Frábærar haframjöls smákökur

1 1/4 Bolli jurta (smjörlíki)

3/4 Bolli þétt pakkaður púðursykur

1/2 Bolli sykur

1 Egg

1 Tesk. Vanilludropar

1 1/2 Bolli hveiti

1 Tesk. matarsódi

1 Tesk. salt (má sleppa)

1 Tesk. kanill

1/4 Tesk. múskat

3 Bollar hafrar.

Hitið ofninn í 175° Hrærið saman jurtasmjöri og sykrinum þar til ljóst og létt. Bætið púðursykrinum við. Bætið egginu og vanilludropunum við. Í sér skál, blandið saman hveiti, salti, matarsódanum og kryddi og blandið saman við eggjahræruna. Blandið vel. Hrærið höfrunum saman við. Setjið eina tesk fyrir hverja köku á ósmurða bökunarplötu. Mjúkar kökur bakist í 8-9 mínútur og stökkar kökur bakist í 10-11 mínútur.  Þið fáið ca. 54 kökur.   


Amerískar pönnukökur

2 Bollar hveiti

2 Matskeiðar lyftiduft

1/4 Bolli sykur

2 Stór egg

2 Matskeiðar matarolía

2 Bollar mjólk

 Sigtið saman þurrefnin í stórri hrærivélar skál. Blandið saman Mjólkinni, eggjunum og olíunni og blandið rólega saman við þurrefnin. Ef þið eigið ameríska pönnuköku pönnu þá má baka 3-4 í einu. Ég hef mínar ca.13sm í þvermál.


Laufsuga

Ég bý í gamalgróinu hverfi sem var áður skóglendi. Þegar byggingar framkvæmdir hófust fyrir næstum 40 árum var reynt að fjarlægja aðeins þau tré sem með þurfti og húsunum síðan "plantað" inn á milli. Þetta gefur hverfinu mikinn sjarma enda eru tréin stór og tignarleg. Þau skýla húsunum fyrir sterkri sumarsólinni og gera það að verkum að við þurfum ekki að nota loftkælinguna eins mikið. Bílnum mínum legg ég í innkeyrslunni í skugga trjánna og er alveg ótrúlegt hversu svalt og gott hitastigið helst í honum. Það er fátt sem mér þykir verra en að þurfa að fara inn í bullandi heitan bíl í mikilli hitasvækju. Eins mynda trén mikið skjól gegn vindum enda alltaf blíða í garðinum mínum.

Á haustin skarta þau glæsilegri litadýrð sem á engan líka. Laufin taka að falla til jarðar í þúsundatali þar til þau mynda þykkt teppi yfir jörðinni. Vinnan við að hreinsa garðinn á vorin getur verið "bakbrjótandi" og fyllt fleiri fleiri ruslapoka. Það er ekki leyfilegt að henda grasi, laufi né trjágreinum í ruslið því þetta verður allt að fara í sérstaka stóra þykka bréf poka og allt er sent í endurvinnslu. 100_0903      100_0898      100_0899       100_0905

'A haustin á meðan laufin falla af trjánum býður bærinn upp á sérstaka laufsugu þjónustu. Húseigendur raka laufunum saman og  þau eru sett út við vegakantinn. 'A nokkurra vikna fresti fram að jólum kemur laufsugan og hreinsar laufhaugana upp. Sugan mylur laufið niður og þetta er geymt í haug þar til það verður aftur að mold með tímanum. Á vorin býður bærinn  fólki upp á að koma og sækja ókeypis mold sem hefur verið unnin úr því efni sem kom úr görðum íbúanna.


bölvun sjónvarpsins

Má bæta við að í nýlegri rannsókn leiddi einnig í ljós að unglings stúlkur sem horfa mikið á sjónvarp er hættar við að verða ófrískar heldur en hinum.  
mbl.is Óánægðir horfa meira á sjónvarp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

fallegt en kólnandi

Það þarf ekki mikið til að veðrið verði að aðal umræðuefninu í Bandaríkjunum. Eins og má búast við á þessum árstíma fer hitastigið fallandi. Hitinn hér var um frostmark í morgun, hlýrra heima á Íslandi heldur en hérna samkvæmt Al Roker. Mikil tilhlökkun hjá sumum á höfuðborgarsvæðinu því snjókorn heyrðist í veðurspánni. Blessað kornið hefur ekki látið sjá sig en aftur á móti hringdi dóttirin sem er í VA.Tech (fjögurra tíma keyrsla fyrir sunnan okkur) seint í gærkveldi og sagði að þar væri um 3sm snjór eða nóg til að gera snjóbolta enda voru nemendurnir úti í snjókasti. Ameríkanar eiga það til að gera mikið veður út af veðrinu og velta sér upp úr veðurspánni dag eftir dag sem síðan verður oft að engu. Það sem þeir kalla "snowstorm" kemur okkur bara til að brosa út í kantinn.

Kuldinn getur verið mikið vandamál fyrir marga og á Washington D.C. svæðinu einu er talið að um 12.000 manns séu heimilisllausir þar af 3.000 börn. Ástæðurnar geta verið margar, en oft á vanheilsa á geði, heilsuskortur, skortur á menntun og atvinnuleysi stóran hlut í þessu skelfilega ástandi. Síðan er það gamla fólkið sem á ekki aur til að kynda húsakynnin sín. Það er svo margt sem við Íslendingar eigum að vera þakklát fyrir, hlutir sem okkur finnst bara sjálfsagðir. Jú ég missti öll hlutabréfin mín sem var fjandi skítt og ég missti heilmikið úr sjóð 9 en ég þarf ekki að sitja með teppi yfir mér inn í pappakassa á nóttinni eða á járn grind á gangstéttinni þar sem útblásturinn af nærliggjandi húsum blæs út í formi gufu. Ég þarf ekki að gefa börnin mín í burtu af því ég á ekki pening til að fæða þau og klæða. Nei ég er vel sett eins og svo margir aðrir Íslendingar. Við erum bara svo góðu vön.


Jóla basaar í Washington D.C.

Íslendingafélagið í Washington D.C. hélt sinn árlega "Holiday Bazaar" sl. laugardag. Þetta er mikill tilhlökkunar viðburður sem flestir Íslendingar á svæðinu reyna að missa ekki af enda oft eini sénsinn að kaupa sér íslenskar matvörur, sælgæti og ullarvörur. Eldhús dívurnar voru með girnilegt snittubrauð, brauðtertur og pönnsur í sölu og hvað er betra en að fá tækifæri til að setjast niður með landanum yfir kaffibolla og rjómapönnsu eins og td henni Ólöfu blogg vinkonu sem var einnig mætt á staðinn. Sjálf fékk ég mér sneið af hangikjötsbrauði og brauðtertusneið, hef ekki hugmynd um hvað maðurinn minn fékk sér því ég var alltof upptekin af brauðtertunni minni. Keypti síðan poka fullan af kleinum, lakkrís, og rúgbrauði sem hún Peta bakaði fyrir okkur. Ég saknaði þess að fá ekki Rís súkkulaði stengur sem áttu að fara með í jólapakkana.  Á leiðinni heim stoppuðum við í Whole Foods og keyptum nokkur stikki af íslensku smjöri, skyri og Síríus bökunnar súkkulaði.

Það vill svo skemmtilega til að Today show á NBC er með Íslands kynningu þessa viku. Það sem ég hef séð hefur Al Roaker verið með sérstaklega fróðlegt og jákvætt efni um Ísland.  Hér eru nokkrar myndir og fleiri hér til hliðar.  http://today.msnbc.msn.com/id/26184891/vp/27765494#27765494

http://today.msnbc.msn.com/id/26184891/vp/27765494#27767282

100_0886     100_0892-2     100_0889     100_0890 

 


Sinfóníu tónleikar

Skrítið hvernig atburðarrás lífsins getur verið. Stundum þegar okkur finnst allt ganga á afturfótunum og allt mjög öfugsnúið er eins og dyr opnist sem við annars hefðum ekki tekið eftir og jafnvel stærri og betri tækifæri blasa við okkur.  

Hann Erik minn er búin að vera í einka fiðlutímum frá því hann var 11 ára og síðan hefur hann spilaði með sinfóníuhljómsveit barnaskólans og síðan með gagnfræðaskólanum. Lengst af var hann með sama einkakennarann en í fyrra þurfti hann  að skipta um kennara þar sem kennarinn hætti að taka í einkatíma vegna anna. Kennarinn sem okkur var bent á reyndist ekki vel. Þegar nýtt skólaár byrjaði sl. haust áttuðum við okkur á því að það var ekki mögulegt fyrir hann að spila lengur með skólahljómsveitinni því þýsku tímarnir hans stönguðust á við æfingartíma hljómsveitarinnar. Þetta voru mikil vonbrigði, hvorki hægt að spila með skólahljómsveitinni og engin einkakennari.  Sjálfur var hann mjög ergilegur og ég gat ekki hugsað mér að láta 5 ára nám enda svona. Það var mikið basl og vesen að finna annan kennara.  Skólaárið byrjað og yfirfullt hjá öllum kennurum. Mér var það mikið í mun að hann skildi fá að halda áfram að spila svo kunnáttan dytti ekki niður. Ég hafði samband við sinfóníuhljómsveit bæjarins okkar og Erik var boðið að taka inntökupróf og hananú komst inn. Þá var hálfur sigurinn unnin. Kona sem ég þekkti sem er í sinfóníunni gaf mér nafn á kunningjakonu sinni sem tekur nemendur heim til sín í tíma. 'Eg hafði samband og hún bauð okkur að koma í viðtal. Hún talaði heillengi við Erik, vildi ma. fá að vita hvað hann ætlaðist til að fá út úr tímunum, hver framtíðaráform hans væru og framvegis. Síðan lét hún hann leika á fiðluna og bauð hann velkomin. Þetta var nú aldeilis mikill léttir. Sl. laugardagskvöld lék hann síðan sína fyrstu tónleika með sinfóníuhljómsveit bæjarins undir stjórn James Villani. Einleikari á tónleikunum var Suður Aferíski lágfiðluleikarinn Heleen Du Plessis. Tónleikarnir voru haldnir í stórri Methótista kirkju hér í bæ og var fullt hús. Minn ungi herra var eitt bros frá eira til eira eftir tónleikana. Yngsti hljómlistamaðurinn í hópi fullorðinna. Frábært hjá honum og góð lífsreynsla. Ég læt nokkrar myndir fylgja með hér til hliðar.

Svo vildi svo skemmtilega til að vinkona mín hún Katharine Nace var með málverkasýningu við inngang kirkjunnar þetta sama kvöld svo ég varð að smella einni mynd með. Hún stendur fyrir miðri myndinni.


varla hefur liktað vel hjá henni

Þetta er mjög sorglegt. Að afþakka umönnun um   þe. þvott og þess háttar er eitt, en hvernig stendur á því að það var ekki skipt um rúmföt hjá konunni? Ekki skeði þetta á nokkrum dögum eða viku. Ef hún greri föst við rúmdýnuna, var þá ekkert lak hjá henni?  Hvernig getur svona skeð? Er legusjúklingum ekki snúið?

 


mbl.is Gréri föst við dýnuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Obama lofsöngur

Það verður erfitt fyrir Obama að dansa í gegnum vandamálin sem blasa við honum, en ég stóðst ekki mátið og verð að skella þessu skemmtilega myndbandi inn. Kemur öllum í gott skap.

 


Múgsefjun

Obama heimsótti Manassas í Virginia í gærkveldi og er talið að um 85.000 manns hafi verið á staðnum. Ég get sagt ykkur að ég bý í ca. 5km fjarlægt frá fundarstaðnum og skríls lætin voru svo mikil og hátalararnir svo hátt stilltir að við gátum heyrt það sem fram fór. Alger múgsefjun. Ekki vildi ég verða á þeirra vegi ef Obama verður ekki fyrir valinu. Fjölmiðlarnir halda áfram að hafa áhrif á fólk og var byrt stór mynd í blaðinu af Obama á kosningarstað í morgun. Grein úr Manassas dagblaði hér fyrir neðan og síðan er smá kosningar fróðleikur frá Yahoo þar fyrir neðan. 

http://www.insidenova.com/isn/news/politics/article/obamas_final_virginia_rally_draws_85000/23889/

http://news.yahoo.com/s/ynews/ynews_pl126


Búin að fá upp í kok

Þið heima megið bara vera þakklát fyrir að vera ekki hérna Vestan hafs núna þar sem kosningarfréttum er troðið niður í kok á okkur. Kosningar baráttan er búin að standa í tvö ár og nú í endasprettinum mætti halda að Barack Obama sé búin að kaupa allar sjónvarpsstöðvarnar. Það er ekki nokkur friður fyrir manninum. Sama hvaða sjónvarpsstöð, frétta tíminn snýst um Obama og auglýsingarnar hans virðast koma á fimm mínútna fresti. Hann lét seinka World Series um hálftíma í kvöld því hann hefur svo mikla þörf á að mala og mala.

Nú væri gott að geta ýtt á "Fast Forward" til 5 nóvember. Geta sleppt þessum dögum fyrir kosningarnar sem stjórnast af Obama.  Það má segja að Repúblikanaflokkurinn hefði getað fundið betri mann en McCain, en ég held að fólk geri sér enga grein fyrir hvað það er að bjóða yfir sig ef Obama kemst í Hvíta Húsið.


mbl.is McCain og Obama berjast hart á lokasprettinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nutu góðs af okkur.....

Það var nógu gott fyrir þá að vera á Íslandi á meðan allt gekk vel og hlaupa síðan á brott og jafnvel frá skuldum þegar illa gengur. Hvernig væri að hægja á innflutningi fólks vanda til með valið.

 


mbl.is Pólverjar flykkjast heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítil þjóð með risa hjarta

Þetta kalla ég rausnarlega gert hjá Færeyingum. Sannkallaðir höfðingjar. Nú verðum við að standa okkur og gera vel við þá.
mbl.is Siðferðileg skylda að hjálpa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynferðisáreitni kennara

Þegar dóttir mín var í sjötta bekk (11 ára) ákvað hún að fara í inntöku prufu í skóla hljómsveitina okkar.  Allt gekk mjög vel. Kennarinn var mjög hrifin af hversu létt hún fór með flautuna (sem hún hafði aldrei spilað á) og sagði að hún ætti endilega að læra að spila á Horn í staðinn því hún hefði mikla hæfileika og flautan væri of auðveld fyrir hana. Mr. J eins og við skulum kalla þennan kennara fór að sýna henni mikinn áhuga og virtist vilja allt fyrir hana gera, stundum of mikið.  Fyrsta árið leið og næsta ár (7. bekk) er hún með annan kennara Mr. D sem okkur líkaði frábærlega við. Henni er boðið að spila með US Navy Band sem er mjög mikill heiður. 'Eg vildi svo óska að hún hefði getað haldið áfram með Mr. D en í 8. bekk lendir hún aftur hjá fyrsta kennaranum, Mr. J  Mr. J fer að verða mjög ágengur og vill að hún verði eftir í skólanum að loknum skóla degi  til að æfa.  Verð að taka það fram að það var ekki bara hún heldur hópur að krökkum þarna. Svo fer dóttir mín að kvarta yfir honum en getur ekki komið orðunum að því hvað það sé nema að henni líður ekki vel í návist þessa manns. Börnin mín spiluðu öll fótbolta eins og börn Mr. J og við sáum hann oft á fótboltavellinum. Reyndar voru þarna einir 15 leikvellir svo þetta var mjög stórt svæði en alltaf kom þessi maður til okkar og spurði hvernig gengi og svo fram eftir götunum. Manninum mínum fannst Mr.J sérstakur kennari og frábært hvað hann sýndi mikinn áhuga á börnunum. Mér stóð ekki á sama með þennan mann.  Hann var sífellt að hæla henni, ekki bara fyrir árangur með skólahljómsveitinni heldur reyndi hann að taka hana afsíðis til að segja henni hversu fallegt hár hún hafði og hversu vel það klæddi hana að vera í pilsi og þess háttar. Auðvitað er ekki hægt að kæra fólk fyrir að gefa öðrum hól, en ég talaði við skrifstofuna og lét þau vita hversu illa henni leið í návist hans.  Hún heldur áfram  í skólahljómsveitinni í 9. bekk nema að þegar hann fer að tala um að hann ætli að mæta á nemenda sýningu sem ballett skólinn hennar hélt árlega (ekki tengdur gagnfræðaskólanum) kom svo mikill óhugur í hana að hún hætti í skólahljómsveitinni. Ég hefði svo gjarnan viljað að hún spilaði áfram, en það var bara ekki hægt á meðan þessi maður var þarna. Þessi maður tók ánægjuna algerlega frá henni að vera með í hljómsveitinni. Ég veit um fjöldann allan af börnum sem hættu vegna þess hvernig hann hagaði sér. Mr. J reyndi allt hvað hann gat til að fá hana aftur í hljómsveitina og vildi fá að vita hvort hún myndi koma aftur ef hann segði henni að hann væri að hætta að kenna. Hann hringdi meir að segja hingað heim til að  reyna að fá okkur til að tala hana til.

Það sem skeður síðan er að dóttir mín útskrifast úr 12 bekk og byrjar í háskólanámi. Sl Febrúar er 15 ára dóttir Mr. J með "sleep over" heima hjá sér og segir vinkonan að hún hafi vaknað við það að Mr. J er komin inn í svefnherbergi til hennar og með höndina á rassinum á henni. Foreldrar telpunnar kæra atvikið og þegar þetta fer í blöðin fer allt af stað og strax komnar 6 kærur um óviðeigandi hegðun gagnvart ungum stúlkum (12 -13 ára) inn á heimilinu hans.  Síðan kemur fram að hann hafði víst fyrst verið kennari í Michigan fylki og var ákærður fyrir kynferðislegt ofbeldi gagnvart ungum stúlkum árið 1982. Þegar hann svo sótti um stöðu hérna í Virginíu laug hann á sakavottorði, en nú á að dæma hann 15 desember og vonandi fær hann aldrei að koma nálægt skólum aftur.

Ég er mjög fegin að ég hlustaði á dóttir mína og var búin að tilkynna hegðun kennarans til skóla yfirvalda áður en þetta  kom á yfirborðið. Þegar börnunum okkar líður illa erum við skild til að hlusta á þau. Börnunum okkar má aldrei finnast að þau hafi engan til að snúa sér til. Það er mikill óhugur í okkur öllum yfir því að þessi maður er búin að vera í skólanum okkar sem vel virtur og velliðin kennari í yfir 20 ár.

Slóð inn á fréttina http://fredericksburg.com/News/FLS/2008/102008/10162008/418318


Spurning um að missa brjóstið

Í gærkveldi fór ég á upplýsingafundi um brjóstkrabbamein sem haldinn var á sjúkrahúsinu hér í bæ. Þarna voru samankomnir brjóst skurðlæknar, krabbameinslæknar, lyfjalæknar, næringarefnafræðingar og fleiri sem sátu fyrir svörum.

Á tímabili var reynt eins og hægt var að reyna að "bjarga" brjóstinu með því að reyna að fjarlægja aðeins krabbann í því og senda sjúklinginn síðan í geisla meðferð eða lyfja meðferð. Það er athyglisvert að nú er að koma fram að konur sem greinast með krabbamein í brjósti virðast vera betur settar með að láta fjarlægja brjóstið eða jafnvel bæði brjóstin heldur en að láta fjarlægja aðeins krabbameinið. Hættan á að krabbinn taki sig upp aftur minkar til muna við þetta. Eins eru tengsli á milli brjóst krabbameins og krabbamein í eggjastokkum og því farnast konum mun betur eftir að eggjastokkar hafa verið fjarlægðir.

 


getur verið að þeir séu komnir með áhyggjur?

"tilgangur ferðarinnar er fyrsta og fremst að afla upplýsinga um stöðu mála hér".
Voru þeir (Bandaríkjastjórn) ekki búnir að hafna að hjálpa okkur? Hvað kemur þeim þá við hvað er í gangi á Íslandi nema að þeir séu orðnir hræddir að missa okkur í Rússaveldi og eru farnir að sjá að sér.
mbl.is Fundur boðaður á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ekki rétt með farið

Reyndar keypti Sara Palin ekki fötin heldur keypti  Rebúblikaflokkurinn fötin á hana til að fata hana upp fyrir kosningar leiðangurinn. Fötin á síðan að selja og ágóðinn á að renna í góðgerðastarfsemi.
mbl.is Palin keypti föt fyrir 17 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Broslegur Breti

Hann ber kannski olíu á sig næst, þá ætti hann að renna eins og sleipur Breti LoL  
mbl.is Nakinn þjófur fastur í reykháfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

alltaf verið hlynntir Demókrötum

Og hvað, átti þetta að koma okkur á óvart? Sorglegt þegar fréttamiðlar gera sig seka um  að vera hlutdrægir og ekki lengur hægt að treysta á að fréttafærslan verði ekki hlutdræg. 
mbl.is Bandarísk stórblöð styðja Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband