Færsluflokkur: Bloggar
18.11.2008 | 15:29
bölvun sjónvarpsins
Óánægðir horfa meira á sjónvarp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.11.2008 | 14:14
fallegt en kólnandi
Það þarf ekki mikið til að veðrið verði að aðal umræðuefninu í Bandaríkjunum. Eins og má búast við á þessum árstíma fer hitastigið fallandi. Hitinn hér var um frostmark í morgun, hlýrra heima á Íslandi heldur en hérna samkvæmt Al Roker. Mikil tilhlökkun hjá sumum á höfuðborgarsvæðinu því snjókorn heyrðist í veðurspánni. Blessað kornið hefur ekki látið sjá sig en aftur á móti hringdi dóttirin sem er í VA.Tech (fjögurra tíma keyrsla fyrir sunnan okkur) seint í gærkveldi og sagði að þar væri um 3sm snjór eða nóg til að gera snjóbolta enda voru nemendurnir úti í snjókasti. Ameríkanar eiga það til að gera mikið veður út af veðrinu og velta sér upp úr veðurspánni dag eftir dag sem síðan verður oft að engu. Það sem þeir kalla "snowstorm" kemur okkur bara til að brosa út í kantinn.
Kuldinn getur verið mikið vandamál fyrir marga og á Washington D.C. svæðinu einu er talið að um 12.000 manns séu heimilisllausir þar af 3.000 börn. Ástæðurnar geta verið margar, en oft á vanheilsa á geði, heilsuskortur, skortur á menntun og atvinnuleysi stóran hlut í þessu skelfilega ástandi. Síðan er það gamla fólkið sem á ekki aur til að kynda húsakynnin sín. Það er svo margt sem við Íslendingar eigum að vera þakklát fyrir, hlutir sem okkur finnst bara sjálfsagðir. Jú ég missti öll hlutabréfin mín sem var fjandi skítt og ég missti heilmikið úr sjóð 9 en ég þarf ekki að sitja með teppi yfir mér inn í pappakassa á nóttinni eða á járn grind á gangstéttinni þar sem útblásturinn af nærliggjandi húsum blæs út í formi gufu. Ég þarf ekki að gefa börnin mín í burtu af því ég á ekki pening til að fæða þau og klæða. Nei ég er vel sett eins og svo margir aðrir Íslendingar. Við erum bara svo góðu vön.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.11.2008 | 17:10
Jóla basaar í Washington D.C.
Íslendingafélagið í Washington D.C. hélt sinn árlega "Holiday Bazaar" sl. laugardag. Þetta er mikill tilhlökkunar viðburður sem flestir Íslendingar á svæðinu reyna að missa ekki af enda oft eini sénsinn að kaupa sér íslenskar matvörur, sælgæti og ullarvörur. Eldhús dívurnar voru með girnilegt snittubrauð, brauðtertur og pönnsur í sölu og hvað er betra en að fá tækifæri til að setjast niður með landanum yfir kaffibolla og rjómapönnsu eins og td henni Ólöfu blogg vinkonu sem var einnig mætt á staðinn. Sjálf fékk ég mér sneið af hangikjötsbrauði og brauðtertusneið, hef ekki hugmynd um hvað maðurinn minn fékk sér því ég var alltof upptekin af brauðtertunni minni. Keypti síðan poka fullan af kleinum, lakkrís, og rúgbrauði sem hún Peta bakaði fyrir okkur. Ég saknaði þess að fá ekki Rís súkkulaði stengur sem áttu að fara með í jólapakkana. Á leiðinni heim stoppuðum við í Whole Foods og keyptum nokkur stikki af íslensku smjöri, skyri og Síríus bökunnar súkkulaði.
Það vill svo skemmtilega til að Today show á NBC er með Íslands kynningu þessa viku. Það sem ég hef séð hefur Al Roaker verið með sérstaklega fróðlegt og jákvætt efni um Ísland. Hér eru nokkrar myndir og fleiri hér til hliðar. http://today.msnbc.msn.com/id/26184891/vp/27765494#27765494
http://today.msnbc.msn.com/id/26184891/vp/27765494#27767282
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.11.2008 | 13:10
Sinfóníu tónleikar
Skrítið hvernig atburðarrás lífsins getur verið. Stundum þegar okkur finnst allt ganga á afturfótunum og allt mjög öfugsnúið er eins og dyr opnist sem við annars hefðum ekki tekið eftir og jafnvel stærri og betri tækifæri blasa við okkur.
Hann Erik minn er búin að vera í einka fiðlutímum frá því hann var 11 ára og síðan hefur hann spilaði með sinfóníuhljómsveit barnaskólans og síðan með gagnfræðaskólanum. Lengst af var hann með sama einkakennarann en í fyrra þurfti hann að skipta um kennara þar sem kennarinn hætti að taka í einkatíma vegna anna. Kennarinn sem okkur var bent á reyndist ekki vel. Þegar nýtt skólaár byrjaði sl. haust áttuðum við okkur á því að það var ekki mögulegt fyrir hann að spila lengur með skólahljómsveitinni því þýsku tímarnir hans stönguðust á við æfingartíma hljómsveitarinnar. Þetta voru mikil vonbrigði, hvorki hægt að spila með skólahljómsveitinni og engin einkakennari. Sjálfur var hann mjög ergilegur og ég gat ekki hugsað mér að láta 5 ára nám enda svona. Það var mikið basl og vesen að finna annan kennara. Skólaárið byrjað og yfirfullt hjá öllum kennurum. Mér var það mikið í mun að hann skildi fá að halda áfram að spila svo kunnáttan dytti ekki niður. Ég hafði samband við sinfóníuhljómsveit bæjarins okkar og Erik var boðið að taka inntökupróf og hananú komst inn. Þá var hálfur sigurinn unnin. Kona sem ég þekkti sem er í sinfóníunni gaf mér nafn á kunningjakonu sinni sem tekur nemendur heim til sín í tíma. 'Eg hafði samband og hún bauð okkur að koma í viðtal. Hún talaði heillengi við Erik, vildi ma. fá að vita hvað hann ætlaðist til að fá út úr tímunum, hver framtíðaráform hans væru og framvegis. Síðan lét hún hann leika á fiðluna og bauð hann velkomin. Þetta var nú aldeilis mikill léttir. Sl. laugardagskvöld lék hann síðan sína fyrstu tónleika með sinfóníuhljómsveit bæjarins undir stjórn James Villani. Einleikari á tónleikunum var Suður Aferíski lágfiðluleikarinn Heleen Du Plessis. Tónleikarnir voru haldnir í stórri Methótista kirkju hér í bæ og var fullt hús. Minn ungi herra var eitt bros frá eira til eira eftir tónleikana. Yngsti hljómlistamaðurinn í hópi fullorðinna. Frábært hjá honum og góð lífsreynsla. Ég læt nokkrar myndir fylgja með hér til hliðar.
Svo vildi svo skemmtilega til að vinkona mín hún Katharine Nace var með málverkasýningu við inngang kirkjunnar þetta sama kvöld svo ég varð að smella einni mynd með. Hún stendur fyrir miðri myndinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.11.2008 | 14:20
varla hefur liktað vel hjá henni
Þetta er mjög sorglegt. Að afþakka umönnun um þe. þvott og þess háttar er eitt, en hvernig stendur á því að það var ekki skipt um rúmföt hjá konunni? Ekki skeði þetta á nokkrum dögum eða viku. Ef hún greri föst við rúmdýnuna, var þá ekkert lak hjá henni? Hvernig getur svona skeð? Er legusjúklingum ekki snúið?
Gréri föst við dýnuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.11.2008 | 12:48
Obama lofsöngur
Það verður erfitt fyrir Obama að dansa í gegnum vandamálin sem blasa við honum, en ég stóðst ekki mátið og verð að skella þessu skemmtilega myndbandi inn. Kemur öllum í gott skap.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.11.2008 | 16:44
Múgsefjun
Obama heimsótti Manassas í Virginia í gærkveldi og er talið að um 85.000 manns hafi verið á staðnum. Ég get sagt ykkur að ég bý í ca. 5km fjarlægt frá fundarstaðnum og skríls lætin voru svo mikil og hátalararnir svo hátt stilltir að við gátum heyrt það sem fram fór. Alger múgsefjun. Ekki vildi ég verða á þeirra vegi ef Obama verður ekki fyrir valinu. Fjölmiðlarnir halda áfram að hafa áhrif á fólk og var byrt stór mynd í blaðinu af Obama á kosningarstað í morgun. Grein úr Manassas dagblaði hér fyrir neðan og síðan er smá kosningar fróðleikur frá Yahoo þar fyrir neðan.
http://www.insidenova.com/isn/news/politics/article/obamas_final_virginia_rally_draws_85000/23889/
http://news.yahoo.com/s/ynews/ynews_pl126
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.10.2008 | 00:14
Búin að fá upp í kok
Þið heima megið bara vera þakklát fyrir að vera ekki hérna Vestan hafs núna þar sem kosningarfréttum er troðið niður í kok á okkur. Kosningar baráttan er búin að standa í tvö ár og nú í endasprettinum mætti halda að Barack Obama sé búin að kaupa allar sjónvarpsstöðvarnar. Það er ekki nokkur friður fyrir manninum. Sama hvaða sjónvarpsstöð, frétta tíminn snýst um Obama og auglýsingarnar hans virðast koma á fimm mínútna fresti. Hann lét seinka World Series um hálftíma í kvöld því hann hefur svo mikla þörf á að mala og mala.
Nú væri gott að geta ýtt á "Fast Forward" til 5 nóvember. Geta sleppt þessum dögum fyrir kosningarnar sem stjórnast af Obama. Það má segja að Repúblikanaflokkurinn hefði getað fundið betri mann en McCain, en ég held að fólk geri sér enga grein fyrir hvað það er að bjóða yfir sig ef Obama kemst í Hvíta Húsið.
McCain og Obama berjast hart á lokasprettinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.10.2008 | 12:37
Nutu góðs af okkur.....
Það var nógu gott fyrir þá að vera á Íslandi á meðan allt gekk vel og hlaupa síðan á brott og jafnvel frá skuldum þegar illa gengur. Hvernig væri að hægja á innflutningi fólks vanda til með valið.
Pólverjar flykkjast heim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Hitt og þetta
Nýjustu færslur
- 1.1.2012 Ísold Ylfa nýjasta stjarnan
- 7.9.2011 Gott að fá samkeppni
- 4.1.2011 Íslandsvinur?
- 9.12.2010 Ósvífnir óþokkar
- 11.11.2010 Ekki felldi ég karlinn minn....
- 25.10.2010 Jafnrétti ?
- 17.10.2010 Trú og glaðlyndi
- 14.10.2010 Dagurinn sem heimurinn stóð kyrr.
- 26.8.2010 áhrif lyfja?
- 17.8.2010 Og hvað ætlar Icelandair að gera?
- 6.8.2010 Af hverju NY?
- 5.8.2010 Bíll fyrir blinda
- 12.11.2009 Fólk þarf að gera sér grein fyrir hversu alvarlegt þetta er.
- 3.6.2009 haga sér eins og óþekk smábörn
- 19.4.2009 Ekki má gleyma skotárásinni í Va.Tech og nýlega var nemandi ...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar