21.7.2008 | 14:59
og verðið lækkar í USA
Eldsneytisverð hækkaði um helgina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2008 | 02:48
næst þegar þú gistir á hóteli....
Ég er mjög á móti öllum einnota vörum en eftir að hafa séð þessa frétt um hreinlæti eða betur sagt sóðaskap hjá hótel starfsfólki langar mig ekki mikið til að drekka úr glösunum sem eru inn á herbergi.
Hér eru sýndar herbergis þernur að "þvo" glösin í skítugum vaskinum og jafnvel með gúmmí hanska sem var nýbúin að vera í klóinu.
Fréttamenn földu myndavélar bæði á Holliday Inn og eins á Embassy Suites sem eru bæði mjög viðurkennd hótel. Og við sem héldum að Kaninn væri svo þrifalegur.
http://www.bestviral.com/video/6629/dont_ever_drink_from_hotel_glasses
Ég var á ferðalagi um hringveginn í fyrra sumar. Morguninn sem við fórum frá Foss hótelinu okkar var ég að hlaða dóti í bílinn og tók eftir hjólbörum fullum af hreinum handklæðum og þvottapokum fyrir framan bygginguna. Þegar ég koma aftur að svolítið seinna var búið að setja bunkann á forstofugólfið rétt við innganginn þar sem allir ganga um á skítugum skóm. 'Eg hélt að svona gæti ekki skeð heima á Íslandi.
Bloggar | Breytt 26.7.2008 kl. 04:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.7.2008 | 17:17
Gott að íhuga sérstalklega fyrir verslunarmannahelgina
Eitt það besta frá Jim Breuer. Ef við bara vissum hvað er að ske í malla kútnum
Bloggar | Breytt 27.7.2008 kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.7.2008 | 14:37
Berrassaður í háloftunum
Í gær var maður handtekin fyrir að hafa afklæðst í háloftunum í flugi American Airlines á leið frá Boston til Los Angeles. Honum var skipað að fara aftur í fötin sem hann gerði en eftir að vera komin aftur í fötin reyndi hann að opna öryggisdyr og var þá handtekin, vélinni snúið til Oklahoma City og hann látin sæta geðransókn. Humm..... getur ekki verið að mann ræflinum hafi bara verið svona heitt og viljað fá sér frískt loft? Svoddan asskotans loftleysi í þessum vélum.
Ég hef lesið að það eru til "nakin flug" og fólk borgar sérstaklega fyrir að fljúga án fata. Jú það hlýtur að vera eldsneytis sparnaður fyrir flugfélögin ef fólk létti á fötunum, ekki satt? Því þá að handataka vesalings manninn, kannski var hann bara að reyna að vera hjálplegur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2008 | 18:28
Eldhress og skemmtilegur
Aumingja mamma lenti inn á stofnun þar sem fólkið sat bara og góndi út í loftið. Það var ósköp dapurlegt að vita af foreldri sínu eins og inn í geymslu þar til dauðinn kvað á dyr. Ég sá líka mikinn mun á henni fljótlega eftir að hún var sett inn. Það var ekkert fyrir stafni þarna og fólk sljóvgaðist bara upp. Mig verkjar að hugsa um þetta.
Það sem Árni Valdimarsson er að gera er ómetanlegt og auðséð að Drottin var ekki búin með hann og hefur ætlað honum stærra og meira hlutverk. Hann á eflaust eftir að breyta lífi margra til batnaðar. Húrra fyrir Árna og gangi honum vel.
Uppreisn ellinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2008 | 19:20
erum við að koma okkur í kínverska sjálfheldu?
Hert eftilit með listamönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
17.7.2008 | 14:12
Ekki spurning, Benedikt er íþróttamaður ársins.
Það er nú ekkert undarlegt þó maðurinn sé lurkum lamin eftir þvílíkt afrek í sjónum. 48.000 skriðsundtök á rétt rúmum 16 klst. í sjó er bara varla hægt að hugsa það til enda. Benedikt er öllum til fyrirmyndar og mega margir læra af honum. Aldrei að gefast upp þó að á móti blási. Einbeitnin og viljastyrkurinn réði ferðinni. Hann er sannkallaður íþróttamaður ársins.
Mikið hlýtur það að vera hræðileg tilfinning að vera með svona mikla sjóriðu. Ég fór einu sinni í skíðaferð með Gullfossi til Ísafjarðar og lentum í slæmum sjó á leiðinni og þegar við komum að landi um næsta morgun fann ég til mikillar riðu eftir að ég var kom á fast land. Ég gekk um eins og ég væri drukkin.
Ég sá þátt í sjónvarpinu um unga stúlku sem fór í ferð með skemmtiferðaskipi og fékk svona mikla sjóriðu sem hún gat ekki losnað við. Var alltaf með svima og allt á fleygiferð. Læknarnir tóku upp á því að láta hana stíga upp á pall sem var á smá hreyfingu (velting sem líktist því að vera á skipi) og það virtist hafa jákvæð áhrif á hana og hjálpaði henni að ná jafnvæginu í smá stund, en á endanum minnir mig að hún hafi verið send í aðgerð. Þetta er mjög óvanalegt en skeður hjá örfáum skips farþegum.
Aldrei aftur í sjóinn" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2008 | 01:08
Benedikt íþróttamaður ársins!!
Enginn venjuleg sál sem hefur það af að vera á sundi í rúmar 16 klukkustundi og að hluta til í myrkri. Það þarf mikla einbeitni og ótrúlegan viljastyrk að þrauka svona út. Nú má aldeilis taka vel á móti Benedikt þegar hann snýr aftur heim. Vonandi tekur hann sér samt velskilið frí fyrst.
Til hamingju Benedikt. Þetta var glæsilegt afrek hjá þér og það var virkilega gaman að fá að fylgjast með sundinu eins og ég hef lýst yfir á síðunni minni.
Tókst að synda yfir Ermarsund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2008 | 21:36
flug upplýsingar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2008 | 21:23
Styttist í það
Nú fer að styttast í land fyrir Benedikt Hjartarson og mikið vona ég hans vegna að hann geti klárað sundið. Þetta er nú ekkert smá afrek, geri aðrir betur. Það er gaman að heimsækja heimasíðuna hans og fylgjast með staðsetningu bátsins sem fylgir honum.
http://www.shipais.com/showship.php?mmsi=235040701.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2008 | 18:55
Allir verða að eiga sína sögu
Meryl Streep svaf undir tré í London | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2008 | 18:14
Alvöru útsölur fyrir Ameríkufara
Þó að júlí mánuður sé ekki nema rétt hálfnaður eru verslanir farnar að ríma til fyrir haust vörunum með heljar miklum útsölum. Ég skrapp niður í Potomac Mills Mall í gær og þar voru útsölurnar í fullum gangi. Ég er nú ekkert sérlega spennt fyrir miklu búðarápi en mig vantaði sængurgjöf handa dóttur vinkonu minnar svo ég dreif mig inn í The Childrens Place. Biðröðin við kassana sagði sína sögu. Það var búið að lækka verð á barna bolum og stuttbuxum í $1.99. Ég sá rosalega sæta flís treyju sem hafði kostað $16.99 og hafði verið lækkuð niður í $11.99 og enn betra að það stóð á skilti yfir slánni að 50% yrðu tekin af við kassann þannig að mér reiknaðist að ég myndi borga ca $6 fyrir treyjuna svo alsæl með tvo boli og flís treyju undir hendinni hélt ég í átt að kassanum (beið í biðröð fyrst). Stúlkan stimplaði þetta inn og upphæðin var $6.27 Jamm þú lest þetta rétt. Þessi fína flístreyja var komin niður í $1.99 eins og bolirnir. Ég borgaði og fór aftur á stjá til að finna meira. Vinkonan fær þrenn sett af bolum og buxum svo keypti ég æðislegar smábarna gallabuxur, boli og fleiri flís treyjur sem ég ætla að nota í jólagjafir. Mikið rosalega líður manni vel þegar maður veit að maður hefur gert góð kaup. Þetta minnir mig á IKEA auglýsingu sem er í gangi hérna og sýnir konu klyfjaða pokum og pinklum sem er á leiðinni út úr Ikea verslun og er í þeirri trú að starfsmaðurinn hljóti að hafa snuðað sjálfan sig. Hún æðir út kallandi á manninn sinn START THE CAR, START THE CAR!! sem bíður í bílnum eftir kerlu sinni. Helst hefði ég viljað hlaupa yfir bílaplanið hrópandi Start the Car, Start the Car bara því það hefði verið broslegt, en ég er viss um að hefði ég gert það, hefði ég bara verið handtekin fyrir grun um þjófnað
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2008 | 12:51
Þarf hann vegabréf?
Er hann með vegabréfið inn á sér eða kemur hann til Frakklands sem flóttamaður?
Þetta er frábært afrek og ég vona bara að allt gangi honum í hag. 'Eg man vel eftir þegar Eyjólfur sundkappi synti á milli lands og Vestmanneyja. Pabbi tók myndir í þeirri ferð. Ég man eftir mynd af Eyjólfi þar sem hann stendur og nýbúið að bera á hann þykku lagi af floti til að vermda húðina.
Nú er gaman | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2008 | 18:12
Er hægt að keppa fyrir hönd Júpíters??
Miss Venezuela nýkrýnd Miss Universe.
Var að horfa á keppnina um Miss Universe (ungfrú Alheim) í gærkveldi. Hef aldrei skilið þann titil því ég vissi ekki til að það væru keppendur frá Mars, Júpíter eða annarsstaðar úr himingeimnum. Eins gott að hafa varann á því ekki má mismuna hinum ef líf skildi vera einhvernestaðar annarstaðar. Tók eftir því að það var enginn keppandi hvorki frá Íslandi né Svíþjóð. Kannski þær hafi verið að keppa á Júpíter?? Við fáum ekki að sjá Miss World keppnina því hún er ekki í eigu Donalds Trumps. 'O já, sonur hans Donalds sat í dómnefnd. Sennilega hefur pabbi gamli verið að vonast til að stráksi næði sér í fallega stúlku
Ungfrú USA endurtók bossa ferð en var fljót að fætur og klappaði fyrir sjálfri sér Sú sem keppti fyrir USA í fyrra rann einnig til að gólfinu og beint á bossann svo það fyrsta sem spurt var í morgun var hvort þetta gæti verið samsæri. 'Eg segi nú bara give me a break. Stúlku kindin var auðsjáanlega óörugg á háu skónum sínum sem flæktust í síða fallega kjólnum hennar. Hún var kölluð fram tvisvar áður en hún steig á sviðið og datt svo þegar að hún birtist. Hvað skildu vera mörg ár í það að stúlka frá ólíkum kynstofni keppi fyrir hönd Íslands eins og virðist vera með stúlkuna frá Danmörku? Falleg stúlka, en ekki get ég sagt að hún hafi verið mjög norræn að sjá.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2008 | 13:41
Kaninn var duglegur við að bjarga
Gátu ekki sótt veikan mann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2008 | 13:09
Slysagildra
'Eg held að það hljóti að minka slysahættuna ef hámarkshraðinn á svæðinu á milli Kjalarness og Hafnarfjalls yrði lækkaður. Það er auðvelt að missa stjórn á bíl (eða mótorhjóli) sem ferðast um á fleygiferð í þessum skörpu vinkviðum sem oft eru þarna og oft þarf nú ekki háan hraða til. Mætti gjarnan ráðleggja fólki að aka hægar um svæðið. Mikil vindtæmd getur myndast við framúrakstur (eða við mótakstur) stórrar rútu eða trukks og síðan kemur mikill vindskellur á viðkomanda sem hlýtur að vera stórhættulegt sérstaklega fyrir hjólafólk. Akið varlega og sýnið hjólafólki sérstaka aðgætni.
'Eg sá athyglisverða grein frá Nordic Road and Transport Research um hættuna á þessum kafla. Hér er greinin. http://www.nordicroads.com/website/images/TrafficSafety-Iceland-IMG-01.jpg&imgrefurl=http://www.nordicroads.com/website/index.asp%3FpageID%3D103&h=342&w=345&sz=88&hl=en&start=6&sig2=tGAc4Xg91MgXbktc1tw9XQ&tbnid=Xm17ryP2D-wI2M:&tbnh=119&tbnw=120&ei=vPF5SIOVIpOsebDr1FQ&prev=/images%3Fq%3DHafnarfjall%26gbv%3D2%26hl%3Den%26sa%3DG
Fauk af bifhjóli undir Hafnarfjalli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.7.2008 | 14:02
Skrítin tilviljun
'Eg er sannfærð um að það er ástæða fyrir því og engin tilviljun hverjir verða á vegi okkar og hverjum við mætum á lífsleiðinni.
Þessi skemmtilega saga var á Good Morning America í morgun. Þegar Nicky var lítil 5 ára hnáta var hún eitt sinn að leika sér ásamt öðrum börnum við stöðuvatn. Allt í einu steig hún fram af brún þar sem vatnið var mikið dýpra og hún missti fótanna. Nicky var ekki synd og byrjaði að sökkva. Skammt frá var Dick Becker á bát og hafði veitt litlu stúlkunni athygli. Án þess að hugsa sig tvisvar um stökk hann út í vatnið og flýtti sér í átt til hennar. Nicky teygði hendurnar upp yfir höfuðið til að hún sæist, en svo sökk hún í gruggugt vatnið. Hefði Dick ekki verið á ferðinni hefði hún eflaust drukknað. 'I gegnum árin hefur Nicky alltaf langað til að þakka þessum manni fyrir sem bjargaði lífi hennar en hún vissi engin deili á honum. Hún hafði samband við Good Morning America og þeir höfðu upp á honum og eftir að rúm 30 ár sem voru liðin frá slysinu fékk Nicky að þakka bjargvætti sínum. Já þetta var voða sætt og lá við að maður táraðist en hérna kemur það undarlega.
Dick Becker og kona hans fluttust til Omaha, Nebraska þar sem Good Morning America hafði upp á honum. Nicky vann á tannlækningastofu og nú kom í ljós að eiginkona Dick´s hafði verið sjúklingur hjá þessum sama tannlækni og Nicky vann hjá. Og öll þessi ár er hann svo að segja beint undir nefinu á henni án þess að hafa nokkra hugmynd um það. Tilviljanirnar geta verið skrítnar.
Bloggar | Breytt 17.7.2008 kl. 14:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.7.2008 | 12:17
rassfita á bílinn
Fita endurnýtt sem eldsneyti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.7.2008 | 20:05
Götudans
Mikið er gaman að horfa á hann George Sampson. George er aðeins 13 ára frá Manchester og vann Britain´s Got Talent í ár.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.7.2008 | 19:59
hott hott á hesti....
Ferðavenjur breytast lítið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Hitt og þetta
Nýjustu færslur
- 1.1.2012 Ísold Ylfa nýjasta stjarnan
- 7.9.2011 Gott að fá samkeppni
- 4.1.2011 Íslandsvinur?
- 9.12.2010 Ósvífnir óþokkar
- 11.11.2010 Ekki felldi ég karlinn minn....
- 25.10.2010 Jafnrétti ?
- 17.10.2010 Trú og glaðlyndi
- 14.10.2010 Dagurinn sem heimurinn stóð kyrr.
- 26.8.2010 áhrif lyfja?
- 17.8.2010 Og hvað ætlar Icelandair að gera?
- 6.8.2010 Af hverju NY?
- 5.8.2010 Bíll fyrir blinda
- 12.11.2009 Fólk þarf að gera sér grein fyrir hversu alvarlegt þetta er.
- 3.6.2009 haga sér eins og óþekk smábörn
- 19.4.2009 Ekki má gleyma skotárásinni í Va.Tech og nýlega var nemandi ...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar