Færsluflokkur: Bloggar
28.10.2008 | 20:09
Lítil þjóð með risa hjarta
![]() |
Siðferðileg skylda að hjálpa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.10.2008 | 16:22
Kynferðisáreitni kennara
Þegar dóttir mín var í sjötta bekk (11 ára) ákvað hún að fara í inntöku prufu í skóla hljómsveitina okkar. Allt gekk mjög vel. Kennarinn var mjög hrifin af hversu létt hún fór með flautuna (sem hún hafði aldrei spilað á) og sagði að hún ætti endilega að læra að spila á Horn í staðinn því hún hefði mikla hæfileika og flautan væri of auðveld fyrir hana. Mr. J eins og við skulum kalla þennan kennara fór að sýna henni mikinn áhuga og virtist vilja allt fyrir hana gera, stundum of mikið. Fyrsta árið leið og næsta ár (7. bekk) er hún með annan kennara Mr. D sem okkur líkaði frábærlega við. Henni er boðið að spila með US Navy Band sem er mjög mikill heiður. 'Eg vildi svo óska að hún hefði getað haldið áfram með Mr. D en í 8. bekk lendir hún aftur hjá fyrsta kennaranum, Mr. J Mr. J fer að verða mjög ágengur og vill að hún verði eftir í skólanum að loknum skóla degi til að æfa. Verð að taka það fram að það var ekki bara hún heldur hópur að krökkum þarna. Svo fer dóttir mín að kvarta yfir honum en getur ekki komið orðunum að því hvað það sé nema að henni líður ekki vel í návist þessa manns. Börnin mín spiluðu öll fótbolta eins og börn Mr. J og við sáum hann oft á fótboltavellinum. Reyndar voru þarna einir 15 leikvellir svo þetta var mjög stórt svæði en alltaf kom þessi maður til okkar og spurði hvernig gengi og svo fram eftir götunum. Manninum mínum fannst Mr.J sérstakur kennari og frábært hvað hann sýndi mikinn áhuga á börnunum. Mér stóð ekki á sama með þennan mann. Hann var sífellt að hæla henni, ekki bara fyrir árangur með skólahljómsveitinni heldur reyndi hann að taka hana afsíðis til að segja henni hversu fallegt hár hún hafði og hversu vel það klæddi hana að vera í pilsi og þess háttar. Auðvitað er ekki hægt að kæra fólk fyrir að gefa öðrum hól, en ég talaði við skrifstofuna og lét þau vita hversu illa henni leið í návist hans. Hún heldur áfram í skólahljómsveitinni í 9. bekk nema að þegar hann fer að tala um að hann ætli að mæta á nemenda sýningu sem ballett skólinn hennar hélt árlega (ekki tengdur gagnfræðaskólanum) kom svo mikill óhugur í hana að hún hætti í skólahljómsveitinni. Ég hefði svo gjarnan viljað að hún spilaði áfram, en það var bara ekki hægt á meðan þessi maður var þarna. Þessi maður tók ánægjuna algerlega frá henni að vera með í hljómsveitinni. Ég veit um fjöldann allan af börnum sem hættu vegna þess hvernig hann hagaði sér. Mr. J reyndi allt hvað hann gat til að fá hana aftur í hljómsveitina og vildi fá að vita hvort hún myndi koma aftur ef hann segði henni að hann væri að hætta að kenna. Hann hringdi meir að segja hingað heim til að reyna að fá okkur til að tala hana til.
Það sem skeður síðan er að dóttir mín útskrifast úr 12 bekk og byrjar í háskólanámi. Sl Febrúar er 15 ára dóttir Mr. J með "sleep over" heima hjá sér og segir vinkonan að hún hafi vaknað við það að Mr. J er komin inn í svefnherbergi til hennar og með höndina á rassinum á henni. Foreldrar telpunnar kæra atvikið og þegar þetta fer í blöðin fer allt af stað og strax komnar 6 kærur um óviðeigandi hegðun gagnvart ungum stúlkum (12 -13 ára) inn á heimilinu hans. Síðan kemur fram að hann hafði víst fyrst verið kennari í Michigan fylki og var ákærður fyrir kynferðislegt ofbeldi gagnvart ungum stúlkum árið 1982. Þegar hann svo sótti um stöðu hérna í Virginíu laug hann á sakavottorði, en nú á að dæma hann 15 desember og vonandi fær hann aldrei að koma nálægt skólum aftur.
Ég er mjög fegin að ég hlustaði á dóttir mína og var búin að tilkynna hegðun kennarans til skóla yfirvalda áður en þetta kom á yfirborðið. Þegar börnunum okkar líður illa erum við skild til að hlusta á þau. Börnunum okkar má aldrei finnast að þau hafi engan til að snúa sér til. Það er mikill óhugur í okkur öllum yfir því að þessi maður er búin að vera í skólanum okkar sem vel virtur og velliðin kennari í yfir 20 ár.
Slóð inn á fréttina http://fredericksburg.com/News/FLS/2008/102008/10162008/418318
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.10.2008 | 16:25
Spurning um að missa brjóstið
Í gærkveldi fór ég á upplýsingafundi um brjóstkrabbamein sem haldinn var á sjúkrahúsinu hér í bæ. Þarna voru samankomnir brjóst skurðlæknar, krabbameinslæknar, lyfjalæknar, næringarefnafræðingar og fleiri sem sátu fyrir svörum.
Á tímabili var reynt eins og hægt var að reyna að "bjarga" brjóstinu með því að reyna að fjarlægja aðeins krabbann í því og senda sjúklinginn síðan í geisla meðferð eða lyfja meðferð. Það er athyglisvert að nú er að koma fram að konur sem greinast með krabbamein í brjósti virðast vera betur settar með að láta fjarlægja brjóstið eða jafnvel bæði brjóstin heldur en að láta fjarlægja aðeins krabbameinið. Hættan á að krabbinn taki sig upp aftur minkar til muna við þetta. Eins eru tengsli á milli brjóst krabbameins og krabbamein í eggjastokkum og því farnast konum mun betur eftir að eggjastokkar hafa verið fjarlægðir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.10.2008 | 15:33
getur verið að þeir séu komnir með áhyggjur?
Voru þeir (Bandaríkjastjórn) ekki búnir að hafna að hjálpa okkur? Hvað kemur þeim þá við hvað er í gangi á Íslandi nema að þeir séu orðnir hræddir að missa okkur í Rússaveldi og eru farnir að sjá að sér.
![]() |
Fundur boðaður á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2008 | 13:15
ekki rétt með farið
![]() |
Palin keypti föt fyrir 17 milljónir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.10.2008 | 15:42
Broslegur Breti

![]() |
Nakinn þjófur fastur í reykháfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2008 | 21:25
alltaf verið hlynntir Demókrötum
![]() |
Bandarísk stórblöð styðja Obama |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.10.2008 | 19:33
Við getum öll hjálpast að
Bréfið hér fyrir neðan gengur nú um Internetið og get ég ekki verið meira sammála svo ég ætla að birta það hér á síðunni minni. 'Eg vil bæta við að nú er einnig tími til komin að skerða notkun á krítar og debet kortum. Ekki að eyða umfram það sem við eigum. Ef ekki er peningur í buddunni eigum við sennilega ekki fyrir hlutnum.
Kæra samstarfsfólk og aðrir Íslendingar!
Þegar illa árar í peningamálum hjá okkur Íslendingum verðum við öll að
leggja okkar að mörkum til að ná jafnvægi aftur. Mikill gjaldeyrisskortur
hrjáir okkur og það sem við getum gert til að hjálpa til við að rétta
skútuna af aftur er að breyta okkar neyslumynstri, draga úr öllum óþarfa og
kaupa íslenskt. Við verðum að byrja á þessu strax og megum engan tíma missa.
Einhver mundi segja að allt sé í raun útlent þó framleitt sé á Íslandi en
það sparar samt að kaupa það sem er framleitt á Íslandi þó hráefnið sé flutt
inn þar sem mun ódýrara er að flytja inn hráefni en fullunna vöru. Einnig
styrkjum við íslenskan iðnað og höldum störfum í landinu.
Stöndum saman og látum ekki einhverja óvildarmenn hlakka yfir óförum okkar
Íslendinga. Kaupum íslenskt, íslenskar bækur, - kjöt,kartöflur -osta og
fisk. Nú er verið að kvetja fólk til að hamstra vörur. Kæri Landi! það er
það vitlausasta sem við gerum. Hvað erum við bættari með að vera með full
búr af mat ef nágrani okkar sveltur? Haldið ró ykkar og eyðið ekki peningum
í vitleysu með hamstri. SPARIÐ, SPARIÐ SPARIÐ!!!
Þessar línur hér á undan sendi ég fyrir helgi til nokkurra vinnufélag í
gamni mínu en hef nú ákveðið að senda þetta til ykkar allra þar sem í ljósi
síðustu atburða tel ég enn brýnna en áður að við öll tökum okkur tak,
stöndum saman og spörum hinn geysi dýrmæta gjaldeyri og styrkjum íslenskt og
íslenskan iðnað. Við munum, ef við stöndum saman, ná að rífa okkur okkur upp
úr þeim öldudal sem við erum stödd í mun fyrr ef við bendum ekki bara á
næsta mann og segja að hann geti sparað en ekki ég.
Kæru vinnufélagar. Endilega sendið svona bréf (ekki þetta bréf endilega) til
allra sem þið þekkið og náum upp stemningu.
Áfram Ísland og Íslendingar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.10.2008 | 03:55
Go Sarah go!

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
2.10.2008 | 17:43
Allt getur gerst
Ekki ætla ég að fara að missa svefn yfir þessari frétt enda er vitað mál að Bandarískir fjölmiðlar eru Obama mjög hliðhollir. Hlakka til að sjá kappræðuna á milli Palin og Biden í kvöld. Mig langar til að benda á ágæta grein sem birtist á bbc. http://news.bbc.co.uk/2/hi/americas/7643879.stm
Fyrir nokkru var verið að ræða um verðmæti kosningar "hnappa" í sjónvarpinu. Td. hnappur með mynd af frambjóðandanum er verðmætari en hnappur með aðeins slagorði. Joe Biden var á blaðamannafundi fyrir nokkru og lét hafa það eftir sér að Hillary Clinton hefði verið betri kostur fyrir Obama heldur enn hann sjálfur. Nokkuð furðulegt af frambjóðanda að segja svona og vakti upp þá umhugsun hvort Obaman væri í þann veginn að skipta um förunaut. Ef úr því hefði orðið og Biden dottið út, hefðu hnapparnir með Obama og Biden orðið verðmeiri og eftirsóttir fyrir safnara.
![]() |
Palin fellur í áliti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Hitt og þetta
Nýjustu færslur
- 1.1.2012 Ísold Ylfa nýjasta stjarnan
- 7.9.2011 Gott að fá samkeppni
- 4.1.2011 Íslandsvinur?
- 9.12.2010 Ósvífnir óþokkar
- 11.11.2010 Ekki felldi ég karlinn minn....
- 25.10.2010 Jafnrétti ?
- 17.10.2010 Trú og glaðlyndi
- 14.10.2010 Dagurinn sem heimurinn stóð kyrr.
- 26.8.2010 áhrif lyfja?
- 17.8.2010 Og hvað ætlar Icelandair að gera?
- 6.8.2010 Af hverju NY?
- 5.8.2010 Bíll fyrir blinda
- 12.11.2009 Fólk þarf að gera sér grein fyrir hversu alvarlegt þetta er.
- 3.6.2009 haga sér eins og óþekk smábörn
- 19.4.2009 Ekki má gleyma skotárásinni í Va.Tech og nýlega var nemandi ...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 33153
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar