Hörmuleg endalok

Hvernig í veröldinni er hægt að  lýsa því yfir að vera sáttur við þessi hörmulegu endalok?  Það mátti nú  búast við að ísbjörninn væri magur eftir langt sund í sjónum og eflaust litla sem enga hvíld. Var ekki hægt að hlúa að dýrinu á meðan gert var við þófana og fljúga seinna með hann norður í íshaf? Mikið voru þetta dapurleg endalok á degi sem bar svo mikla von. 

Ansi er ég hrædd um að einhver hafi verið of fljótur á sér með þessa ákvörðun.

Kíkið á http://www.youtube.com/watch?v=JE-Nyt4Bmi8 eða þið getið líka farið aðeins neðar á síðunni minni og smellt beint á unaðslegan leik bjarndýra og hunda við norðurheimsskautið.


mbl.is Daprir en um leið sáttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Já, þetta var voðalega sorglegt!

Jóhanna Pálmadóttir, 17.6.2008 kl. 21:39

2 identicon

Hlúa að dýrinu? Meinarðu þetta?

sleggudómarinn (IP-tala skráð) 17.6.2008 kl. 21:49

3 identicon

Þér finnst þetta svo sætt. En finnst þér þetta sætt?
http://www.youtube.com/watch?v=C5Cu6O9odsE

Þetta á að heita verndað umhverfi, og á ekki að geta gerst. Auðvitað er þetta voða sætt og allt það, en þú verður a átta þig á að þetta eru villt dýr og geta ráðist á þig án ástæðu.

http://www.hondahookup.com/forums/showthread.php?t=117389

Það ótrúlega fyndið samt að þegar tilkynnt var um björninn þá fóru allir að væla um að þessum ætti sko að bjarga. Síðan var það reynt, en nauðsynlegt samt að skjóta hann, og þá fara allir að væla. Það er aldrei neitt nógu gott. Óþolandi. Það átti aldrei að reyna að bjarga honum, og eyða peningunum okkar í það!

Finnur (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 09:00

4 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Finnur, ég geri mér fulla grein fyrir að ísbirnir eru varasöm rándýr, en við getum ekki bara skotið allt sem við höldum að sé hættulegt. Þessi björn var sennilega of særður á þófunum til að geta hlaupið mikið. Magur og sennilega örmagna.  'Eg get ekki séð að þetta dýr hafi verið í árásarhug.  'Eg vona að við fáum ekki fleiri heimsóknir frá bjarndýrum því engin miskunn er sýnd á Íslandi.

Þú verður að viðurkenna að samspil hundanna og bjarndýranna á myndbandinu sem ég benti á hafi verið með ólíkindum. Ef ég ætti hund hefði ég ekki þorað að láta minn hund vera þarna tjóðraðan með bangsa allt í kring.   

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 18.6.2008 kl. 12:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband