4.2.2009 | 03:58
Montin af stráknum.
Yngri sonur minn tók þátt í spurningarkeppni gagnfræðaskólanna hérna á Washington D.C svæðinu fyrir stuttu. Hann leiddi liðið í annað sæti. Eigum að mæta við hátíðlega athöfn upp í skóla annað kvöld þar sem börnin verða heiðruð. Hann var einnig einn af þrem frá skólanum okkar sem var valin til að taka þátt í sjónvarpsþættinum "It´s Academic". Þátturinn er búin að vera í gangi í 48 ár undir stjórn Mac McGarry. Sl. laugardag ókum við niður á NBC sjónvarpsstöðina í upptöku. Ég hef aldrei áður lagt leið mína í sjónvarpssal og fannst þetta auðvitað allt mjög spennandi. Við þurftum að bíða í dágóða stund þar sem verið var að taka upp annan þátt þegar við komum. Okkur var sagt að upptöku salurinn sem við vorum í er sá sami og notaður er við upptöku þáttarins "Meet the Press" sem Tim Russer heitinn sá um. Það fór meiri tími í undirbúning heldur en sjálfa upptökuna á spurningarþættinum. Ekki aðeins þátttakendurnir sem undirbúa þurfti, heldur einnig áhorfendur. Sviðstjórinn sagði okkur með handapati hvenær við ættum að klappa prúðlega, með ákafa og svo auðvitað með ofsahrifningu í lokin. Svolítið broslegt. Þættinum verður síðan sjónvarpað laugardagsmorguninn 28 mars.
Fyrir ykkur sem ekki þekkið til, þá er Erik minn sá í hvítu skyrtunni.
Um bloggið
Hitt og þetta
Nýjustu færslur
- 1.1.2012 Ísold Ylfa nýjasta stjarnan
- 7.9.2011 Gott að fá samkeppni
- 4.1.2011 Íslandsvinur?
- 9.12.2010 Ósvífnir óþokkar
- 11.11.2010 Ekki felldi ég karlinn minn....
- 25.10.2010 Jafnrétti ?
- 17.10.2010 Trú og glaðlyndi
- 14.10.2010 Dagurinn sem heimurinn stóð kyrr.
- 26.8.2010 áhrif lyfja?
- 17.8.2010 Og hvað ætlar Icelandair að gera?
- 6.8.2010 Af hverju NY?
- 5.8.2010 Bíll fyrir blinda
- 12.11.2009 Fólk þarf að gera sér grein fyrir hversu alvarlegt þetta er.
- 3.6.2009 haga sér eins og óþekk smábörn
- 19.4.2009 Ekki má gleyma skotárásinni í Va.Tech og nýlega var nemandi ...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Innilegar hamingjuóskir til ykkar allra, ég á dóttur sem var alltaf sigurvegari í mælskukeppnum menntaskólans, sumir eru það bara. Athyglisvert að ykkur hefur verð kennt að klappa á réttum stöðum!!!!! Mikið er það gott að það er kennt einhversstaðar. Ég fór í leikhús um daginn, og fann að þetta var allt að klikka í þeim málum. Ég gat ekki sjálf klappað þar sem barnabörnunum mínum fannst amma eitthvað hallærisleg með því...................
Sólveig Hannesdóttir, 6.2.2009 kl. 20:00
Vel af sér vikið hjó dóttur þinni. Í sambandi við klappið þá langar mig til að segja að við förum oft á sinfóníutónleika þar sem hann Erik minn leikur á fiðlu með sinfóníuhljómsveit bæjarins okkar. Það kemur fyrir að þegar tónverk eru spiluð sem eru í mörgum þáttum að fólk tekur upp á því að klappa inn á milli þátta. Áttar sig ekki á að á meðan stjórnandinn heldur sprotanum uppi á ekki að klappa. Annars um að gera að klappa og láta ánægju sína í ljós. Það örvar líka bara leikarana. Lítið gaman að leika fyrir hálfshugar áhorfenda sal. Mér finnst ungt fólk spéhrætt við að klappa
Erna Hákonardóttir Pomrenke, 6.2.2009 kl. 21:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.