Plastpoka Bann

‘I dag tekur Maryland fylki ákvörðun um hvort banna eigi notkun plastpoka eða ekki. Umræðan hefur komið upp áður en var feld en vonandi gengur þetta í gegn í dag. Matvöruverslunar keðjan Whole Foods sendi nýlega frá sér tilkynningu þess efnis að frá og með 22 apríl (Earth Day) munu þeir ekki lengur bjóða upp á plastpoka heldur einungis sterka bréfpoka og síðan verður hægt að kaupa fjölnota nælon poka. Þeir þjóna sama tilgangi og gömlu góðu netin sem við notuðum í gamla daga.  'Eg keypti mér svona nælonpoka hjá Wagmans og nota hann mikið. Eins er Giants með með sína poka í kóngabláum lit verslunarinnar og kosta aðeins 99 cent stykkið. Þeir voru með "Special Edition" bleika nælon poka fyrir nokkru skreyttir með mynd af slaufunni sem minnir á brjóstkrabbamein og allur ágóði af sölunni rann til rannsókna á brjóstkrabbameini. Mér fannst það mjög sniðugt hjá þeim. Þetta er auglýsing fyrir þá sjálfa og um leið er ég að styrkja gott málefni. Svo má segja að í hvert skipti sem ég fer út í búð með bleika pokann minn mynni ég aðrar konur á að fara í skoðun og láta fylgjast með sér. Margt gott sem leiðir af þessu. Ekki bara að við séum orðin meira meðvitandi um áhrif okkar á náttúruna með öllu þessu rusli sem við framleiðum.  Mágur minn var í Dubai nýlega og sagði að það hafi haft sláandi áhrif á hann að sjá plastpoka  fjúkandi um allt allstaðar. Alls ekki sú ímynd sem við gerum okkur um Dubai.Hér eru smá plastpoka staðreyndir. Það getur tekið yfir 1.000 ár fyrir plast poka að grotna niður á sorphaug og það tekur nálægt 1.7 milljón lítra af hráolíu til að framleiða 100 milljón plast poka og í Bandaríkjunum einum saman er um 100 milljarðar af plastpokum hent út árlega og aðeins 0.6% af þeim fer í endurvinnslu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband