4.11.2008 | 16:44
Múgsefjun
Obama heimsótti Manassas í Virginia í gærkveldi og er talið að um 85.000 manns hafi verið á staðnum. Ég get sagt ykkur að ég bý í ca. 5km fjarlægt frá fundarstaðnum og skríls lætin voru svo mikil og hátalararnir svo hátt stilltir að við gátum heyrt það sem fram fór. Alger múgsefjun. Ekki vildi ég verða á þeirra vegi ef Obama verður ekki fyrir valinu. Fjölmiðlarnir halda áfram að hafa áhrif á fólk og var byrt stór mynd í blaðinu af Obama á kosningarstað í morgun. Grein úr Manassas dagblaði hér fyrir neðan og síðan er smá kosningar fróðleikur frá Yahoo þar fyrir neðan.
http://www.insidenova.com/isn/news/politics/article/obamas_final_virginia_rally_draws_85000/23889/
http://news.yahoo.com/s/ynews/ynews_pl126
Um bloggið
Hitt og þetta
Nýjustu færslur
- 1.1.2012 Ísold Ylfa nýjasta stjarnan
- 7.9.2011 Gott að fá samkeppni
- 4.1.2011 Íslandsvinur?
- 9.12.2010 Ósvífnir óþokkar
- 11.11.2010 Ekki felldi ég karlinn minn....
- 25.10.2010 Jafnrétti ?
- 17.10.2010 Trú og glaðlyndi
- 14.10.2010 Dagurinn sem heimurinn stóð kyrr.
- 26.8.2010 áhrif lyfja?
- 17.8.2010 Og hvað ætlar Icelandair að gera?
- 6.8.2010 Af hverju NY?
- 5.8.2010 Bíll fyrir blinda
- 12.11.2009 Fólk þarf að gera sér grein fyrir hversu alvarlegt þetta er.
- 3.6.2009 haga sér eins og óþekk smábörn
- 19.4.2009 Ekki má gleyma skotárásinni í Va.Tech og nýlega var nemandi ...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er alveg sammála þér alger múgsefjun en ég trúi ekki að Bandaríkjamenn séu það vitlausir að kjósa Obama.
Óðinn Þórisson, 4.11.2008 kl. 18:12
Óðinn, ég skrapp í bæinn í hádeginu og brá heldur í brún því á hverju horni mátti sjá unglinga með Obama skilti hrópandi á akandi vegfarendur Minnti mann óþyrmilega á "Hitler Youth" Því miður er hægt að hafa mikil áhrif á fólk með tómu tali en ég vona bara að skynsemin fái að ráða hér.
Erna Hákonardóttir Pomrenke, 4.11.2008 kl. 19:30
Það hefur öugglega verið talsvert álag að fylgjast með þessu, keppnin í þessum málum er svakaleg allsstaðar, og miklir peningar lagðir í þetta. Verst ef reiði brýst út hjá unga fólkinu.
Sólveig Hannesdóttir, 5.11.2008 kl. 13:54
'Eg er rosalega fegin að þetta er yfirstaðið og maður er laus við allar sjónvarps auglýsingarnar og lætin í kringum þessar forseta kosningar. Ég man ekki eftir að hafa séð eins mikla hörku eins og maður sá nú. McCain var orðin peninga lítill, en Obama virtist eiga nóg enda er talið að hann hafi fengið mikið fé erlendis frá. Það er verið að segja að það sem réði úrslitunum fyrir Obama er að mikill fjöldi ungs fólks og eins minnihluta hópar mættu á kjörstaði, fólk sem venjulega lætur síður sjá sig í kosningum.
Erna Hákonardóttir Pomrenke, 6.11.2008 kl. 03:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.