Afhverju ekki Baltimore?

'Eg get ekki ímyndað mér að það hafi verið farsæl ákvörðun hjá Icelandair að hætta flugi á BWI sem þjónar bæði Baltimore og Washington D.C. höfuðborg Bandaríkjanna en halda áfram flugi til Halifax. Hvernig í veröldinni getur verið meiri hagnaður í að fljúga til Halifax spyr ég? Skyldu þeir hafa misst samningin eða hver veit nema þeir séu að hugleiða að fljúga frá Dullas International airport í Washington D.C. Já, þá væru þessar elskur yndislegar. Ekki nema hálftíma keyrsla að skella sér þangað frá mér en eftir að Baltimore fluginu var hætt verður maður að fljúga fyrst til New York eða keyra sem tók mig 7 klst. síðast. 'Eg myndi ætla að Baltimore/Washington svæðið hafi að geyma einn fjölmennasta hóp af Íslendingum í Bandaríkjunum.
mbl.is Mjög dró úr hagnaði Icelandair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róbert Björnsson

Íslendingar eru ekki nema mjög lítið brot af heildar farþegafjölda þeirra í Ameríkufluginu.  Opinbera skýringin sem þeir gáfu þegar þeir hættu að fljúga á BWI var sú að eftir að kaninn fór frá Keflavík hafi orðið veruleg fækkun farþega á þessari leið og auk þess er líka töluvert framboð af beinu flugi frá Washington svæðinu til Evrópu svo samkeppnin var hörð.  Halifax kemur svo reyndar ekki í staðinn fyrir BWI heldur má frekar segja að það verði Toronto en þeir hefja flug þangað í vor.

En ég skil vel að þú sérst svekkt með þá...ég bý nálægt Minneapolis og vona innilega að þeir haldi áfram flugi hingað en þeir tóku sér vetrarfrí núna yfir dauðasta tímann frá janúar fram í mars...þessar elskur.

Kveðja frá Minnesota.

Róbert Björnsson, 22.2.2008 kl. 04:19

2 Smámynd: Ívar Jón Arnarson

Eftir að varnarliðið hvarf frá Íslandi þá hefur eitthvað minnkað aðsóknin til BWI en samt sem áður er BWI flugið með einhverja þá bestu sætanýtingu í Bandaríkjafluginu þannig að það er með öllu óskiljanlegt hversvegna Flugleiðir hættu flugi þangað.

Ívar Jón Arnarson, 22.2.2008 kl. 09:23

3 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Jú ég hef heyrt þessa skýringu áður en á nú einkvað erfitt með að trúa því að Kaninn frá vellinum hafi haft það mikil áhrif á farþega fjöldann þar sem hermenn og fjölskyldur þeirra gátu flogið frítt með Mac flights, þe hervélum eða í leiguflugi. Veit að herinn leigði farþegaþotur sem flugu reglulegt  flug held einu sinni í viku  til Keflavíkur með þeirra fólk.

Icelandair tóku einmitt einnig svona vetrar frí á Baltimore í fyrra og ég var bara að vonast til að þetta yrði aðeins yfir daufast tímann núna. 'Eg vona bara að þetta sé ekki vísbending á það sem koma skal hjá þér.

'Eg hafði gaman af að lesa viðbótina við fréttina hjá þér Róbert á Moggasíðunni í gær og þakka þér fyrir góðar upplýsingar. 'Eg vissi td. ekki að aðeins þessi flugfélög sem þú minntist á mættu fljúga á milli USA og Bretlands. Verður athyglisvert ef aðrir fara inn á Íslands markaðinn. Icelandair mættu gjarnan fá smá samkeppni, þær færu kannski betur með okkur. Finnst það hund skítt að við sem fljúgum "heim" erum að borga sama prís og þeir sem halda áfram tildæmis til Frankfurt og ég held  það sé reyndar ódýrara.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 22.2.2008 kl. 12:43

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Eru þeir alveg hættir að fljúga til Baltimore eða er það bara á veturna? Sé ekki betur á Icelandair-vefnum en þetta sé alveg hætt.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 22.2.2008 kl. 14:36

5 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Rétt hjá þér Anna. Því miður sýnist mér þetta endanleg ákvörðun hjá þeim. Ergilegt fyrir okkur. Verður ekki eins auðvelt að komast heim.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 22.2.2008 kl. 15:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 32858

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband