Færsluflokkur: Bloggar

Ísold Ylfa nýjasta stjarnan

Ekkert smá flott að hefja árið með þvílíkt flottu lagi og mögnuðum söng. Ég er alveg að springa úr monti yfir henni yndilegu frænku minni.
Lagið á örugglega eftir að fara beint á toppinn.
Þökk sé Sönglist og þessu frábæra starfi sem þar fram fer.
mbl.is Leikkona, söngkona og dansari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að fá samkeppni

Við flugum heim og til baka með Delta sl. sumar. Okkur hafði hlakkað mikið til að geta flogið með Icelandair frá Washington D.C í staðinn fyrir að þurfa að ferðast til New York til að ná vél heim. En þegar átti að fara að bóka miða hafði fargjaldið hjá Icelandair hækkað mjög mikið á örstuttum tíma þannig og við fórum að skoða aðra kosti. Við vorum svo lánsöm að finna miða á rétt rúma $400 á mann sem var meir en helmingi ódýrari en hjá hinum tveim og auðvitað ótrúlega lágt verð á háannatíma. Þjónustan var frábær, heitur matur, ókeypis bíómyndir og allir með kodda og teppi. Eina sem ég myndi kvarta yfir var aðstaðan hjá þeim út í Keflavík. Þegar við lentum út í Keflavík vorum við látin ganga inn landganginn en síðan sett í rútu og ekið með okkur að vegabréfaskoðuninni. Eins þegar við fórum úr landi var mjög stór hópur af farþegum samansafnaður niðri við hliðin og stóðum þarna í einni kös í lengri tíma mjög lítið af sætum fyrir fólk og get ég bara sárvorkent eldra fólkinu sem þarna var. Mér datt í hug hvort þetta væri gert að ásettu ráði til að bola samkeppnnni í burt, ég vona ekki. Flugið með Delta og þjónustan voru til fyrirmyndar. Ég vona samt að ég nái í hagstæðan miða með Icelandair næsta sumar og þurfi ekki að ferðast til New York til að komast heim.
mbl.is Delta stefnir á að fljúga áfram til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslandsvinur?

Ég held ég myndi nú fara varlega með að kalla þennan mann einhvern sérstakan vin okkar. Ég sé ekki betur en þarna sé á ferð illskeyttur glæpamaður.

Lesið sjálf

http://atlanticfreepress.com/news/1/2474-alisher-usmanov-is-a-vicious-thug-criminal-racketeer-heroin-trafficker.html


mbl.is „Íslandsvinur“ kaupir Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósvífnir óþokkar

Mönnunum er sleppt og hvað svo, væri ekki rétt að stinga þeim í steininn? Ég skil ekki hvers vegna svona er látið viðgangast. Þeir ullu skemmdum á eigum annara og stálu vörum upp á margar milljónir og síðan er þeim sleppt við játningu. Það er eins og að slá á hendina á þeim og nú skuli þeir bara vera góðir strákar. Því miður virðast íslenskir glæpamenn ekki þurfa að takast á við neikvæðum afleiðingum gerða sinna. Þeir eru óhræddir við lögin því þeir vita að dómurinn verður vægur sem engin.

Ef þeir vissu að þeir ættu minnst ár yfir höfði sér hugsuðu þeir sig kanski tvisvar um áður en þeir brytu lögin

Hegningarhús, hvað er það? Ætti frekar að heyta afþreyingar miðstöð


mbl.is Ræningjarnir búnir að játa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki felldi ég karlinn minn....

Leiðinleg endalok sérstaklega eftir að  karl greyið er búin að þjóna svona dyggilega. Má hann ekki fara í orlof og eiga ljúfa daga framundan og vappa um grundin græn án þess að þurfa að vera í eilífu stelpu stússi?
Ekki felldi ég karlinn minn þó hann sé búin að gefa mér lömbin mín 3  ;)

mbl.is Raftur verður felldur í vetur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafnrétti ?

Jafnrétti en aðeins hlynnt konum --- Efast um að þessar sömu konur og ganga nú um bæinn með baráttu spjöld (sumar með óviðeigandi nöfn á kynfærum) yrðu hrifnar af að þeirri erfiðisvinnu sem fylgir sjómennsku og standa upp á togara þilfari eða línu bát og draga inn þung net eða troll oft í stórsjó og slagsviðri.
Er konum mismunað um að fá störf í vegavinnu, malbikun og á snjóruðnings tækjum svo eitthvað sé nefnt. Sennilega meira jafnrétti í Rússlandi, þar fá konur að erfiða.

Sannkallað jafnrétti er ekki til og það er allt í lagi. Líkamsbygging okkar segir til um það. Karlmenn geta einfaldlega unnið sum verk betur og allt gott með það. Auðvitað eiga konur rétt á sömu launum og karlar þar sem við á

Hvernig væri að halda upp á dag tileinkaðann einungis körlum? Hrædd um að við söknuðum þeirra sárt ef þeir gengu allir frá starfi.


mbl.is Konur hvattar til að klæða sig vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trú og glaðlyndi

Námumönnunum sem nýlega var bjargað upp úr koparnámunni í Síli (Chile)voru nýlega spurðir að því hvað hélt þeim gangandi og svarið var Trúin og glaðlyndi.
Ég held að það sé stórt skref aftur á bak að stöðva heimsóknir presta á leikskóla og aðrar stofnannir þar sem ung börn eru. Þetta er sá tími sem börnin eru að þroskast og þurfa á jákvæðum skilaboðum að halda sem þau hafa sem veganesti í gegnum lífið.
mbl.is „Vonin bjargar mannslífum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagurinn sem heimurinn stóð kyrr.

Það má svo sannarlega hrósa Síle fyrir mikinn hetjuskap og frábært björgunarstarf 33 námumanna og 6 björgunarmanna sem voru komnir niður í kopar námuna í lokin. Allar ráðstafanir gerðar með mikilli nærgætni. Einn námumannanna fylgdist vel með heilsu félaga sinna, námumannanna. Hann var látin gefa þeim sprautu gegn stífkrampa og fylgjast með blóðþrýstingi og vellíðan þeirra. Síðustu dagana voru þeir settir á fljótandi fæði til að fyrirbyggja háan blóðþrýsting og flögurleika á leiðinni upp.

Hver á eftir annari voru fjölskyldurnar leiddar að námuopinu þar sem þær biðu eftir sonum, eiginmönnum og bræðrum. Ég táraðist þegar móðir 16 námumannsins sagði að hún færi hvergi án sonar síns. Hún hafði beðið við námuna í rúma 2 mánuði ásamt fjölmörgum öðrum fjölskyldum og ástvinum. Þarna er aðeins auðn, sandur og mjög hrátt landslag og þarna beið fólkið.
Mikil eftirvænting og spenna sem allir máttu þola en samt mikil ró yfir öllum. Dóttir fótboltahetjunnar Franklín Lobos beið föður síns með sólskins bros og mikilli tilhlökkun.

Það var unaðslegt hvernig tekið var á móti námumönnunum 33 og þeim 6 björgunnarmönnum sem höfðu farið niður til þeirra. Forseti Síle og námuráðherrann ásamt eiginkonum biðu þeirra og fögnuðu þar til síðasti björgunar maðurinn var kominn upp úr kvið jarðar.
Samstaða og vel hugsað björgunarstarf skipti þarna sköpum. Stórkostlegt afrek og margar hetjur stigu upp frá þessu.


mbl.is Öllum bjargað upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

áhrif lyfja?

 Hef reyndar ekki lesið greinina í British Medical Journal en væri mögulegt að lyfin sem fólk tekur við mígreni veiki hjartað og spili þarna inn í, að það sé kannski ekki mígrenið sjálft sem eykur líkurnar á að fólk með mígreni deyi frekar úr hjarta og eða æðasjúkdómum ?

Sennilega mjög fáir sem taka ekki lyf við mígreni.


mbl.is Mígreni eykur líkur á hjartasjúkdómum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvað ætlar Icelandair að gera?

Nú væri fróðlegt að gera samanburð á farþega fjölda Icelandair og Iceland Express á New York leiðinni. Reyndar flýgur Iceland Express frá New Jersey sem er mun hagstæðara fyrir marga sem búa á Washington D.C/Baltimore svæðinu . Innanlands flug í Bandaríkjunum getur verið mjög hátt og sérstaklega fyrir fjölskyldur. Eftir að Icelandair hætti flugi til Baltimore höfum við neyðst til að aka til New York til að ná flugi heim. New Jersey er því mun hentugra fyrir þá farþega og losnar maður við að fara yfir dýrar tollskyldar brýr. Ég tel það hafi verið mikil mistök fyrir Icelandair að hverfa frá Baltimore og tel að stór hópur farþega sem hefðu annars flogið með þeim hafi fært sig yfir á Iceland Express þó svo að þeir hafi ekki eins gott orð á sér. Verður gaman að sjá hvað skeður eftir að Delta bætist við á þessari leið.

Ég vonast til að sjá Icelandair á Washington D.C svæðinu eða jafnvel á Dulles í Virginíu fylki  sem er ekki nema hálftíma akstur frá D.C 


mbl.is Farþegum Iceland Express fjölgar um 35%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband