Laufsuga

Ég bý í gamalgróinu hverfi sem var áður skóglendi. Þegar byggingar framkvæmdir hófust fyrir næstum 40 árum var reynt að fjarlægja aðeins þau tré sem með þurfti og húsunum síðan "plantað" inn á milli. Þetta gefur hverfinu mikinn sjarma enda eru tréin stór og tignarleg. Þau skýla húsunum fyrir sterkri sumarsólinni og gera það að verkum að við þurfum ekki að nota loftkælinguna eins mikið. Bílnum mínum legg ég í innkeyrslunni í skugga trjánna og er alveg ótrúlegt hversu svalt og gott hitastigið helst í honum. Það er fátt sem mér þykir verra en að þurfa að fara inn í bullandi heitan bíl í mikilli hitasvækju. Eins mynda trén mikið skjól gegn vindum enda alltaf blíða í garðinum mínum.

Á haustin skarta þau glæsilegri litadýrð sem á engan líka. Laufin taka að falla til jarðar í þúsundatali þar til þau mynda þykkt teppi yfir jörðinni. Vinnan við að hreinsa garðinn á vorin getur verið "bakbrjótandi" og fyllt fleiri fleiri ruslapoka. Það er ekki leyfilegt að henda grasi, laufi né trjágreinum í ruslið því þetta verður allt að fara í sérstaka stóra þykka bréf poka og allt er sent í endurvinnslu. 100_0903      100_0898      100_0899       100_0905

'A haustin á meðan laufin falla af trjánum býður bærinn upp á sérstaka laufsugu þjónustu. Húseigendur raka laufunum saman og  þau eru sett út við vegakantinn. 'A nokkurra vikna fresti fram að jólum kemur laufsugan og hreinsar laufhaugana upp. Sugan mylur laufið niður og þetta er geymt í haug þar til það verður aftur að mold með tímanum. Á vorin býður bærinn  fólki upp á að koma og sækja ókeypis mold sem hefur verið unnin úr því efni sem kom úr görðum íbúanna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Greinilega sniðugra kerfi en hjá Sóley systurdóttur minni í Fort Collins í Colorado, þar sem nágranninn er að ,,ryksuga" garðinn sinn með háværri en afkastalítilli laufsugu allan liðlangan daginn og helst um helgar ;-)

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 24.11.2008 kl. 17:57

2 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

hæ Anna. Hlýtur að hafa verið mikil litadýrð þegar þú varst þarna í haust. Ég kannast nú líka við þessa lauf blásara sérstaklega um helgar. Þá má oft sjá húseigendur arkandi um með blásara á öxlinni og blása öllu niður á götu. Eiginkonan stendur til hliðar með hrífuna  og passar upp á að húsbóndinn "does a good job"

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 24.11.2008 kl. 18:19

3 Smámynd: Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir

Nú skil ég hvaða laufhaugar þetta eru við gangstéttarnar. Frábær samvinna þar á ferð.

Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 25.11.2008 kl. 02:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 32812

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband