gúnguskapur í dómstólum

Hvernig er hægt að leyfa annarri þjóð (Noregur í þessu tilfelli) að vaða svona yfir okkur og hunsa íslenskan dóm? Hvaða máli skiptir það okkur hvaða reglur eru í gildi í Noregi eða annarstaðar í heiminum í máli um forráðarétt íslenskra þegna? Þýðir þetta að nú getur hver sem er flutt úr landi með börnin og látið breyta umráðarétt barnanna því íslenskir dómstólar eru linir og virðast ekki hafa bein í nefinu til að stöðva það sem ég myndi kalla mannrán. Ekki gott mál.

"Almenna reglan á Íslandi er sú að ef um barn yngra en 18 ára er að ræða þá þarf samþykki frá báðum foreldrum eða þá staðfestingu frá sýslumanni eða öðrum á því að viðkomandi foreldri sé með fullt forræði".


mbl.is Fluttur til Noregs án samþykkis móður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Hvernig er hægt að leyfa annarri þjóð (Noregur í þessu tilfelli) að vaða svona yfir okkur og hunsa íslenskan dóm?

Ljúfan mín, þetta gera íslenskir dómstólar daglega því sem næst og fara ekki einu sinni eftir alþjóðasamþykktum sem þó norðmenn gera.. ég er handviss um að réttur barnsins er í hávegum hafður í noregi..  

Bendi á mitt eigið blogg um sama efni þar sem fjallað er um málið frá hinu sjónarhorninu. 

Óskar Þorkelsson, 18.9.2008 kl. 17:04

2 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Það er eflaust óskaplega sárt að lenda í svona máli hvort sem það er móðirin eða faðirinn sem fær forráðarétt barnsins og hlýtur að vera mikil vanlíða hjá barninu að vera klemmt á milli foreldra sem barninu þykir eflaust jafn vænt um. 'Eg gæti ekki hugsað mér að vera án minna barna og veit að ég get sagt það sama fyrir manninn minn. Þú segist vera handviss um að réttur barnsins er í hávegum hafður í noregi.. Hvað með þann dóm sem Íslensk yfirvöld voru búin að setja? Var drengurinn spurður hvar hann vildi helst vera? Vinir hans og fjölskylda eru sjálfsagt á Íslandi (nema faðirinn). Getur verið erfitt fyrir barn að aðlagast nýju umhverfi sérstaklega undir álagi.

Ég hef samúð með öllum þrem í þessu tilfelli. Erfitt fyrir alla

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 18.9.2008 kl. 18:02

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég leyfi mér að efast um að nokkuð hafi verið við drenginn rætt þegar móðirinn fékk forræðið. 

Óskar Þorkelsson, 18.9.2008 kl. 18:44

4 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

 Erfitt að segja til um það, auðvitað á að ræða þetta við barnið. En hvernig í veröldinni geta norsk yfirvöld leift sér að breyta máli sem var dæmt á  Íslandi? Er faðirinn ekki líka íslenskur ríkisborgari? 

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 18.9.2008 kl. 19:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 32790

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband