Sarah Palin, glæsileg og eldklár

Nú kom hann okkur svo sannarlega á óvart. Snilldarval hjá McCain sem fáum datt í hug nema kannski einum ungum manni sem hefur verið að blogga um hana og safna undirskriftum allt frá  2007. Gaman að kíkja á bloggið hans http://palinforvp.blogspot.com/ 

Sarah Palin Þessi 5 barna "hockey mom" eins og Sarah Palin kallar sig lét fyrst til sín kveða í foreldrafélagi  barnaskólans í heimabæ sínum í Alaska(parents teachers association). Sat síðan í borgarstjórn og sem leiddi hana upp stigann í embætti ríkisstjóra Alaska sem hún hefur þjónað í tvö ár við miklar vinsældir. Þegar hún tók sæti í borgarstjórn var það hennar fyrsta verk að "hreinsa til" og rak meðal annars lögreglustjórann fyrir spillingu. Sarah er ákveðin og veit hvert hún stefnir og kemur mjög vel fram. Mér líst mjög vel á þessa geðþekku konu eftir að hafa hlustað á hana og eftir það sem ég hef lesið um hana og held að hún eigi eftir að gera vel.   


mbl.is Hver er Sarah Palin?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sarah Palin vill láta kenna sköpunarsöguna sem jafnrétthá "vísindi" og þróunarkenninguna í skólum.

Harður stuðningsmaður dauðarefsinga.

Harður andstæðingur allra fóstureyðinga, jafnvel þótt um sifjaspell eða nauðganir sé að ræða.

Talsmaður algers skírlífis fyrir giftingu.

Félagi í National Rifle Association frá barnsaldri og gegn hvers kyns takmörkunum á byssueign.

Gegn rétti samkynhneigðra til að ganga í hjónaband eða staðfesta sambúð.

Gegn rétti samkynhneigðra til að ættleiða börn.

Styður olíuborun í þjóðgörðum Alaska (ekki einu sinni McCain sjálfur styður slíkt).

Notaði þjónustu hagsmunagæslufyrirtækis til að krækja í 27 milljónir dala frá alríkisstjórninni fyrir bæinn sem hún stýrði.

Sætir rannsókn fyrir að hafa e.t.v. látið reka yfirmann almannavarna Alaska fyrir að neita að reka úr starfi mág sinn sem átti í skilnaðardeilu við systur hennar.

Draumavaraforsetaefni eða hvað?

Er ekki fullreynt með biblíubéusana í stjórn þess ríkis?

Arnar (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 21:01

2 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Vona að þú hafir haft tækifæri til að hlusta á ræðu Söru Palin í gærkveldi.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 4.9.2008 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 32795

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband