Go Sarah go!

Palin-small Það var eins og við manninn mælt. Gefið henni lausan tauminn og hún mun blómstra. Sarah Palin kom mörgum á óvart í kappræðunum í kvöld. Hún stóð sig frábærlega vel og einfaldlega stal senunni. Joe Biden kom ágætlega út en fór þó fljótlega í varnarstöðu. Sarah var hlíleg og brosmild og mjög alþýðuleg og aðgengileg. Hún byrjaði á því að segja Joe Biden hversu ánægjulegt það væri að kynnast honum og spurði hann hvort hún mætti kalla hann Joe.  Hún sýndi fótfestu, svaraði spurningum skilmerkilega og sýndi að hún býr yfir reynslu og skilningi.  Ég held ég megi segja að allir fjölmiðlarnir hérna úti hrósuðu henni fyrir mjög góða frammistöðu. Ég held að allar tölur og skoðanakannanir hljóti að snúast eftir kvöldið.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Biden stóð sig betur en Palin. Hann sigraði þessar kappræður, engin spurning.

Páll Geir Bjarnason, 3.10.2008 kl. 05:10

2 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Ekki fylgdist ég með þessum kappræðum en óneitanlega fer þetta að verða spennandi.

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 3.10.2008 kl. 08:17

3 identicon

Æi ekki ertu að segja mér að það séu til Íslendingar sem styðja þennan geðsjúkling. Hún er verri en Bush þessi kona.

Stebbi (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 10:12

4 identicon

Mér finnst líka frekar fyndið að þú segir hana búa yfir reynslu og skilningi.

Stebbi (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 10:14

5 identicon

Ég hef gaman af Söru

Martha Elena Laxdal (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 10:53

6 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Sammála þer Erna hún kom sá og sigraði/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 3.10.2008 kl. 12:03

7 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Sammála ykkur Mel og Halli. Eins og sumir myndu segja "she rocks"

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 3.10.2008 kl. 14:08

8 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Mér líst vel á Söru.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 8.10.2008 kl. 20:55

9 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Já Sarah er frábær og hún nær vel til fólks. Mér finnst fjölmiðlarnir hafa verið mjög ósanngjarnir gagnvart henni. Ég vildi bara að McCain væri meira spennandi, en ég held hann sé mun traustari maður heldur en Obama. Ég er mjög hrædd um að ef Obama kemst að í Hvíta Húsinu  að það eigi eftir að verða miklar skattahækkanir hér ytra. Obama kveðst ætla að lækka skattana en talk is cheep. McCain hefur reynsluna af að vera stríðsfangi og ég treysti honum mikið betur fyrir ungu mönnunum hérna. Held hann myndi gera allt til að koma í veg fyrir að senda fleiri unga menn og konur í stríð.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 8.10.2008 kl. 22:02

10 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

Gaman að heyra þetta, ekki finnst mér ólíklegt að hún steli senunni. Kv. vestur um haf.

Sólveig Hannesdóttir, 15.10.2008 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 32857

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband