29.7.2008 | 12:11
BILUN
Gærdagurinn var skelfilegur. Datt ekki í hug að ég væri orðin svona háð blogginu og orðin að blogg fíkli. Ég saup hveljur í hvert skipti sem ég reyndi að opna bloggið og ekkert skeði. Skildi allt vera týnt? Nei þeir lofuðu að svo væri ekki. En það var svo margt sem mig langaði til að tjá mig um og nú var ég sama sem með báðar hendur bundnar fyrir aftan bak.
Mikil hamingja greip mig þegar ég sá að bloggið ætlaði að opnast í morgun og þegar það loks opnaðist sá ég hreinlega RAUTT. Já vefsíðan mín var alltaf bláleit, held það sé vetrarþema, en nú er síðan mín rauð og öllu hefur verið snúið við. Þori varla að snerta á þessu á meðan á þessari bilun stendur. Þeir hljóta að klára sig á þessu. Þetta eru jú Mogga menn. Eins og ég hef áður sagt um farsímana, hvernig fórum við að áðurfyrr? Við erum orðnir þrælar tækninnar.
Um bloggið
Hitt og þetta
Nýjustu færslur
- 1.1.2012 Ísold Ylfa nýjasta stjarnan
- 7.9.2011 Gott að fá samkeppni
- 4.1.2011 Íslandsvinur?
- 9.12.2010 Ósvífnir óþokkar
- 11.11.2010 Ekki felldi ég karlinn minn....
- 25.10.2010 Jafnrétti ?
- 17.10.2010 Trú og glaðlyndi
- 14.10.2010 Dagurinn sem heimurinn stóð kyrr.
- 26.8.2010 áhrif lyfja?
- 17.8.2010 Og hvað ætlar Icelandair að gera?
- 6.8.2010 Af hverju NY?
- 5.8.2010 Bíll fyrir blinda
- 12.11.2009 Fólk þarf að gera sér grein fyrir hversu alvarlegt þetta er.
- 3.6.2009 haga sér eins og óþekk smábörn
- 19.4.2009 Ekki má gleyma skotárásinni í Va.Tech og nýlega var nemandi ...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mitt hefur heldur ekki jafnað sig til fulls. Ætla að láta það vera um sinn. Komið inn fullt af fítusum sem ég setti ekki þar inn og það sem ég stillti inn er horfið. Verst þykir mér myndin mín í hausnum. Það var mikið mál að fá hana rétta svo ég ætla ekki einu sinni að anda á hana strax.
Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 29.7.2008 kl. 19:54
Eins og sérð er ég eldrauð . Skil ekki hversvegna liturinn breyttist svona. Vona svo sannarlega að myndirnar af bloggvinunum komi upp aftur. Margt annað sem hefur horfið. Ég segi bara eins og þú, ég þori ekki einu sinni að anda á þetta eins og er. Vonandi lagast þetta sjálfkrafa. 'Eg var búin að reyna svo mikið að setja inn hausmynd en það gekk aldrei upp. Myndin var alltaf of stór eða einhvað svo ég skil hvað þú átt við.
Erna Hákonardóttir Pomrenke, 29.7.2008 kl. 21:04
Haha já þokkalega... Við erum algerir þrælar tækninnar og kæmumst ekki af án hennar lengi.
Ef þú hefur séð Wall-E þá finnst mér svo fyndið að sjá feitu kallanna sem við eigum að breitast í þegar við erum búin að búa í geimnum í nokkur hundruð ár.
Björn Magnús Stefánsson, 30.7.2008 kl. 22:00
Já Wall-E er frábær mynd eins og svo margt sem kemur frá Pixar. En Björn, ég held að við þurfum nú samt ekki að búa út í geimnum til að verða fitunni að bráð eins og þú hefur eflaust rekið þig á þarna út í Chicago Þýðir lítið að bjóða þeim upp á Smart Car.
Erna Hákonardóttir Pomrenke, 30.7.2008 kl. 22:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.