Bleikar slaufur og bleikir hárlokkar

 

       479783                                    pink ribbon                                      479783                

Októbermánuður er tileinkaður brjóstkrabbameini og bleikar slaufur eru seldir víða um heim til styrktar krabbameins rannsóknum og til að minna okkur á að fara reglulega í skoðun og láta fylgjast með okkur. Ein snyrtistofan  hér í bæ hefur boðið upp á að setja bleikan hárlokk (hair extention) í viðskiptavini fyrir $10 til styrktar krabbameins rannsóknum.  Snemma á síðastliðnu ári greindist ég með brjóstkrabbamein. 'Eg tel það hafi bjargað lífi mínu að ég var send í STAFRÆNA RÖNTGENTÆKJA myndatöku.  6 mánuðum áður hafði ég farið í venjulega röntgenmyndatöku og við þá skoðun kom ekkert óeðlilegt fram.Ég var heppin að krabbameinið náðist á byrjunarstigi og var ekki komið á það stig að vera ber eða hnútur heldur krabbameins frumur víðsvegar í brjóstinu.  Stafræn röntgentæki "sjá betur" í gegnum þykk brjóst og eru því oft betri sérstaklega fyrir yngri konur.  Röntgen tæknirinn sá strax að ekki var allt með feldu. Á meðan ég stóð þarna með brjóstið stíf klemmt sagði hún mér að hún yrði að skoða enn betur í sónar (ómtæki) og sagði mér að ég yrði að leita til skurðlæknis sem allra fyrst.  Helst hefði mig langað til að kannast ekkert við að eiga þetta brjóst og flýta mér út og eins langt frá því  og hægt væri. Sá var ekki kosturinn. Krabbameinið var á fleiri en einum stað og næst var ég send nokkrum sinnum  í MRI og brjóstið "kortalagt" og mælt nákvæm hvar þessar  krabbameins frumur voru staðsettar.  Eftir  tvær  skurðaðgerðir til að reyna að fjarlægja krabbameinið var það ráð tekið að fjarlægja brjóstið með þriðju aðgerðinni. Þetta er ekki óalgengt með krabbamein á byrjunarstigi því ekki er um sjáanlegan hnút að ræða og þvi oft erfitt að "sjá" jaðarinn á krabbameins frumunum.  Í Bandaríkjunum er talið að ein af hverjum átta konum greinist með brjóst krabba á lífsleiðinni. Búist er við að á árinu 2008 bætist við 182.460 nýjum tilfellum hjá konum og 1.990 hjá körlum. Við megum ekki líta framhjá þeirri staðreynd að karlmenn geta fengið krabbamein í brjóstið.

 100_0750  Smellið á til að sjá bleika lokkinn minn betur.

Á síðastliðnum 25 árum hefur brjóstkrabba tilfellum fjölgað um 30% hjá vestrænum þjóðum sem stafar af auknu eftirliti og greiningu krabbameins  á byrjunarstigi. Þar af leiðandi hefur dánartíðni lækkað. Á árunum 2000-2004 fækkaði greindum brjóstkrabbameins tilfellum um 10% í Bandaríkjunum  sem má þakka minnkun hormóna notkunar kvenna.

Oft finna konur sjálfar ber í brjósti. Reglan hér í Bandaríkjunum er að konur 40 ára og eldri fari í mammogram (brjóst myndatöku) á hverju ári .

Það er margt sem við getum gert til að minka líkurnar á því að fá krabbamein eins og td. borða hollan mat sérstaklega grænmeti og ávexti, draga úr neyslu á rauðu kjöti, reykja ekki, drekka í hófi og sem minnst,  hreyfing og varast að fitna.

Ég spurði föður minn einu sinni hvort hann hafi farið í blöðruhálskrabbameins skoðun. Hann sagði “nei, ég hef aldrei verið kallaður”. Ég vona svo innilega að fólk haldi ekki að það þurfi að fá boð til að fara í skoðun. Eftir fimmtugs aldur ættu allir karlmenn að fara í blöðruháls skoðun. Hvernig skildi standa á því að kvenfólk er kallað í krabbameinsleitarskoðun (legháls og brjóst) en ég veit ekki til þess að það sé nein skipulögð leitarskoðun hjá karlmönnum? Karlmenn leita síður til læknis en kvenfólk og því mjög mikilvægt að það sé náð til þeirra. Þegar krabbamein næst á byrjunarstig er það mun viðráðanlegri og batahorfur góðar.

Lesandi góður, spurðu móðir þína, systir eða dóttir hvort hún hafi farið í skoðun. Spurðu föður þinn, son eða bróðir hvort hann hafi farið í skoðun.

Lifðu vel.   

Hér eru góðar upplýsingar http://www.cancer.gov/cancertopics/types/breast 


mbl.is 40.000 bleikar slaufur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Kvitt mjög merkileg grein og þörf/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 1.10.2008 kl. 18:07

2 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þakka þér fyrir Halli minn. Láttu fylgjast með þér.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 1.10.2008 kl. 18:14

3 identicon

Mjög góð bloggfærsla hjá þér!!  Baráttukveðjur til þín kæra Erna og takk fyrir skilaboðin sem ég ætlaði nú að svara svona einhvern daginn  ... .. mér þykir svo yndislegt þegar ég finn að aðrir gleðjast við að skoða myndirnar mínar ...

Maddý (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 19:52

4 identicon

Ég man það núna, þegar ég skoða myndina af bleika lokknum þínum, að ég lét einu sinni lita einn bleikann lokk, var að fara á ball og var í bleikum kjól, hvernig gat ég gleymt þessu ... takk fyrir að rifja þetta upp fyrir mig ...

Maddý (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 19:56

5 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Og þú hefur örugglega verið æðisleg. Vonandi léstu taka mynd af þér. Væri gaman að sjá hana.  Reyndar er lokkurinn minn ekki liðaður heldur var  hárlokk bætt við. Takk fyrir innlitið Maddý mín.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 1.10.2008 kl. 20:02

6 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

úps! á að standa "var ekki litaður"

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 1.10.2008 kl. 23:33

7 identicon

Næst fer ég líka í brjóstaskoðun, ekki spurning, þar sem nafnskírteinið mitt segir mér að ég verði 35 ára á næsta ári þó hjartað sé alltaf tvítugt

Sit hérna í skærbleiku hettupeysunni minni og ætla að gera sem mest úr bleiku fötunum mínum næstu daga og halda áfram að versla "bleika" sódavatnið og styrkja góðan málstað

Knús inn í helgina og takk fyrir pistilinn skvís (lokkurinn er æði)

Martha Elena Laxdal (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 10:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 32857

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband