31.12.2008 | 16:06
Gleðilegt ár
Ég bjó í sama húsinu við Fjólugötu frá því ég var 7 ára gömul og þar til ég gifti mig og flutti að heiman eða í samtals 15 ár. Fjólugatan er yndisleg gata að búa við og nágrannar okkar voru allir gott fólk. Fullorðna fólkið heilsaðist en fór síðan sína leið. Pabbi tók ofan fyrir frúnum og bauð góðan daginn. Ég man ekki til þess að fólk staldraði við út á gangstétt til að spjalla um daginn og veginn né að börnum hafi verið yfirleitt heilsað þegar við mættum fullorðna fólkinu. Fólk var sennilega meira samansaumað í þá daga. Auðvitað áttum við systkinin okkar vini og suma held ég enn sambandi við eftir 32 ára búsetu erlendis.
Tölvuvæðing og Internetið hefur breytt samskiptum manna. Internetið gerir það auðvelt að vera í stöðugu sambandi við vini okkar með tölvupósti og á Facebook. Við bloggum um skoðanir okkar af frjálsum vilja, setjum inn færslur hjá fólki sem við vitum engin deili á og tökum við kommentum frá bloggurum og bloggvinum, sumum sem við höfum aldrei séð, allt bara sjálfsagður hlutur og kannski vegna þess að við getum varið okkur á bak við skerm.
Hverjum dytti í hug að taka allt í einu upp á því að ganga upp að blá ókunnugri manneskju í Bankastrætinu og gefa viðkomanda álit sitt á hinu eða þessu. Einkvað smá skrýtinn þessi, myndi maður hugsa.
Það er einmitt þetta sem er svo heillandi við bloggið, það tengir okkur saman því við erum öll "systkini" í augum Guðs. Við getum hughreyst hvort annað og sent góða og jákvæða strauma. Við þurfum öll á því að halda. 'Eg hef áður skrifað um vísindamanninn Randy Paush sem dó fyrr á árinu. Þegar hann var barn kvartaði hann yfir fótbolta þjálfaranum sem honum fannst vera of afskiptasamur og stundum dómharður. Randy benti á að þegar fólk hættir að "skipta sér að" hættir að leiðbeina eða krítesera er það í rauninni merki um áhugaleysi gagnvart viðkomanda. Haldið því áfram að blogga og verið góð við hvort annað. Þakka allar heimsóknirnar á árinu og kommentin.
Ég óska ykkur öllum gott og gæfuríkt komandi ár.
!!GLEÐILEGT ÁR !!
Um bloggið
Hitt og þetta
Nýjustu færslur
- 1.1.2012 Ísold Ylfa nýjasta stjarnan
- 7.9.2011 Gott að fá samkeppni
- 4.1.2011 Íslandsvinur?
- 9.12.2010 Ósvífnir óþokkar
- 11.11.2010 Ekki felldi ég karlinn minn....
- 25.10.2010 Jafnrétti ?
- 17.10.2010 Trú og glaðlyndi
- 14.10.2010 Dagurinn sem heimurinn stóð kyrr.
- 26.8.2010 áhrif lyfja?
- 17.8.2010 Og hvað ætlar Icelandair að gera?
- 6.8.2010 Af hverju NY?
- 5.8.2010 Bíll fyrir blinda
- 12.11.2009 Fólk þarf að gera sér grein fyrir hversu alvarlegt þetta er.
- 3.6.2009 haga sér eins og óþekk smábörn
- 19.4.2009 Ekki má gleyma skotárásinni í Va.Tech og nýlega var nemandi ...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 33031
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sem barni var Fjólugatan ævintýri líkust. Kom oft í hvíta húsið á horninu með torfþakinu, alltaf fannst mér vera sól á Fjólugötunni. Kærar kveðjur til þín, og takk fyrir þennan pistil. Gleðilegt ár.
Sólveig Hannesdóttir, 31.12.2008 kl. 17:02
jahá, þú hefur lag á að gera mig forvitna. Ekki ert þú Ásta sem bjóst á horninu á Sóleyjargötunni og Njarðargötunni? Ég hef á tilfinningunni að þú veist að Hvíta húsið á horninu með torfþakinu byggði afi minn Jóhann Kristjánsson byggingarmeistari og þar bjuggu afi og amma og síðan við. Fjólugatan var yndisleg garðarnir draumaparadís fyrir okkur börnin og svæðið allt í kring.
Gleðilegt ár kæra vinkona
Erna Hákonardóttir Pomrenke, 31.12.2008 kl. 17:48
Ég sá þessar götur í einhverju sérstökum ljóma, kannske vegna þess að þær voru svo miklu ofar mínu húsnæði. En ég verð að hugsa töluvert aftur í tímann hvað það var, og hvaða fólk það var sem dró mig þangað, það var eitthvað mjög gott fólk, ég ætla að rifja það upp.
Ég er svo sannarlega sammála þér með bloggið, það fær mig alla vega til að rifja upp ótrúlegustu hluti, ég er búin að mæta mörgum manninum og konunni hér á blogginu, og sem fær mig til að hræra upp í mínum annars vanmáttuga heila.
Sólveig Hannesdóttir, 2.1.2009 kl. 00:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.