um atburði. Ef Erna mundi leggja það á sig að skoða myndbandið á visir.is mundi hún sjá að mótmælendur voru að fara að fyrirmælum löggunnar, búnir að snúa baki í lögguna og á leið í burtu þegar löggan ræðst skyndilega aftan að mótmælendum að fara og byrjar að dæla piparúða yfir þá. Ég var þarna í hópi mótmælenda og veit hvernig piparúðaárásin hófst en ég sá það ekki frekar en aðrir mótmælendur af því að ég sneri baki í lögguna á leið minni í burtu og fékk gusuna Í HNAKKANN! Erna og aðrir besservisserar, endilega gerið ykkur að meiri fíflum með blaðri um hluti sem þið vitið ekkert um!

corvus corax, 1.1.2009 kl. 23:26

8 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Það er auðséð á myndböndum eins og td sem er inn á Vísi að fólkið ruddist inn í anddyri Hótel Borgar og starfsfólkið þurfti að hafa sig við að reyna að koma lýðnum út, starf sem hefði betur hentað lögreglunni. Það hefst ekkert með óspektum og skemmdarstarfsemi. Þjóðin er öll í sárum og reiði er skiljanleg en það má ekki verða til þess að fólk mæti með múrsteina eða önnur vopn eða skemmi eigur annarra.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 2.1.2009 kl. 00:56

9 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Ég er á sama máli það þarf að stoppa þetta,handtökur og fjársektir og líka fangelsi ef til þess þarf þetta er ekkert annað en óðjóðalýður og mótmæli á að leifa á Sandskeiðinu ekki nær Höfuðborginni.

Guðjón H Finnbogason, 2.1.2009 kl. 16:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband