Sástu góða mynd um Jólin?

Það eru margar góðar bíómyndir í kvikmyndahúsunum þessa dagana, allavegana hérna úti. The Curious Case of Benjamin Button (Brad Pitt og Cate Blancett í aðalhlutverkum) er sennilega besta verk sem Brad Pitt hefur skila. Myndin er um dreng sem fæðist með hrörnunarsjúkdóm og lýtur út eins og gamalmenni en yngist upp með árunum. Mér var sagt að myndin hafi verið mjög góð, en því miður var ég hrikalega þreytt þegar ég sá myndina og átti erfitt með að halda mér vakandi og naut því myndarinnar ekki sem skyldi.  Held ég hafi meir að segja dottað á kafla. Svolítð neiðarlegt að það sé ekki hægt að fara með frúna í bíó eftir kl. 9

Slumdog Millionaire er einnig mjög góð mynd og er um útigangs börn í Mombei, á Indlandi og illa meðferð á þeim. Þegar aðalpersónan í myndinni vex upp tekur hann þátt í spurningar þættinum "Who Wants To Be A Millionaire?" í von um að æskuást hans sjái sig á skjánum og þau nái sambandi.  Myndin er mjög áhrifamikil og þó svo að endirinn sé góður leið mér illa eftir að hafa  horft á hana.

Mér fanst ég verða að sjá einhverja létta mynd eftir þetta, helst kómedíu svo ég  sá Marley and Me (Jennifer Aniston og Owen Wilson í aðalhlutverkum). Myndin er um ungt par sem fær sér Labrador hvolp (Marley) sem er algerlega óviðráðanlegur. Fljótlega bætast börn inn í fjölskyldu myndina og heimilislífið er oft vægast sagt í hershöndum. Marley  eldist og deyr í lok myndarinnar og allir sem hafa átt gæludýr vita hversu erfitt er að missa gæludýr. 'Eg held ég geti sagt að í lok myndarinnar gengu flestir út hálf skælandi og með tissue í hendinni. Ágætis mynd, en úff alger tearjerker í lokin. Seven Pounds með Will Smith er sögð vera góð mynd sem ég hefði ekkert á móti að sjá enda Will Smith frábær leikari. Hinsvegar hef ég heyrt að Yes Man með Jim Carry sé of kjánaleg og vitlaus til að eyða pening eða tíma í.

Mynd sem mig langar til að sjá er Revolusionary Road með Leonardo DeCaprio og Kate Winslett sem kemur út seinna í Janúar. Myndin lofar góðu og er jafnvel talað um Oskarsverlaun.             


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

   ÉG  hef verið svo léleg í bíomyndunum að eiginlega ekki er hægt að segja frá því, en ég er svo ánægð þegar mér er bent á myndir.  Við eigum okkar 4ra manna fjölskyldu í Noregi sem kom um áramót, og fann ég nú að bíofólk eins og við Friðbjörn verðum að hafa tvö sjónvörp á heimilinu, þegar börnin koma, sem gista þar sem sjónvarpið er, þannig er það.

   En varðandi Fjólugötuna, þá heimsótti ég stelpur þar, og ef afi þinn hefur byggt þetta hús, þá kom ég greinilega til fyrsta eiganda, sem ég veit ekki hver var, en hann var tengdur þessum stelpum, sem ég man eftir og ætla fyrst að athuga hvort ég er að fara með rangt varðandi þær.

   Við horfum töluvert á skandinavisku stöðvarnar hér á heimilinu. En þegar við förum í bío, sem var alls ekki sjaldan, þá tekur maður auðvitað einhverja valda.

Sólveig Hannesdóttir, 4.1.2009 kl. 18:07

2 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Húsið á horni Fjólugötu og Njarðargötu (með torfþakinu) tilheyrði fyrst Njarðargötu þegar afi minn Jóhann Kristjánsson byggingarmeistari byggði húsið en síðar tilheyrði húsið Fjólugötu og var númer 25. Afi og amma voru fyrstu íbúar hússins og þau áttu 4 syni og 3 dætur. Amma var frá Noregi og afskaplega fín og vönduð kona. Afi hannaði einnig Sóló eldavélarnar sem þú kannski kannast við og var með verkstæði inn af portinu. Þú spyrð mig hvar ég hafi búið áður en ég kom á Fjólugötuna. Það vill nú svo skemmtilega til að ég fæddist í sjúkrabíl á horni Laugarvegs og Barónsstígs (mér er sagt rétt fyrir lokun) en foreldrar mínir bjuggu þá á Karfavogi 35, hús sem afi og pabbi byggðu. Afi byggði einnig Skálatún undir Lágafelli, Kvennaskólahúsið í Hallormstað og húsið á Laugum og fleiri hús víðsvegar um landið. Hvar ólst þú upp Sólveig? Móðir mín var Svala Eyjólfsdóttir og lék sér einnig þarna við Skólavörðuholtið og sagði mér oft frá smá "orrustum" á milli hverfa. Ég vildi að ég hafi skrifað allt niður sem hún sagði mér til að varðveita upplýsingarnar.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 4.1.2009 kl. 19:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband