Aftur í skólann

Þá er Andrea mín byrjuð aftur í háskólanáminu. Lítið frí hjá henni í sumar þar sem hún var í vinnu og tók efnafræði samtímis til að létta á haust önninni. Hlóðum bílinn á laugardaginn og ókum af stað. Hún var nýbúin að krækja sér í leiðinda kvefpest og er eiginlega sárlasin. Við hjálpuðum henni að flytja dótið sitt inn og keyptum það sem á vantaði.  Því miður fékk hún ekki herbergið sem hún hafði beðið um, þetta er mun minna heldur en það sem hún hafði í fyrra. Eins og flestar byggingarnar þarna í heimavistinni, er engin loftkæling og herbergin því oft eins og bakaraofnar. Tvær saman í herbergi og lítið pláss til að hreyfa sig.  Rúmið er svokallað "loftbed" og er næstum upp undir loft og skrifborðið undir til að spara gólfpláss.

Mig sár verkjaði að þurfa að skilja hana eftir lasna í þessarri loftlausu hita kompu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir

Úff, hvað ég skil þig. Það hefur orðið mér til bjargar í minni vistarveru að í sumar voru sett loftkælingtæki í hvert herbergi. Apparatið er háværara en orrustuþota (smá ýkjur) og ef ég hef ekki kveikt á því yfir nóttina sef ég ekki neitt. Það var 27°C hiti í herberginu mínu í gær þegar ég komi inn og er nú samt búið að kólna nokkuð úti. Mitt fyrsta verk er að kveikja á græjunni.

Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 26.8.2008 kl. 11:26

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Úff, ég vona að það fari ekki of illa um hana frænku mína, en lýsingin á herberginu hennar lofar ekki góðu. Það er því miður of algengt að bjóða námsmönnum upp á óviðunandi aðstæður. En baráttukveðjur og vona að hún losi sig við pestina, ég er einmitt að slást við mína pest núna eftir langt tímabil án svoleiðis leiðinda.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 26.8.2008 kl. 15:39

3 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þakka þér fyrir Anna mín. Talaði við Andreu fyrr í dag og það var mun betra í henni hljóðið. Ekki eins þræl kvefuð og svo var aðeins svalara í nótt og í morgun svo það var ekki eins heitt í herberginu hennar, en svo hefur hitnað í dag aftur og meiri raki í loftinu.  Hvenær fer Hanna út? Gangi henni allt í haginn. Ég vona að þú losni við þessa leiðindapest fljótlega.

Jæja Ólöf, er nógu mikill hiti fyrir þig?  Íslendingar eru svo oft að kvarta yfir því að það sé ekki nógu heitt fyrir þá. 'Eg sá myndirnar af herberginu þínu. Það er bara mjög fínt miðað við heimavistar herbergi. Bjartir og hressandi litir.  Vona að námið gangi vel. Væri gaman að hittast. Ég er að fara í læknisskoðun mánudaginn 8 sept. niður í Georgetown University Hospital sem er ekkert langt frá þér.  Hvernig verður dagurinn hjá þér?

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 26.8.2008 kl. 20:51

4 Smámynd: Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir

Sendi þér tölvupóst

Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 31.8.2008 kl. 13:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 32857

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband