Fyrsti snjórinn

Frétt dagsins í gær var að fyrsti snjórinn féll á Washington D.C og svæðið hér í kring. Ótrúlegt hvað smá snjókoma getur ollið miklum usla hérna.  Venjulega er gatnamálastjóri hér í Norðurhluta Virginíu mjög fljótur að taka við sér áður en snjórinn lætur sjá sig. Stórir pallbílar fullir af salti sitja oft klukkutímunum saman við hraðbrautirnar og bíða eftir fyrsta snjókorninu. Ég hef oft furðað mig á þessari bensín eyðslu. Sama er með bæinn minn. Götur eru ruddar samstundis og borið á þær þannig að snjórinn nái ekki að festast. Þrátt fyrir allan þennan viðbúnað eru skólarnir  fljótir að taka þá ákvörðun að fella niður kennslu, sennilega vegna hræðslu við skaðabótamál. Mjög stór hópur barna ferðast til og frá skóla með skóla rútum (varla hægt að segja að við eigum almennings vagna hér í bæ) og stór hópur gagnfræðaskóla nema er á eigin bílum. (rúmlega 1.800 gagnfræðaskóla nemar undir sama þaki) 

 Einkvað fór úrskeiðið í gær. Þegar við vöknuðum voru alla götur óruddar, kennslu hafði ekki verið frestað. Það var eins og heimurinn hafi sofnað á vaktinni. Strákurinn minn er búin að vera að keyra frá því í haust svo ég lét til leiðast og leifði honum að fara á bílnum í skólann.  All í fyrsta sinn, ekki satt? Gott að ég gerði mér ekki grein fyrir mikilli hálku fyrr en ég þurfti að fara út stuttu seinna sem átti síðan eftir að versna með morgninum. Ég fór að efa ákvörðun mína og berja mig fyrir að hafa ekki látið hann æfa sig í snjó áður.  Hvað ef.... Það er ekki alltaf auðvelt að sleppa verndarvængnum yfir ungunum okkar. Þegar sonurinn kom heim úr skólanum seinna um morguninn í flughálku ljómaði hann af stolti og engin efi að sjálfsálitið óx heilan helling við þetta.

Í morgun vöknuðum við við klakalag yfir öllu. Hef á tilfinningunni að of margir foreldrar hafi fengið góðan skemmt af skrekk í gær og í dag eru allir skólar lokaðir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Það snjóar einnig mikið hér i Rvík,Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 28.1.2009 kl. 14:33

2 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

ég vildi að ég væri heima núna. Það er svo undarlegt að þegar við erum heima um vetur (oftast um jólin eða áramótin) hefur verið snjólaust eða lítill snjór síðan rétt eftir að við förum af landinu fer allt í gang og krakkarnir auðviða mjög vonsvikin því þessi litli snjór sem við fáum hér bráðnar svo fljótt.

Lýst þér ekki bara ágætlega á hana Jóhönnu sem forsætisráðherra Halli? Ég held hún sé mjög heiðarleg. Veit ekki hvort Þorgerður Katrín væri góð í þetta (við erum víst skildar í móðurættina) Allavegana vil ég alls ekki sjá hann Jón Baldvin Hannibalsson. Mig hlyllir við vinstri stjórn.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 28.1.2009 kl. 15:02

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Jóhanna er ágæt og er og var Krati,það kannski ekki vist að hún valdi þessu,það er svo erfitt að forgangsraða fyrir Krata eins og hana,Hún vill þeim sem mynna mega sin vel og þar gæti staðið hnífurinn i kúnni,en það mætti gera ýmislegt sem er ekki vinsælt,T.D. að hækka fjarmagstekjuskattin ur 10 í 15% setja a´3 skattþrep ein og eru i BNA og ýmislegt sem eg er ekki viss um að hennar flokksmenn mundu viðurkenna/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 28.1.2009 kl. 18:06

4 Smámynd: Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir

Hér fór liðið út að renna sér. Þegar ég birtist við brekkubrúnina fór kliður um hópinn sem kallaði á móti mér "Ísland, Ísland". Ég er ekki frá því að ég hafi verið flinkari en flestir að stýra matarbakkanum sem ég renndi mér á. Það gerir reynslan.
Já, merkilegt þetta héluregn sem breytir öllu í klakabrynju. Margir bílanna voru hjúpaðir í morgun. Ekki gaman að mylja það utan af þeim.

Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 29.1.2009 kl. 01:34

5 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

Það er alltaf ögrun fyrir strákana að keyra í snjó. ég verð nú að segja að mér finnst það soldið gaman. Það er enn fallegt hérna, þó smá bloti sé kominn í þetta, en gífurlegur munur hvað það er bjartara.

Sólveig Hannesdóttir, 1.2.2009 kl. 14:37

6 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

'Olöf, nú er verið að ræða um að breyta lögunum þannig að ölöglegt sé að aka bílum nema að sófa af þeim snjóinn og ísinn. Það gætu orðið töluvert vesen að leysa ísinn af þakinu. Svo er hitt að það er auðvitað stórhættulegt þegar heilu íshellurnar fjúka af bíl þökunum á fleigiferð.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 4.2.2009 kl. 02:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband