Og þá fór smjörið

Má búast við að ferðum mínum í Whole Foods fækki stórlega fyrst smjörið er ekki lengur á boðstólnum. Annað sem ég sótti í Whole Foods var íslenskt skyr, Síríus súkkulaði og mig minnir að ég hafi fengið íslenskan gráð ost frá þeim.  Þeir hafa einnig verið með íslenskt lambakjöt og fisk, en ég sæki mitt annað. Whole Foods er ágæt verslun með góðar vörur en frekar dýr og án íslenska matsins hef ég ekki mikla þörf á að eltast við þá.

Wegmans hefur sótt mikið á og gaman að koma þar inn. Þeir eru með gott úrval af "organic" grænmeti og mjólkur afurðum.  Einnig mjög gott úrval af fisk og tilbúnum mat, bæði til að borða á staðnum og taka með heim. Miðað við glæsileika verslunarinnar kemur verðið manni þægilega á óvart.  Ef við gætum fengið íslenskar matvörur í Wegmans held ég að það yrði öllum til góða.


mbl.is Hætta að kynna íslenskar vörur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: B Ewing

Vantanlega ætti þetta ekki að hafa nein áhrif á ferðir þínar í WFM.  Smjörið og annað sem ekki tengist hvalveiðum (þá væntanlega allt nema hvalkjöt) verður áfram á booðstólnum í verslunum, það er bara verið að minnka kynningar á íslenskum vörum hjá WFM eins og niðurlag fréttarinnar segir til um.  Það vona ég alla vegana.

Fólk kaupir Sony Playstation og er ekkert að spá í að þar fer hvalveiðiþjóð.....

B Ewing, 21.3.2009 kl. 13:29

2 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Gleðilegt að heyra þetta.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 21.3.2009 kl. 13:34

3 Smámynd: Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir

Hefur Whole Foods nokkurn tíma selt íslenskar vörur sem tengjast hvalveiðum? Afgreiðslufólk hefur haft á orði við mig að mikið sé keypt af íslensku vörunum og þær séu afbragð. Mig grunar nú að álíka margir viðskiptavinir og hafa andúð á hvalveiðum yrðu óánægðir er hætt yrði að selja íslensku vörurnar.

Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 21.3.2009 kl. 13:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband