Færsluflokkur: Bloggar

Bleikar slaufur og bleikir hárlokkar

 

       479783                                    pink ribbon                                      479783                

Októbermánuður er tileinkaður brjóstkrabbameini og bleikar slaufur eru seldir víða um heim til styrktar krabbameins rannsóknum og til að minna okkur á að fara reglulega í skoðun og láta fylgjast með okkur. Ein snyrtistofan  hér í bæ hefur boðið upp á að setja bleikan hárlokk (hair extention) í viðskiptavini fyrir $10 til styrktar krabbameins rannsóknum.  Snemma á síðastliðnu ári greindist ég með brjóstkrabbamein. 'Eg tel það hafi bjargað lífi mínu að ég var send í STAFRÆNA RÖNTGENTÆKJA myndatöku.  6 mánuðum áður hafði ég farið í venjulega röntgenmyndatöku og við þá skoðun kom ekkert óeðlilegt fram.Ég var heppin að krabbameinið náðist á byrjunarstigi og var ekki komið á það stig að vera ber eða hnútur heldur krabbameins frumur víðsvegar í brjóstinu.  Stafræn röntgentæki "sjá betur" í gegnum þykk brjóst og eru því oft betri sérstaklega fyrir yngri konur.  Röntgen tæknirinn sá strax að ekki var allt með feldu. Á meðan ég stóð þarna með brjóstið stíf klemmt sagði hún mér að hún yrði að skoða enn betur í sónar (ómtæki) og sagði mér að ég yrði að leita til skurðlæknis sem allra fyrst.  Helst hefði mig langað til að kannast ekkert við að eiga þetta brjóst og flýta mér út og eins langt frá því  og hægt væri. Sá var ekki kosturinn. Krabbameinið var á fleiri en einum stað og næst var ég send nokkrum sinnum  í MRI og brjóstið "kortalagt" og mælt nákvæm hvar þessar  krabbameins frumur voru staðsettar.  Eftir  tvær  skurðaðgerðir til að reyna að fjarlægja krabbameinið var það ráð tekið að fjarlægja brjóstið með þriðju aðgerðinni. Þetta er ekki óalgengt með krabbamein á byrjunarstigi því ekki er um sjáanlegan hnút að ræða og þvi oft erfitt að "sjá" jaðarinn á krabbameins frumunum.  Í Bandaríkjunum er talið að ein af hverjum átta konum greinist með brjóst krabba á lífsleiðinni. Búist er við að á árinu 2008 bætist við 182.460 nýjum tilfellum hjá konum og 1.990 hjá körlum. Við megum ekki líta framhjá þeirri staðreynd að karlmenn geta fengið krabbamein í brjóstið.

 100_0750  Smellið á til að sjá bleika lokkinn minn betur.

Á síðastliðnum 25 árum hefur brjóstkrabba tilfellum fjölgað um 30% hjá vestrænum þjóðum sem stafar af auknu eftirliti og greiningu krabbameins  á byrjunarstigi. Þar af leiðandi hefur dánartíðni lækkað. Á árunum 2000-2004 fækkaði greindum brjóstkrabbameins tilfellum um 10% í Bandaríkjunum  sem má þakka minnkun hormóna notkunar kvenna.

Oft finna konur sjálfar ber í brjósti. Reglan hér í Bandaríkjunum er að konur 40 ára og eldri fari í mammogram (brjóst myndatöku) á hverju ári .

Það er margt sem við getum gert til að minka líkurnar á því að fá krabbamein eins og td. borða hollan mat sérstaklega grænmeti og ávexti, draga úr neyslu á rauðu kjöti, reykja ekki, drekka í hófi og sem minnst,  hreyfing og varast að fitna.

Ég spurði föður minn einu sinni hvort hann hafi farið í blöðruhálskrabbameins skoðun. Hann sagði “nei, ég hef aldrei verið kallaður”. Ég vona svo innilega að fólk haldi ekki að það þurfi að fá boð til að fara í skoðun. Eftir fimmtugs aldur ættu allir karlmenn að fara í blöðruháls skoðun. Hvernig skildi standa á því að kvenfólk er kallað í krabbameinsleitarskoðun (legháls og brjóst) en ég veit ekki til þess að það sé nein skipulögð leitarskoðun hjá karlmönnum? Karlmenn leita síður til læknis en kvenfólk og því mjög mikilvægt að það sé náð til þeirra. Þegar krabbamein næst á byrjunarstig er það mun viðráðanlegri og batahorfur góðar.

Lesandi góður, spurðu móðir þína, systir eða dóttir hvort hún hafi farið í skoðun. Spurðu föður þinn, son eða bróðir hvort hann hafi farið í skoðun.

Lifðu vel.   

Hér eru góðar upplýsingar http://www.cancer.gov/cancertopics/types/breast 


mbl.is 40.000 bleikar slaufur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

lasinn læknir en bloggvinur bætti daginn

Í morgun ók ég niður á Georgetown University Hospital þar sem ég þarf að mæta til skurðlæknisins míns á 6 mánaða fresti í eftirlitsskoðun. Þegar þangað er komið er biðstofan sneisafull af fólki. Ég geng upp að afgreiðsluborðinu og innrita mig og þá segir ritarinn að Doktorinn minn sé á eftir áætlun og hvort mér væri sama þó ég sæi einhvern annan lækni. Síðan bætir hún við að doktorinn hafi  veikst og liggi fyrir, en ætli að fara heimleiðis þegar svimi líði hjá. Ég varð að bíta í það súra eppli því hvað er annað hægt að gera?  Ekki ætla ég að fara að láta líða yfir doktorinn. Ég var búin að panta þennan tíma fyrir 3 mánuðum en læknar eiga það til að veikjast eins og við hin. Reyndar alveg merkilegt að þeir skuli ekki vera sílasnir þar sem þeir eru daglega innan um alla þessa vesalings sjúklinga. Ég sá síðan staðgengil læknisins míns sem var ung og falleg kona. Hún vildi fá mig aftur eftir 3 mánuði eftir að ég hef farið í mammogram (brjóstaexray). Ekki get ég kvartað yfir því að ekki sé fylgst vel með mér þarna á Georgetown. Allt til fyrirmyndar á þeim bæ.

Eftir að búið var að ganga frá öllu á Georgetown og panta tíma fyrir næstu heimsókn brá ég mér yfir til hennar Ólafar bloggvinkonu minnar sem er guðfræðinemi í Washington D.C. Hentar mjög vel að fara til hennar frá Georgetown. Heimsóknin var sérstaklega ánægjuleg og gaman að kynnast Ólöfu. Hér er mynd af okkur bloggvinkonunum.

100_0673


Getur varla verið íslenskara

Eitt af því fyrsta sem ég læt verða af að gera á haustin er að setja sængurnar aftur á rúmin því sumar mánuðir hér eru of heitir til sængur nota. Mikið lifandis ósköp er gott að kúra undir sæng enda sváfum öll yfir okkur fyrstu tvær næturnar með sængurnar aftur á.

Í dag var ekta íslenskt veður. Það hefur kólnað töluvert hjá okkur og seinnipartinn tók að hvessa og rigna. Ég dró pönnuköku pönnuna mína fram og gerði nokkrar pönnukökur handa syninum sem ég vissa að myndi gera mikla lukku. Í kvöld bíða sængurnar okkar og fátt er betra heldur en að kúra undir hlýrri sæng og hlusta á regnið berja á gluggana. Já heimurinn  fer á mis að þekkja ekki íslenskar pönnukökur og dún sængur.


Gleðilegt Haust

Gleðilegt haust. Í dag 22 september heldur  fyrsti dagur haustsins innreið sína. Víðsvegar um heim miðast árstíðarnar við sólstöðu eða jafndægur, ekki veðurfar. Árstíðarnar eru einnig allar jafnlangar og ná yfir 3 mánuði hver hvernig sem viðrar, nema á Íslandi. Þannig að sl. vor byrjaði þann 20 mars og stóð til 21 júní sem er fyrsti dagur sumars. Haustið byrjar ekki fyrr en 22 september og veturinn byrjar síðan ekki fyrr en 21 desember.Í Almanaki Háskóla Íslands  http://www.almanak.hi.is/     segir:  árstíðir, “tímaskeið sem árinu er skipt í eftir árlegri sveiflu veðurfarsins. Aðalárstíðirnar eru venjulega taldar tvær, sumar og vetur, og samkvæmt því er árinu skipt í íslenska misseristalinu  (-> tímatal, forníslenskt). Á mótum aðalárstíðanna eru svo tvær aukaárstíðir, vor og haust. Mörk þeirra hafa verið skilgreind á fleiri en einn veg. Er oft látið svo heita að þau séu við jafndægur og sólstöður. Nær þá vorið frá vorjafndægrum að sumarsólstöðum, sumarið síðan fram að haustjafndægrum, o.s.frv. Orsök árstíðaskiptanna er möndulhalli jarðar sem veldur því að norðurskaut og suðurskaut hallast að sól á víxl á göngu jarðar um sólina”. Við Íslendingar höldum upp á Sumardaginn Fyrsta,  fyrsta fimmtudaginn  eftir 18. apríl. Á síðu Veðurstofu Íslands segir að haldið sé upp á  Sumardaginn fyrsta  annan fimmtudaginn eftir Leonisdag (Leonisdagur er 11 apríl) sem er jafnframt fyrsti fimmtudagurinn eftir þann 18 apríl (þ. e. á tímabilinu milli 19.-25. apríl). Það er því ekki skrítið þó fyrsti sumardagurinn okkar sé oft hráslagalegur og gengur jafnvel á með éljum. Annarstaðar á norðurhveli jarðar er vorið rétt farið að láta sjá sig  og við á hjara veraldar erum að státa okkur af fyrsta sumardeginum. Það kemur svolítið spánskt fyrir sjónir að við nútíma Íslendingar miðum komu sumarsins við þennan Leonisdag sem var tileinkaður Leó mikla, páfa í Róm en hann dó árið 461. 

Til gamans má nefna að lægsti hiti sem mælst hefur á landinu á sumardaginn fyrsta (frá og með 1949) var í Miðfirði 21 apríl árið 1988 og mældist aðeins -18,2° og  í Reykjavík var sjódýptin 4 sentímetrar á sumardaginn fyrsta árið 1949. Í almanakskýringum Háskóla Íslands segir síðan: Vetrardagur, fyrsti, laugardagurinn að lokinni 26. viku (í sumaraukaárum 27. viku) sumars. Fyrsta vetrardag ber upp á 21.-27. október, nema í rímspillisárum: 28. október. Um eitt skeið (a. m. k. frá 1600 og fram yfir 1800) var venja að telja veturinn hefjast á föstudegi, en reglur þær sem nú er farið eftir í íslenska almanakinu, eru engu að síður gamlar, að líkindum samdar á 12. öld. Í gamla stíl (júlíanska tímatalinu) var vetrarkoman 10.-17. október ef miðað er við föstudag 

Bæði fyrsti sumardagur og fyrsti vetrardagur voru messudagar fram til ársins 1744.  


Palin-Clinton 2012 ?

Það hefur ekki borið mikið á Hillary Clinton eftir að hún féll frá sem forsetaefni Demókrata. Þó svo að Hillary Clinton hafi lýst stuðningi sínum við Barrack Obama og beðið aðdáendur sína um að styðja Obama í forsetakosningunum hefur hún sjálf legið lágt.

Væri það kannski henni til gæfu ef Obama  yrði ekki fyrir valinu að setjasð að í Hvíta Húsinu? Joe Biden er ekki vinsæll meðal kjósenda og á örugglega ekki eftir að gefa aftur kost á sér árið 2012 enda er karlinn orðinn lúinn.  Fylgi McCain hefur aftur á móti stór aukist með vali hans á Sarah Palin. Hann hefur yngst upp með þessa göfugu frú sér við hlið. Ég tel að almenningur beri meira traust til McCains sérstaklega eins og hvernig þetta ófremdar efnahags ástand er í dag. Obama mun hækka skattana, það gera Demókratar alltaf og eins og ástandið er í dag hefur almenningur ekki bolmagn til þess að þola hærri skatta. Nauðungar uppboð orðið daglegt brauð, vinnumissir og almenningur með verulegar áhyggjur af ástandinu.  

2012 verður spennandi ár í forseta kosningunum þar sem miklar líkur eru á að Hillary Clinton og Sarah Palin verða uppistandandi frambjóðendur flokka sinna í forseta kosningunum. art_palin_evan


mbl.is „Stjórn Palin og McCains"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Karla klósett

Ein blogg vinkona mín vakti upp þá spurningu hvers vegna við dömur erum tregar við að nota karlaklósettin.  Myndin hér fyrir neðan skýrir mitt svar betur en nokkurt orð getur gert. Annars væri gott ráð hjá körlum að hafa poka í vasanum með Cheerios hringjum og henda einum ofan í klósettið til að hafa einkvað til að miða á. Geta æft sig í tippa skyttu fimni FootinMouth

image001    Smellið á til að stækka myndina. Vel þess virði.


gúnguskapur í dómstólum

Hvernig er hægt að leyfa annarri þjóð (Noregur í þessu tilfelli) að vaða svona yfir okkur og hunsa íslenskan dóm? Hvaða máli skiptir það okkur hvaða reglur eru í gildi í Noregi eða annarstaðar í heiminum í máli um forráðarétt íslenskra þegna? Þýðir þetta að nú getur hver sem er flutt úr landi með börnin og látið breyta umráðarétt barnanna því íslenskir dómstólar eru linir og virðast ekki hafa bein í nefinu til að stöðva það sem ég myndi kalla mannrán. Ekki gott mál.

"Almenna reglan á Íslandi er sú að ef um barn yngra en 18 ára er að ræða þá þarf samþykki frá báðum foreldrum eða þá staðfestingu frá sýslumanni eða öðrum á því að viðkomandi foreldri sé með fullt forræði".


mbl.is Fluttur til Noregs án samþykkis móður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

mannvonska

Er maðurinn ekki heilbrigður? Þar sem vegurinn var í skipulaginu þegar hann fékk lóðina hefði hann kannski átt að íhuga betur um staðsetningu hússins.  Skil ekki hvernig hann getur leift sér að meina gömlu konunni aðgang að hennar eigin lóð.  Maður hefði vonast til að hámenntaður maður (tannlæknir) hefði aðeins meiri skinsemi heldur en að standa í því að hrella gamla konu og vinna spjöll á veginum.  Hegðun mannsins er fyrir neðan allar hellur. Skammarlegur sauður.
mbl.is Illvíg deila nágranna í Kjós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Super cool sticky notes

Mikið fjör á þessari skrifstofu og engin ástæða til að kvíða komu mánudagsins.  Sá þessa stórskemmtilegu menn í sjónvarpinu hjá mér í morgun. þið getið séð meir af þeim á www.eepybird.com   Skoðið myndbandið fyrst.


Mikil stemning hjá McCain og Palin

Obama er einfaldlega að missa stjórn á sjálfum sér og virðingu frá kjósendum.  Dónaleg framkoma hans og skítkast í garð Söru Palin hefur lagst illa í alla hvort sem það eru demókratar eða repúblikanar. Hann lagði sig lágt þegar hann líkti  henni við svín með varalit. Hann sér augsýnilega mikið eftir því að hafa sniðgengið Hillary Clinton

Sara Palin aftur á móti hefur unni hjarta þjóðarinnar og nýtur geysilega mikilla vindælda. 'Eg fór á rallý með McCain og Söru Palin í gær í Fairfax.  Fyrst átti að halda fundinn í gagnfræðaskóla, en þar sem aðsóknin í inngöngumiða var svo mikil var staðsetningin flutt yfir í Van Dyke garðinn þar sem yfir 23.000 manns söfnuðust saman. Ég býst við að biðröðin við hliðið hafi verið ca.1,6 km löng.  Frábær stemning var á staðnum og  fer ekki á milli mála að ef McCain verður kosin forseti er það mikið til vegna vinsælda Söru Palin. 

Joe Biden varaforseta efni Obama var í New Hampshire í dag og sagði á fundi að Hillary hefði verið betri kostur sem varaforseta efni. Furðulegt af frambjóðanda að segja svona. Í útvarpinu var síðan rætt um það hvort Obama væri að íhuga að gefa honum spark og láta til leiðast og skríða til Hillary. Hann er að missa allt niður um sig.  

100_0649                                  100_0650  brot af hópnum

         DSC02226           100_0672    Smellið á myndirnar til að stækka þær

                                                                     Biðröð


mbl.is Sakaður um kvenfyrirlitningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 33153

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband