Getur varla verið íslenskara

Eitt af því fyrsta sem ég læt verða af að gera á haustin er að setja sængurnar aftur á rúmin því sumar mánuðir hér eru of heitir til sængur nota. Mikið lifandis ósköp er gott að kúra undir sæng enda sváfum öll yfir okkur fyrstu tvær næturnar með sængurnar aftur á.

Í dag var ekta íslenskt veður. Það hefur kólnað töluvert hjá okkur og seinnipartinn tók að hvessa og rigna. Ég dró pönnuköku pönnuna mína fram og gerði nokkrar pönnukökur handa syninum sem ég vissa að myndi gera mikla lukku. Í kvöld bíða sængurnar okkar og fátt er betra heldur en að kúra undir hlýrri sæng og hlusta á regnið berja á gluggana. Já heimurinn  fer á mis að þekkja ekki íslenskar pönnukökur og dún sængur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

EN skemmtilegt, hér í Kópavogi er orðið svo innanhúss á sumrin, að eiginlega upplifi mig í útlöndum, allt eins og sumarbústaður, og byrjaði daginn í dag, að breyta húsinu í haust, viðraði sængur vetrarins, svo nú leggst ég eins og kornabarn undir  sængurnar, nema ég hef flísteppi til fóta.  Ég er fótköld og hefi beðið tengdadóttur mína, að sjá til þess að ég verði látin sofa í sokkum á elliheimilinu, ef ég næ aldri. Hún hefur lofað því, Góðar kveðjur til Virginíu, ég ætla að gá að því á kortinu.

Sólveig Hannesdóttir, 26.9.2008 kl. 00:45

2 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

á að vera heitt innanhúss.

Sólveig Hannesdóttir, 26.9.2008 kl. 00:46

3 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

he, he, hvað er svona ung kona að hugleiða elliheimili? Annars er þetta snjallt hjá þér að láta fólk vita fyrirfram hvað þú vill seinna. Við ættum öll að gera lista

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 26.9.2008 kl. 03:26

4 Smámynd: Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir

Mér fannst æðislegt þegar ég fór að geta sofið við gervisængina úr IKEA. Þá fyrst fór ég að sofa almennilega.

Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 26.9.2008 kl. 03:44

5 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Segi það sama Ólöf. Ég sef aldrei eins vel með þetta teppadrasl. Því miður þarf ég að vakna svo rosalega snemma (kl.6) til að fara með soninn í skólann. Vá hvað rignir mikið úti. Nú væri gott að geta pakkað sér inn í sæng og lúllað svolítið.  Yndisleg rigning, rigning, rigning, en allt í hófi takk fyrir.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 26.9.2008 kl. 10:49

6 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Hvað er betra en góð sæng með léreftsveri sem er storkið vel. UMMM

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 29.9.2008 kl. 13:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 32857

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband