10.6.2008 | 17:14
Hús fór á flot
Enn lamandi hiti hjá okkur. Þetta er fjórði dagurinn í röð að hitastigið er um og yfir 38° hér á austurströnd Bandaríkjanna. Vonandi kólnar einvað í kvöld, en við eigum vona á "kuldaskilum". Reyndar er svo heitt úti að maurarnir eru farnir að leita inn í loftkælinguna. Miðað við það sem er að gerast í Wisconsin, þá held ég samt að ég haldi mig nú frekar við hitann. Lætin voru svo mikil að vatnið úr Delton vatninu tæmdist algerlega í Wisconsin ána, hús hreinlega rifnuðu í sundur og flutu á brott. Delton vatnið er eitt af aðal ferðamannastöðunum í Wisconsin.
Um bloggið
Hitt og þetta
Nýjustu færslur
- 1.1.2012 Ísold Ylfa nýjasta stjarnan
- 7.9.2011 Gott að fá samkeppni
- 4.1.2011 Íslandsvinur?
- 9.12.2010 Ósvífnir óþokkar
- 11.11.2010 Ekki felldi ég karlinn minn....
- 25.10.2010 Jafnrétti ?
- 17.10.2010 Trú og glaðlyndi
- 14.10.2010 Dagurinn sem heimurinn stóð kyrr.
- 26.8.2010 áhrif lyfja?
- 17.8.2010 Og hvað ætlar Icelandair að gera?
- 6.8.2010 Af hverju NY?
- 5.8.2010 Bíll fyrir blinda
- 12.11.2009 Fólk þarf að gera sér grein fyrir hversu alvarlegt þetta er.
- 3.6.2009 haga sér eins og óþekk smábörn
- 19.4.2009 Ekki má gleyma skotárásinni í Va.Tech og nýlega var nemandi ...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 32986
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Merkilegt hvað hitagráður eru misheitar (ég er ekki að grínast) - hef verið í allt upp í 36 stiga hita hér í Ungverjalandi að undanförnu og það er bara fínt, verður kalt ef hitinn fer niður í 20 gráður, sem aftur á móti er vei heitt heima á Íslandi. Þannig að ... þetta er afstætt. En ég tek undir að það er ekki öfundsvert að glíma við náttúruöflin, hvort sem eru flóð, jarðskjálftar eða annað.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 10.6.2008 kl. 19:07
Já rakinn í loftinu skiptir miklu máli. Því hærri sem rakinn er því óþægilegri er hitinn og það er búið að vera mjög rakt loft yfir okkur. Aftur á móti er mjög oft yfir 40° í Arizona og Las Vegas þar sem Kata er en loftslagið er mjög þurrt og því finnst ekki eins mikið fyrir hitanum.
'Eg fór út kl. 8 í morgun til að skola af bílunum okkar og strax um kl 9 var orðið óþægilega heitt.
Erna Hákonardóttir Pomrenke, 10.6.2008 kl. 22:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.