Jóla basaar í Washington D.C.

Íslendingafélagið í Washington D.C. hélt sinn árlega "Holiday Bazaar" sl. laugardag. Þetta er mikill tilhlökkunar viðburður sem flestir Íslendingar á svæðinu reyna að missa ekki af enda oft eini sénsinn að kaupa sér íslenskar matvörur, sælgæti og ullarvörur. Eldhús dívurnar voru með girnilegt snittubrauð, brauðtertur og pönnsur í sölu og hvað er betra en að fá tækifæri til að setjast niður með landanum yfir kaffibolla og rjómapönnsu eins og td henni Ólöfu blogg vinkonu sem var einnig mætt á staðinn. Sjálf fékk ég mér sneið af hangikjötsbrauði og brauðtertusneið, hef ekki hugmynd um hvað maðurinn minn fékk sér því ég var alltof upptekin af brauðtertunni minni. Keypti síðan poka fullan af kleinum, lakkrís, og rúgbrauði sem hún Peta bakaði fyrir okkur. Ég saknaði þess að fá ekki Rís súkkulaði stengur sem áttu að fara með í jólapakkana.  Á leiðinni heim stoppuðum við í Whole Foods og keyptum nokkur stikki af íslensku smjöri, skyri og Síríus bökunnar súkkulaði.

Það vill svo skemmtilega til að Today show á NBC er með Íslands kynningu þessa viku. Það sem ég hef séð hefur Al Roaker verið með sérstaklega fróðlegt og jákvætt efni um Ísland.  Hér eru nokkrar myndir og fleiri hér til hliðar.  http://today.msnbc.msn.com/id/26184891/vp/27765494#27765494

http://today.msnbc.msn.com/id/26184891/vp/27765494#27767282

100_0886     100_0892-2     100_0889     100_0890 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

Jeminn hvað ég kannast við þennan mataráhuga fólks þegar það er annarsstaðar er heima.   Það er alltaf þyngri taskan mín til dætra minna en frá. Oft einmitt það sem þú ert að nefna, lakkrís, kleinur og flatkökur  En það er ábyggilega gaman að Jólabasarnum.  Gott að halda þjóðarvitundinni  í hjartanu.

Sólveig Hannesdóttir, 18.11.2008 kl. 17:41

2 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Já er það ekki. Áður en reglurnar um vökva í handfarangri fór að vera svona strangar, var ég að rogast með kippu af stórum maltöls dósum í handtöskunni þegar ég fór aftur út0. Gat ekki hugsað mér að halda jól án öls og hangikjöts. Nú vesenast þeir út af skyri og hverju sem er. Það jafnast ekkert á við íslenskan mat og sælgæti.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 18.11.2008 kl. 19:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 32810

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband