Meira um Randy Pausch

Fyrir ykkur sem eruð í Bandaríkjunum langar til að benda á Diane Sawyer Primtime Special sem verður sýnt kl 10 ET og verður þátturinn helgaður lífi og starfi Randy Pausch sem ég hef skrifað áður um hér á síðunni minni. Randy var tölvuprófessor í Carnegie Mellon Háskólanum og lést sl. föstudag úr krabbameini í brisi. Diane Sawyer gerði viðtal við Randy og Jai konu hans fyrr á árinu sem þið getið nálgast með því að fara inn á  http://abcnews.go.com/GMA/LastLecture/  eða www.abcnews.com/lastlecture 

Randy Pausch varð heimsfrægur fyrir fyrirlestur sinn "Last Lecture" og bók sem ber sama titil.  Randy hefur snert líf svo margra og ekki hægt annað en að dáðst af honum. Það er svo margt hægt að læra af honum. 'Eg ætla ekki að segja meira en ég vona að þið horfið á þáttinn í kvöld og viðtalið sem Diane hafði við hann hér að ofan.

 


BILUN

Gærdagurinn var skelfilegur. Datt ekki í hug að ég væri orðin svona háð blogginu og orðin að blogg fíkli. Frown  Ég saup hveljur í hvert skipti sem ég reyndi að opna bloggið og ekkert skeði. Skildi allt vera týnt? Nei þeir lofuðu að svo væri ekki. En það var svo margt sem mig langaði til að tjá mig um og nú var ég sama sem með báðar hendur bundnar fyrir aftan bak.

Mikil hamingja greip mig þegar ég sá að bloggið ætlaði að opnast í morgun og þegar það loks opnaðist sá ég hreinlega RAUTT. Já vefsíðan mín var alltaf bláleit, held það sé vetrarþema, en nú er síðan mín rauð og öllu hefur verið snúið við. Þori varla að snerta á þessu á meðan á þessari bilun stendur. Þeir hljóta að klára sig á þessu. Þetta eru jú Mogga menn. Wink Eins og ég hef áður sagt um farsímana, hvernig fórum við að áðurfyrr? Við erum orðnir þrælar tækninnar.  


harður dómur

Sá þessa frétt á CNN í gær og ofbauð hversu þungur yfirvofandi fangelsisdómur var, ef hann fær fangelsis dóm fyrir atvikið. Auðvitað átti hann ekki að gera það sem hann gerði en byssuhald er leift í Bandaríkjunum og maðurinn var víst drukkinn þegar þetta átti sér stað og þá er voðinn vís. Honum á eftir að bregða þegar hann vaknar upp úr vímunni og 6-8 ára fangelsisvist blasir við honum. 'Eg veit um einn sem fékk 20 ár í fangelsi fyrir að slá og ræna mann í Virginíu. Manni finnst þetta rosalega harðir dómar og eins og í síðara tilfellinu að taka 1/4 af lífi mannsins frá honum. En mér finst líka sorglegt hvað menn komast upp með heima á Íslandi og fá lítinn sem engan dóm.   
mbl.is Skaut óþæga garðsláttuvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Randy Pausch, 23 október 1960 - 25 júlí 2008

 

cross2 

Randy Pausch

23 október 1960 - 25 júlí 2008

Pausch  

Mér var brugðið þegar ég las að Randy Pausch hafði dáið fyrr í dag. Þessi frétt kom samt engum á óvart sem til hans þekktu því Randy hafði barist hetjulega við krabbamein í brisi. Randy var prófessor í tölvu vísindum við Carnegie Mellon Háskólann í Pittsburg.  Hann kallaði sig tölvu nörd. Í september í fyrra  var honum boðið að gefa fyrirlestur “síðustu ræðuna” sem hann gerði og var skyndilega komin inn á svo til hvert heimili, þökk sé You Tube. Fyrirlesturinn gaf hann nafnið “Really Achieving Your Childhood Dreames” og tileinkaði hana börnunum sínum þrem. Hann gerði sér fulla grein fyrir að hann átti ekki langt eftir og vissa að það yrði erfitt fyrir börnin hans að muna eftir honum þar sem þau eru svo ung. Hann vildi skilja einhvað eftir handa börnunum sínum sem þau mættu læra af og muna eftir pabba sínum. Hann hefur sagt að það erfiðasta sem hann barðist við var hugsunin um að börnin hans yrðu föðurlaus. Randy sagðist ekki kunna að njóta ekki lífsins og ætlaði sér að gera það til hinsta dags. Hann sagði það ekki skipta eins miklu máli hversu marga daga við ættum á þessu jarðríki, heldur hvernig við verjum þeim.  Hann skrifaði einnig bók sem heitir “The Last Lecture” og fór straks á metsölulistann. Randy sagði að múrveggir væru til staðar til að sýna okkur hversu mikið okkur langar í einhvað og hinum sem langar ekki nóg til að komast yfir. Mig langar til að benda öllum á að hlusta á “The Last Lecture”

 

Ekki eru allar nýjungar til hagnaðar

Ég er fljót að viðurkenna að við erum frekar seintæk hérna á heimilinu gagnvart nýjungum sem er nú svolítið fyndið því starf mannsins míns er fólgið í því að stuðla að rannsóknum sem síðan hafa leitt af sér margar nýjungar í heimi tækni og vísinda.

Ég get bent á að allir voru löngu komnir með örbylgju ofna áður en ég fékk mér einn slíkan. Eins og að Amerískri venju er hann risastór með innbyggðri viftu og þetta flikki hangir yfir eldunarplötunni. Til hvers nota ég hann? 'Eg er að gera mér grein fyrir að fyrir utan það að afþýða þunna pakka af frosnu kjöti, nota ég hann mest til að hita upp kaffibollan minn og það stærsta sem  í hann fer er poppkornspoki.  Ég hef aldrei nokkurn tímann eldað í honum. Get ég verið án hans? HIKLAUST

Börnin mín voru búin að kvarta mikið og kveina yfir því að allir vinirnir væru með farsíma og hvað við værum miklir eftirbátar í öllu. Ég hafði áhyggjur af áhrifum farsíma á börn og hef lesið margar greinar um það efni með misjöfnum útkomum. Fyrir rúmu ári   lét ég svo loks til leiðast og fékk síma handa öllum í fjölskyldunni. Símarnir eru mikið öryggi fyrir börnin og gott að maðurinn minn getur nú hringt heim og sagt mér að hann sitji fastur í umferð.  Áður fyrr var maturinn oft orðin að óþekkjanlegum uppþornuðum klumpi á pönnunni þegar hann loksins kom heim. Fyrr í vikunni sendi University of Pitsburg Cancer Institute frá sér viðvörun um notkun á farsímum og áhrif þeirra á börn og varaði við að börn ættu að nota þá sem minnst og helst aðeins í neyðartilfellum. Við erum orðin svo háð farsímum. Hvernig komumst við af án þeirra fyrir þeirra tíð? Fólk gengur um masandi, ekur um masandi og meir að segja hefð ég séð fólk masandi á hlaupabrettum. Hvað hefur fólk svona mikið að segja allt í einu? Errm

Svo ég hlaupi aftur í eldhúsið þá hefur það lengi setið á hakanum en loksins lét ég verða af því að endurnýja borðplötuna og fékk mér granít plötu sem ég hef lengi haft augastað á. Ég vissi að granít getur gefið af sér "Radon" en sölumaðurinn taldi mér trú um að það magn væri hverfandi lítið. Borðplatan er auðvitað rosalega falleg en  það er svo til öruggt að það sem dettur á plötuna fer í þúsund mola. Skítt með brotin glös, platan er augnayndi. Mér til mikillar hrellingar heyrði ég  í fréttunum í dag að verið var að tengja granít eldhúsplötur við lungnakrabba og var átt sérstaklega við granít frá Brasilíu þar sem radon tíðnin væri mjög há í þeim. Sennilega bara best að flytja inn í torfbæ. Nei annars, reykurinn úr eldstæðinu myndi sennilega drepa mann. Frown


Óprúttinn svikahrappur

Dýrin okkar verða oft sem fjölskyldumeðlimir hvort sem á um hesta, hunda, ketti eða önnur dýr. Þau verða háð okkur og við þeim og oft myndast mikið og einlægt samband á milli dýranna og okkar. Sæunn lánaði hestinn sinn í þeirri trú að fá hann aftur að ferð lokinni. Ósvífnin hjá þessum manni er svo gróf að ekki aðeins rænir hann hestinum frá henni, heldur villir hann fyrir með því að örmerkja hestinn, rangætta hann og breyta nafni hans til að villa fyrir þannig að erfiðara verði að finna hann. Ég kalla það lítinn dóm að hún hafi fengið einhverja peninga fyrir hestinn. Maðurinn gengur eflaust frjáls ferða sinna og getur endurtekið þetta aftur og aftur því ekki geta dýrin tjáð sig. Hvað er með þetta dómkerfi? Þessi "dómur" er lítið meiri en að skvett hafi verið vatni á manninn. Mætti gjarnan birta nafn mannsins til að aðrir geti varað sig á honum.  


mbl.is Týndur hestur fannst í Þýskalandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fótasnyrtidömur með sporð og ugga

Það sem fólk finnur upp á er oft æði skrýtið.  John Ho eigandi Yvonne Hair and Nail Salon í  Alexandríu (rétt fyrir utan Washington D.C.) býður viðskipta vinum sínum upp á þetta nýstárlega fótabað og fótasnyrtingu. Viðkomandi setur fæturnar ofan í tank fylltan af littlum vatna Körfum (Garra Rufa Carp). Karfinn er tannlaus og japlar á dauðu og hörðu skinni  sem hefur safnast á fótum viðkomanda. Sick  $35 fyrir 15 mín, $50 fyrir 30 mín. Hrikalega hlýtur þetta að kítla. Því ekki að fá sér svona fiska og hafa í fiskabúri?

abc_dr_fish_080722_sshSmellið á myndina til að stækka hana.


Barbie og Ken við vinnu

Þetta gengur út í algera öfga, við erum jú MANNeskjur. kvennrembur  jafnt sem karlrembur  kvartandi yfir öllu.  
mbl.is Menn að störfum en líka konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferguson er bestur

Verð að viðurkenna að ég á eftir að sakna djókanna hjá honum Leno ef hann ætlar að fara að hætta. Reynar margt sem ég hef gaman af hjá honum eins og td. Headlines, Jay Walking og littla gítarleikaranum hans. Letterman er ok og ég hef gaman af  "Presidential moments" sem aðallega sýnir kjánann hann Bush og hvað hann kemst oft illa að orði eða einfaldlega stendur fyrir framan alþjóð orðalaus. Lítið hrifin af Conan O'Brien.

 Craig Ferguson er ólíkur öllum hinum og segist ekki nota mónólog og flest er óæft. Hann getur verið ótrúlega fyndinn og skoski hreimurinn hans gerir hann enn spaugilegri. Það er ekki bara hvað hann segir heldur allur líkamsburður sem gerir hann svo ómótstæðilegan. Heimilið hans hlýtur að vera ein spaugstofa og allir rúllandi um á gólfinu. Grin


mbl.is Jay Leno kveður í maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

og verðið lækkar í USA

Ferðir manna stjórnast mikið af himinháu eldsneytisverði og hefur orðið til þess að fólk hefur haldið sig meira heimavið í sumar eða farið í styttri ferðir. Verðið á galloninu var komið vel yfir $4 og var spáð hækkandi verði, en í síðustu viku lækkaði verðið í fyrsta sinn í lengri tíma og er búist við meiri lækkun á næstu dögum og ég vona svo sannarlega að það standist (Bandaríkjamenn mega bara þakka fyrir að ástandið er ekki orðið eins slæmt og í flestum Evrópulöndum þar sem verð á bensíni  er 3 til 4 sinnum hærra). Flestar bensínstöðvar eru komnar rétt undir $4 en á leiðinni heim í gær sá ég að Citco (sem er selt við 7-Eleven verslanir) var að selja bensín fyrir $3.89 og auðvitað hafði löng bíla röð myndast við dælurnar. Flestir Ameríkanar vita sennilega ekki að Citco er í eigu Petróleos de Venezuela, S.A.(PDVSA), the national oil company of the Bolivarian Republic of Venezuela sem er í eigu einræðisráðherra Venezuela Hugo Chavez. Hann hefur oft opinberlega lýst andúð sinni á Bandaríkjastjórn og jafnvel hótað að fella hana. Með því að kaup bensín af honum eru Bandaríkjamenn  óvísvitandi að styrkja hann. Það er athyglisvert að í Caracas höfuðborg Venezuela kostar bensínið 12 sent á gallonið (3sent fyrir lítrann).
mbl.is Eldsneytisverð hækkaði um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

næst þegar þú gistir á hóteli....

Ég er mjög á móti öllum einnota vörum en eftir að hafa séð þessa frétt  um hreinlæti eða betur sagt sóðaskap hjá hótel starfsfólki langar mig ekki mikið til að drekka úr glösunum sem eru inn á herbergi.

Hér eru sýndar herbergis þernur að "þvo" glösin í skítugum vaskinum og jafnvel með gúmmí hanska sem var nýbúin að vera í klóinu.

Fréttamenn földu myndavélar bæði á Holliday Inn og eins á Embassy Suites sem eru bæði mjög viðurkennd hótel.  Og við sem héldum að Kaninn væri svo þrifalegur.  

 http://www.bestviral.com/video/6629/dont_ever_drink_from_hotel_glasses

Ég var á ferðalagi um hringveginn í fyrra sumar. Morguninn sem við fórum frá  Foss hótelinu okkar var ég að hlaða dóti í bílinn og tók eftir hjólbörum fullum af hreinum handklæðum og þvottapokum fyrir framan bygginguna. Þegar ég koma aftur að svolítið seinna var búið að setja bunkann á forstofugólfið rétt við innganginn þar sem allir ganga um á skítugum skóm. 'Eg hélt að svona gæti ekki skeð heima á Íslandi.


Gott að íhuga sérstalklega fyrir verslunarmannahelgina

Eitt það besta frá Jim Breuer.  Ef við bara vissum hvað er að ske í malla kútnum LoL 

 


Berrassaður í háloftunum

Í gær var maður handtekin fyrir að hafa afklæðst í háloftunum í flugi American Airlines á leið frá Boston til Los Angeles. Honum var skipað að fara aftur í fötin sem hann gerði en  eftir að vera komin aftur í fötin reyndi hann að opna öryggisdyr og var þá handtekin, vélinni snúið til Oklahoma City og hann látin sæta geðransókn.  Humm..... getur ekki verið að mann ræflinum hafi bara verið svona heitt og viljað fá sér frískt loft? Grin Svoddan asskotans loftleysi í þessum vélum.

Ég hef lesið að það eru til "nakin flug" og fólk borgar sérstaklega fyrir að fljúga án fata. Jú það hlýtur að vera eldsneytis sparnaður fyrir flugfélögin ef fólk létti á fötunum, ekki satt? Því þá að handataka vesalings manninn, kannski var hann bara að reyna að vera hjálplegur Wink 


Eldhress og skemmtilegur

Aumingja mamma lenti inn á stofnun þar sem fólkið sat bara og góndi út í loftið. Það var ósköp dapurlegt að vita af foreldri sínu eins og inn í geymslu þar til dauðinn kvað á dyr. Ég sá líka mikinn mun á henni fljótlega eftir að hún var sett inn. Það var ekkert fyrir stafni þarna og fólk sljóvgaðist bara upp. Mig verkjar að hugsa um þetta.

Það sem Árni Valdimarsson er að gera er ómetanlegt og auðséð að Drottin var ekki búin með hann og hefur ætlað honum stærra og meira hlutverk. Hann á eflaust eftir að breyta lífi margra til batnaðar. Húrra fyrir Árna og gangi honum vel.


mbl.is Uppreisn ellinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

erum við að koma okkur í kínverska sjálfheldu?

Því miður hef ég grun um að ekki verði nein vandræði að finna viljuga skemmtikrafta ef frægð, frami og peningur er annarsvegar á borðinu. Helst hefði ég viljað að stórþjóðir eins og Bandaríkin hefðu hætt öllum viðskiptum við Kína þar til þeir hugsa sinn gang og huga að mannúðarreglum. Ekki bara hvernig þeir fara með Tíbeta, heldur líka börn sem búa í hænsnakofum sem ekki er hægt  að standa uppréttur í og þræla svo allan daginn við að framleiða varning sem endar síðan í höndunum á mér og þér.  Ég er reyndar mjög meðvitandi um þetta þegar ég versla og kaupi yfirleitt engan varning frá Kina.  Því miður eru Bandaríkin orðin að hálfgerðum leppum þar sem stór hluti alls innflutts varnings kemur frá Kína. 
mbl.is Hert eftilit með listamönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki spurning, Benedikt er íþróttamaður ársins.

Það er nú ekkert undarlegt þó maðurinn sé lurkum lamin eftir þvílíkt afrek í sjónum. 48.000 skriðsundtök á rétt rúmum 16 klst. í sjó er bara varla hægt að hugsa það til enda. Benedikt er öllum til fyrirmyndar og mega margir læra af honum.  Aldrei að gefast upp þó að á móti blási. Einbeitnin og viljastyrkurinn réði ferðinni. Hann er sannkallaður íþróttamaður ársins.

Mikið hlýtur það að vera hræðileg tilfinning að vera með svona mikla sjóriðu. Ég fór einu sinni  í skíðaferð með Gullfossi til Ísafjarðar og lentum í slæmum sjó á leiðinni og þegar við komum að landi um næsta morgun fann ég til mikillar riðu eftir að ég var kom á fast land. Ég gekk um eins og ég væri drukkin.  

Ég sá þátt í sjónvarpinu um unga stúlku sem fór í ferð með skemmtiferðaskipi og fékk svona mikla sjóriðu sem hún gat ekki losnað við.  Var alltaf með svima og allt á fleygiferð. Læknarnir tóku upp á því að láta hana stíga upp á pall sem var á smá hreyfingu (velting sem líktist því að vera á skipi) og það virtist hafa jákvæð áhrif á hana og hjálpaði henni að ná jafnvæginu í smá stund, en á endanum minnir mig að hún hafi verið send í aðgerð. Þetta er mjög óvanalegt en skeður hjá örfáum skips farþegum.


mbl.is „Aldrei aftur í sjóinn"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Benedikt íþróttamaður ársins!!

Enginn venjuleg sál sem hefur það af að vera á sundi í rúmar 16 klukkustundi og að hluta til í myrkri. Það þarf mikla einbeitni og ótrúlegan viljastyrk að þrauka svona út. Nú má aldeilis taka vel á móti Benedikt þegar hann snýr aftur heim. Vonandi tekur hann sér samt velskilið frí fyrst.

Til hamingju Benedikt. Þetta var glæsilegt afrek hjá þér og það var virkilega gaman að fá að fylgjast með sundinu eins og ég hef lýst yfir á síðunni minni.


mbl.is Tókst að synda yfir Ermarsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

flug upplýsingar

Hér er önnur vefsíða sem mér finnst gaman að kíkja á og það er http://www.flightexplorer.com/ Með því að setja inn flugnúmer getur þú fylgst með flugvélum yfir Bandaríkjunum. Það er hægt að sjá ferð vélarinnar í þrívídd (3D), hraða, hæð og auðvitað staðsetningu. Eins er hægt að sjá ókyrrð í lofti og margt annað fróðlegt. Eins og er get ég td. séð að flug Iceland air FI657 til Minneapolis er í 36.000 feta hæð, er á 514 mílna hraða og á eftir ca. 1 1/2 tíma í lendingu. Þetta er sérstaklega þægilegt að vita þegar maður á von á ferþegum.

Styttist í það

Nú fer að styttast í land fyrir Benedikt Hjartarson og mikið vona ég hans vegna að hann geti klárað sundið. Þetta er nú ekkert smá afrek, geri aðrir betur. Það er gaman að heimsækja heimasíðuna hans og fylgjast með staðsetningu bátsins sem fylgir honum.

http://www.shipais.com/showship.php?mmsi=235040701.

 


Næsta síða »

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Júlí 2008
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.8.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband