næst þegar þú gistir á hóteli....

Ég er mjög á móti öllum einnota vörum en eftir að hafa séð þessa frétt  um hreinlæti eða betur sagt sóðaskap hjá hótel starfsfólki langar mig ekki mikið til að drekka úr glösunum sem eru inn á herbergi.

Hér eru sýndar herbergis þernur að "þvo" glösin í skítugum vaskinum og jafnvel með gúmmí hanska sem var nýbúin að vera í klóinu.

Fréttamenn földu myndavélar bæði á Holliday Inn og eins á Embassy Suites sem eru bæði mjög viðurkennd hótel.  Og við sem héldum að Kaninn væri svo þrifalegur.  

 http://www.bestviral.com/video/6629/dont_ever_drink_from_hotel_glasses

Ég var á ferðalagi um hringveginn í fyrra sumar. Morguninn sem við fórum frá  Foss hótelinu okkar var ég að hlaða dóti í bílinn og tók eftir hjólbörum fullum af hreinum handklæðum og þvottapokum fyrir framan bygginguna. Þegar ég koma aftur að svolítið seinna var búið að setja bunkann á forstofugólfið rétt við innganginn þar sem allir ganga um á skítugum skóm. 'Eg hélt að svona gæti ekki skeð heima á Íslandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sylvía

Sæl nýji bloggvinur. ég er sammála þér með einnota vörurnar en þetta video kemur mér ekki á óvart hvorki með kana né íslendinga. Á spítalanum sem ég vinn hér í NC er hreinlæti mjög ábótavant !!! og t.d. er aðeins ruslið losað á okkar skrifstofum en við eigum sjálf að sjá um að þrífa borð og annað...það var aldrei gert fyrr en ári seinna...mjög einkennilegt.

Sylvía , 22.7.2008 kl. 21:12

2 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Sæl Sylvía.

Reyndar það sama hér í Virginíu þar sem ég er. Ég vinn (sjálfboðaliði) inn á fæðingardeild við það að taka myndir af ungabörnum áður en þau eru send heim. Ég þarf alltaf að byrja á því að þurka allt niður því ræstingarliðið gerir lítið annað en að tæma ruslið og skipta um klósettrúllu ef með þarf.  Annars varð mér víst á að kalla þetta fólk "Kana" í vidíóinu.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 22.7.2008 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 32856

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband