Montin af stráknum.

Yngri sonur minn tók þátt í spurningarkeppni gagnfræðaskólanna hérna á Washington D.C svæðinu fyrir stuttu. Hann leiddi liðið í annað sæti. Eigum að mæta við hátíðlega athöfn upp í skóla annað kvöld þar sem börnin verða heiðruð. Hann var einnig einn af þrem frá skólanum okkar sem var valin til að taka þátt í sjónvarpsþættinum "It´s Academic". Þátturinn er búin að vera í gangi í 48 ár undir stjórn Mac McGarry. Sl. laugardag ókum við niður á NBC sjónvarpsstöðina í upptöku. Ég hef aldrei áður lagt leið mína í sjónvarpssal og fannst þetta auðvitað allt mjög spennandi. Við þurftum að bíða í dágóða stund þar sem verið var að taka upp annan þátt þegar við komum. Okkur var sagt að upptöku salurinn sem við vorum í er sá sami og notaður er við upptöku þáttarins "Meet the Press" sem Tim Russer heitinn sá um. Það fór meiri tími í undirbúning heldur en sjálfa upptökuna á spurningarþættinum. Ekki aðeins þátttakendurnir sem undirbúa þurfti, heldur einnig áhorfendur. Sviðstjórinn sagði okkur með handapati hvenær við ættum að klappa prúðlega, með ákafa og svo auðvitað með ofsahrifningu í lokin. Svolítið broslegt.  Þættinum verður síðan sjónvarpað laugardagsmorguninn 28 mars. 

100_1079                     100_1104 

Fyrir ykkur sem ekki þekkið til, þá er Erik minn sá í hvítu skyrtunni.

 


Fyrsti snjórinn

Frétt dagsins í gær var að fyrsti snjórinn féll á Washington D.C og svæðið hér í kring. Ótrúlegt hvað smá snjókoma getur ollið miklum usla hérna.  Venjulega er gatnamálastjóri hér í Norðurhluta Virginíu mjög fljótur að taka við sér áður en snjórinn lætur sjá sig. Stórir pallbílar fullir af salti sitja oft klukkutímunum saman við hraðbrautirnar og bíða eftir fyrsta snjókorninu. Ég hef oft furðað mig á þessari bensín eyðslu. Sama er með bæinn minn. Götur eru ruddar samstundis og borið á þær þannig að snjórinn nái ekki að festast. Þrátt fyrir allan þennan viðbúnað eru skólarnir  fljótir að taka þá ákvörðun að fella niður kennslu, sennilega vegna hræðslu við skaðabótamál. Mjög stór hópur barna ferðast til og frá skóla með skóla rútum (varla hægt að segja að við eigum almennings vagna hér í bæ) og stór hópur gagnfræðaskóla nema er á eigin bílum. (rúmlega 1.800 gagnfræðaskóla nemar undir sama þaki) 

 Einkvað fór úrskeiðið í gær. Þegar við vöknuðum voru alla götur óruddar, kennslu hafði ekki verið frestað. Það var eins og heimurinn hafi sofnað á vaktinni. Strákurinn minn er búin að vera að keyra frá því í haust svo ég lét til leiðast og leifði honum að fara á bílnum í skólann.  All í fyrsta sinn, ekki satt? Gott að ég gerði mér ekki grein fyrir mikilli hálku fyrr en ég þurfti að fara út stuttu seinna sem átti síðan eftir að versna með morgninum. Ég fór að efa ákvörðun mína og berja mig fyrir að hafa ekki látið hann æfa sig í snjó áður.  Hvað ef.... Það er ekki alltaf auðvelt að sleppa verndarvængnum yfir ungunum okkar. Þegar sonurinn kom heim úr skólanum seinna um morguninn í flughálku ljómaði hann af stolti og engin efi að sjálfsálitið óx heilan helling við þetta.

Í morgun vöknuðum við við klakalag yfir öllu. Hef á tilfinningunni að of margir foreldrar hafi fengið góðan skemmt af skrekk í gær og í dag eru allir skólar lokaðir.


skúffu kaka til að lífga upp á sálina

Þessi er bæði auðveld og meistaralega góð.

1 dós pæfylling td kirsuber (cherry)

1 dós 15oz marin ananas (ekki nota safann)

1 pakki þurrt gult kökumix

175gr. smjör (eða 1 1/2 stick)

1 bolli saxaðar hnetur (pecans)

Dreifið pæfyllingunni yfir botninn á 13x9

Setjið ananasinn ofaná. Hellið þurru kökumixinu yfir ananasinn.

Bræðið smjörið og hellið yfir kökuna. Dreifið söxuðum hnetunum yfir.

Bakist í 30 mín. við 175°C eða 350°F eða þar til kakan er gullbrún.

Berið kökuna fram volga.


Flott í tauinu

Ég hef nú ekki verið mikið hrifin af Michell Obama, en mér fannst hún samt virkilega hugguleg og fallega klædd við embættistökuna. Ég hefði nú bara ekkert á móti því að eiga svona kjól/kápu sett og mosagrænu hanskarnir fóru vel við og ekki er það nú verra að þeir eru í mínum uppáhalds lit. Hef bara ekki hugmynd um hvenær ég myndi nota þennan fatnað. Get víst ekki látið sjá mig í dressinu  í viðurvist hennar Errm
mbl.is Klæðnaður Michelle Obama umdeildur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öngþveiti

Þá er stóri dagurinn runnin upp, dagur sem margir hafa beðið með mikilli eftirvæntingu. Öryggisgæslan er gífurleg. Barnakerrur og vagnar eru bannaðir, kælikistur fyrir nesti eru bannaðar, regnhlífar eru bannaðar, stórar töskur eru ekki leyfðar og öll umferð inn í borgina frá Virginíufylki verið bönnuð. Allar brýr eru lokaðar nema fyrir fótgangandi umferð. Fólk hefur verið hvatt til að leggja bílunum sínum og nota Metro lestarkerfið. Á aðeins tveim klukkustundum frá því að Metro opnaði kl.4 í morgun og fram til kl.6 í morgun höfðu yfir hundrað þúsund manns ferðast inn í borgina. Rétt fyrir kl.8 hafði sú tala meir en tvöfaldast. Á sama tíma komu þær fréttir að margar af endastöðvunum hefði verið lokað vegna þess að bílageymslurnar væru yfirfullar. Þeir sem eru ekki á endastöðvum standa  upp á pöllunum og sjá troðfullar lestarnar bruna framhjá  án þess að stoppa.

Fólk tók að skilja bíla sína eftir við aðliggjandi götur og í nánd við lestarstöðvarnar og nú er verið að sekta og draga bíla í burtu í gríð og erg. Vinkona mín er með miða á innsetningar hátíðarathöfnina sem hefst kl.12 að staðartíma. Ég vona bara svo innilega að hún hafi farið af stað eldsnemma því ekki veit ég hvar hún ætlar að skilja bílinn sinn eftir né brjóta sér leið í gegnum mannhafið þarna niðurfrá.

Síðan verður það önnur martröðin að reyna að komast aftur heim þegar hundruð þúsunda manns flykkist í einni bunu að lestunum. Úff, held ég hiti mér nú bara kaffi og kíki á þetta í sjónvarpinu.

"The Beast" Limmósínan hans Obama er svo önnur saga. Mig langar að benda á fróðlega grein um bílinn hérna á  http://www.dailymail.co.uk/news/worldnews/article-1109082/The-Obamamobile-New-presidential-limo-unveiled--withstand-rocket-chemical-attacks.html?ITO=1490

 

article-1109082-02FD57B3000005DC-983_468x310_popup

 


mbl.is Eftirvænting í Washington
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sástu góða mynd um Jólin?

Það eru margar góðar bíómyndir í kvikmyndahúsunum þessa dagana, allavegana hérna úti. The Curious Case of Benjamin Button (Brad Pitt og Cate Blancett í aðalhlutverkum) er sennilega besta verk sem Brad Pitt hefur skila. Myndin er um dreng sem fæðist með hrörnunarsjúkdóm og lýtur út eins og gamalmenni en yngist upp með árunum. Mér var sagt að myndin hafi verið mjög góð, en því miður var ég hrikalega þreytt þegar ég sá myndina og átti erfitt með að halda mér vakandi og naut því myndarinnar ekki sem skyldi.  Held ég hafi meir að segja dottað á kafla. Svolítð neiðarlegt að það sé ekki hægt að fara með frúna í bíó eftir kl. 9

Slumdog Millionaire er einnig mjög góð mynd og er um útigangs börn í Mombei, á Indlandi og illa meðferð á þeim. Þegar aðalpersónan í myndinni vex upp tekur hann þátt í spurningar þættinum "Who Wants To Be A Millionaire?" í von um að æskuást hans sjái sig á skjánum og þau nái sambandi.  Myndin er mjög áhrifamikil og þó svo að endirinn sé góður leið mér illa eftir að hafa  horft á hana.

Mér fanst ég verða að sjá einhverja létta mynd eftir þetta, helst kómedíu svo ég  sá Marley and Me (Jennifer Aniston og Owen Wilson í aðalhlutverkum). Myndin er um ungt par sem fær sér Labrador hvolp (Marley) sem er algerlega óviðráðanlegur. Fljótlega bætast börn inn í fjölskyldu myndina og heimilislífið er oft vægast sagt í hershöndum. Marley  eldist og deyr í lok myndarinnar og allir sem hafa átt gæludýr vita hversu erfitt er að missa gæludýr. 'Eg held ég geti sagt að í lok myndarinnar gengu flestir út hálf skælandi og með tissue í hendinni. Ágætis mynd, en úff alger tearjerker í lokin. Seven Pounds með Will Smith er sögð vera góð mynd sem ég hefði ekkert á móti að sjá enda Will Smith frábær leikari. Hinsvegar hef ég heyrt að Yes Man með Jim Carry sé of kjánaleg og vitlaus til að eyða pening eða tíma í.

Mynd sem mig langar til að sjá er Revolusionary Road með Leonardo DeCaprio og Kate Winslett sem kemur út seinna í Janúar. Myndin lofar góðu og er jafnvel talað um Oskarsverlaun.             


Hrottaleg líkamsárás

Ég vona að það verði tekið harkalega á þessum óþverrum og þeir ekki  bara yfirheyrðir og sleppt. Menn sem veitast að lögreglunni og slasa eins og í þessu tilfelli ættu að eiga yfir höfði mun þyngri dóm en ef um væri að ræða almennan borgara þó það sé nógu slæmt. Það er ekki hægt að líða það að ráðist sé að lögreglunni, lögreglan verður að geta unnið sitt verk. Það má líta á þetta sem tilræði til manndráps. Mjög alvarlegt mál. Ég öfunda ekki laganna verði í dag.
mbl.is Lögreglumaður kinnbeinsbrotinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegt ár

Ég bjó í sama húsinu við Fjólugötu frá því ég var 7 ára gömul og þar til ég gifti mig og flutti að heiman eða í samtals 15 ár. Fjólugatan er yndisleg gata að búa við og nágrannar okkar voru allir gott fólk.  Fullorðna fólkið heilsaðist en fór síðan sína leið. Pabbi tók ofan fyrir frúnum og bauð góðan daginn. Ég man ekki til þess að fólk staldraði við út á gangstétt til að spjalla um daginn og veginn né að börnum hafi verið yfirleitt heilsað  þegar við mættum fullorðna fólkinu.  Fólk var sennilega meira samansaumað í þá daga. Auðvitað áttum við systkinin okkar vini og suma held ég enn sambandi við eftir 32 ára búsetu erlendis.

Tölvuvæðing og Internetið hefur breytt samskiptum manna. Internetið gerir það auðvelt að vera í stöðugu sambandi við vini okkar með tölvupósti og á Facebook. Við bloggum um skoðanir okkar af frjálsum vilja, setjum inn færslur hjá fólki sem við vitum engin deili á og tökum við kommentum frá bloggurum og bloggvinum, sumum sem við höfum aldrei séð, allt bara sjálfsagður hlutur og kannski vegna þess að við getum varið okkur á bak við skerm.  

Hverjum dytti í hug að taka allt í einu upp á því að ganga upp að blá ókunnugri manneskju í Bankastrætinu og gefa viðkomanda álit sitt á hinu eða þessu. Einkvað smá skrýtinn þessi, myndi maður hugsa.

Það er einmitt þetta sem er svo heillandi við bloggið, það tengir okkur saman því við erum öll "systkini" í augum Guðs. Við getum hughreyst hvort annað og sent góða og jákvæða strauma. Við þurfum öll á því að halda. 'Eg hef áður skrifað um vísindamanninn Randy Paush sem dó fyrr á árinu. Þegar hann var barn kvartaði hann yfir fótbolta þjálfaranum sem honum fannst vera of afskiptasamur og stundum dómharður. Randy benti á að þegar fólk hættir að "skipta sér að" hættir að leiðbeina eða krítesera er það í rauninni merki um áhugaleysi gagnvart viðkomanda. Haldið því áfram að blogga og verið góð við hvort annað. Þakka allar heimsóknirnar á árinu og kommentin.

Ég óska ykkur öllum gott og gæfuríkt komandi ár.  Wizard

 

!!GLEÐILEGT ÁR !!


Gleðileg Jól

Gleðileg Jól kæru vinir. Í dag höldum við upp á fæðingu frelsara vors. Undirbúningur jólanna er auðvitað misjafn á milli heimila. Ég setti inn nokkrar myndir hér til hliðar frá okkar jóla undirbúningi. Megi fagnaðarerindi jólanna lifa í hjörtum ykkar og ég óska ykkur öllum blessunarríkt komandi ár.

100_0952 


Sjálfsagt

Það er ekkert sjálfsagðara en að umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt standist próf í íslensku. Eins ætti að vera skilyrði að þessir umsækjendum  læri um landið og þjóðina. Áður en maður gerist Bandarískur þegn þarf að standast próf um land og þjóð.  

Einnig ætti einstaklingar sem sækir um að búa á Íslandi þurfi að gangast undir "background check" og að gengi verði úr skugga um að viðkomandi sé ekki eftirlýstur eða með glæpaferil að baki.

Hvernig er það, hversu lengi getur erlendur þegn búið í landinu ef hann/hún er ekki giftur íslending? 


mbl.is Íslenskupróf skilyrði fyrir ríkisborgararétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dorrit lét sig hverfa

og hverjum er svo sem ekki sama. Efnislaus frétt og kannski enn efnislausara að vera að blogga um þetta, hmmm. Ég er samt að undrast yfir hvers vegna hún lét sjá sig til að byrja með. Var það til að styðja foreldra sína eða bara til að geta gert smá "networking" fyrir sjálfa sig og þegar engin spennandi gestur var á staðnum  lét hún sig hverfa. Hversu oft höfum við ekki öll verið í boði, engan þekkt og staðið vandræðaleg með glasið í hendinni? Já glas í hendi reddar öllu við svona aðstæður. Alltaf hægt að daðra svolítið við glasið. Hún hefði geta snúið þessu upp í "hit partý" Svo var kannski aldrei ætlunin að staldra við eða að hún fékk bara magapínu og varð að fara heim.


mbl.is Dorrit staldraði stutt við í veislu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Saltkjöt, nammi namm

Í morgun var saumaklúbbur hjá okkur íslensku konunum sem búa hérna á Washington D.C svæðinu. Við komum saman einu sinni í mánuði sem er alltaf tilhlökkunarefni og oft eini tíminn fyrir okkur til að viðhalda íslenskunni. Við byrjum morguninn með kaffi og einhverju gómsætu. Síðan er borin fram hádegisverður og í dag fengum við girnilegt saltkjöt með rófum og kartöflum og baunasúpu. Það er ekki oft að maður fær íslenskt saltkjöt og því fannst mér ég þurfa að borða nógu hægt til að geta notið hvers einast  bita. Margt sem maður saknar af skerinu og við erum svo dæmalaust lánsöm að vera fædd í eins frábæru landi og Ísland er.


Kirkjan eða eiginkonan

Þessi saga vakti óneytanlega athygli mína. Maður nokkur að nafni Johnny Harsh í Oshkosh Wisconsin er kapteinn í Hjálpræðishernum og hefur starfað með honum í 14 ár og ætti því að vera nokkuð fróður um reglur kirkju safnaðarins. Eiginkona Johnny var einnig foringi í Hjálpræðishernum en hún dó fyrr á árinu. Fljótlega kynntist Johnny annarri konu bæði fallegri að innan sem utan eins og hann segir sjálfur og ráðgerði að giftast henni nk. júní þar til Hjálpræðisherinn greip í taumana. Á heimasíðu Salvation Army kemur mjög greinilega fram að "must marry another Salvation Army officer or leave his or her officer status."  Sem sagt Johny missir stöðu sína og starf ef hann giftist útfyrir söfnuðinn. Það er víst eins gott að huga að ýmsu áður en maður fer að skuldbinda sig. Mörg okkar standa í þeirri trú að Hjálpræðisherinn sé aðeins góðgerðarstofnun en er í rauninni rótgróið kirkju samfélag  stofnað 1865. Má lesa meir um þetta hér

Obama $8 virði

'Eg fékk þennan $8 seðil í hendurnar fyrir stuttu. Skildi upphæðin standa fyrir árin sem Obama mun sitja við völd, þe. tvö tímabil ? Ég held ég láti nú samt ekki reyna á það að fá seðlinum skipt þó svo að hann sé mjög "ekta" að sjá.

 Obama Dollars

 


Er þetta Victoria´s secret?

ljúf brjóst, ha

 image00111

Kíktu betur,

 

 betur,

 

ah,

 

 

 

 

 

 image00222

 


Ekki byrja allir lífið jafnt.

Eins og mér er vant fór ég upp á spítala í gær og tók myndir af nýburunum sem voru að fara heim og gekk síðan inn á herbergi til mæðranna sem áttu að fara heim í dag og leiðbeindi þeim með hvaða eyðublöð ættu að vera tilbúin fyrir morguninn. Ég veitti því athygli að í einu herberginu sat "vinkona" í stól við hlið rúm móðurinnar. "Vinkonan" var klædd þykkum svörtum jakka með loðkraga og var búin að breiða teppi yfir sig næstum upp að herðum.  Snemma í morgun þegar ég gekk inn í sama herbergi til að sækja barnið og undirbúa fyrir myndatöku sat vinkonan enn í stólnum og virtist ekki hafa hreyft sig nema að nú lá teppið aðeins yfir fótleggjunum og skein í lögregluskjöld á hægra brjóstinu.  Mér varð ljóst að móðirin var undir gæzlu lögreglu. Hún bað mig um að bíða með myndatökuna því fötin sem barnið átti að klæðast voru á leiðinni. Henni var mikið í mun um að fá að klæða barnið sitt sjálf heldur en að láta okkur klæða það. Ég skildi að þetta var sennilega í eina skiptið sem hún fékk að klæða drenginn sinn. Ég dró að fara aftur inn til hennar til að gefa henni meiri tíma með barninu. Síðan bað hún um hvort hægt væri að reyna að hafa augun opin því hana langaði til að geta horft í augun á honum. Guð veit hvað við reyndum að vekja barnið en hann var algerlega "out". Búin að fá volga mjólk og svaf vært. Væri svo ekkert hissa á því að það væru eftirstöðvar af eiturlyfjum í barninu. Barnið var síðan sótt af eldri svertingja hjónum svo það var augljóst að hann var sendur í fóstur (þar sem móðirin var hvít og hjónin gátu því ekki verið amman og afinn)og móðirin var leidd út í kuldann í lögreglufylgd og sennilega beint í steininn.  Eina sem hún hafði í fórum sínum voru minningarnar og myndirnar af barninu sem ég gaf henni. Þetta var einkvað svo trist og átakanlegt. Móðirin hálfgerður aumingi og lítil framtíð fyrir barnið. Börn sem eru send í fóstur ganga oft á milli heimila þar til þau eru nógu gömul til að sleppa þeim lausum á götuna. Börn sem engin vill.  Ég bað móðurina að fara vel með sig og óskaði henni velgengis.

ojbarasta

Gott mál að styrkja lamaða og fatlaða en hverslags smekkleysa er þetta í fólkinu. Jeminn einasti, hvað kemur Grýla jólunum við?
mbl.is Grýla prýðir Óslóartréð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög gott graskerapæ (Pumpkin pæ)

í tilefni dagsins á morgun, set ég þetta inn aftur. Prufið og látið mig vita hvað ykkur finnst. Happy Thanksgiving.

3/4 bolli smjör

2 bollar hveiti

1/4 tesk. salt

2/3 bolli púður sykur

1/2 bolli smátt saxaðar Pecans eða walnuts

5-6 matsk. kalt vatn

1 3/4 bolli eða 15 oz dós af pumkin

1/2 bolli sykur

2 tesk. pumkin pie krydd*

1/4 tesk. salt

3 egg

1/4 bolli  sýrður rjómi

1 bolli matreiðslu rjómi

1 tesk. vanilludropar

1) fyrir pie skelina, létt bræðið smjörið við miðlungs hita. Passið að hita það ekki of mikið því það á eftir að dekkjast meðan það kólnar. Setjið til hliðar og látið kólna.

2) blandið saman hveiti, 1/4 tesk. salti í miðlungsstórri skál. Bætið við smjörinu og blandið saman þar til það líkist grófri milsnu.

3) Til að gera mylsnuna sem fer yfir pæið,  takið  3/4 bolla af milsnunni og bætið við helmingnum af púðursykrinum og hnetunum.  Geymið.

4) blandið 1 matskeið af kalda vatninu saman við það sem eftir var af mylsnunni. Varlega blandið saman með gafli og bætið við restinni af vatninu varlega saman við þar til myndast hefur kúla.

5) Setjið hveiti á borðflöt og fletjið deigið út þar til það er ca. 30cm í þvermál og setjið í kringlótt eldfast fat sem er ca. 23cm. Jafnið kantana upp við barmin.

6) Hitið ofnin að 190 gráðum. 'I stórri skál, bætið saman  pumkin, sykri, 1/3 bolla af púðursykrinum sem eftir er, pumkin pie kriddinu og 1/4 tesk. af salti. Bætið við eggjunum og sýrðum rjóma. Blandið saman með gafli þar til létt blandað. Bætið við matreiðslu rjómanum og vanilludropunum.

7) varlega hellið hrærunni í pæ skelina. Til að varast að röndin brenni ekki er gott að setja þunna ræmu af álpappír meðfram röndinni. Bakist í 35 minútur. Takið álpappírinn af og stráið hnetumylsnuna yfir pæið og bakið í 20 mínútur til viðbótar eða þar til pinna sem stungið er í pæið kemur út hreynn. Látið kólna.

* til að gera heimatilbúið pumpkin krydd, blandið saman 1 tesk. kanil, 1/2 tesk. engifer, 1/4 tesk. múskat og 1/8 tesk af allspice.


Þakkagjörðardagur

Á morgun fimmtudag er haldið upp á Thanksgiving Day eða þakkagjörðardaginn hér í Bandaríkjunum. Fleiri ferðast um þessa helgi heldur en á nokkurm öðrum tíma á árinu. Það er til siðs að bera fram kalkún með öllu tilheyrandi eins og sætum kartöflum (sweet potatos), maís, grænar baunir (aflangar), cranberry sultu og heimabökuðu maísbrauði. Ekki má gleyma graskerapæi (pumpkinpæ) epplapæ, peacanpæ og cranberrypæ. Eftir matinn er oft setið yfir amerískum fótbolta Gasp 

Ég er með uppskrift að frábæru graskerapæi í uppskriftunum mínum. 'Eg ætla að reyna að vera dugleg og bæta freirum við.

Graves Mountain                          100_0872 

 Haustlegt í Virginíu                          Hér er íkorni að gæða sér á  graskeri 

                                                        fyrir framan dyrnar hjá mér.             


Kjúklingur með ananassósu

3/4 Bolli hveiti

1/4 tesk. Salt

1/4 Tesk. Sellerí salt

1/4 Tesk. hvítlauks salt eða 1-2 báta ferskan hvítlauk

1/4 Tesk. múskat

Má nota kjúklingaleggi eða bringur. Ef nota á bringur sker ég þær í bita.

1/2 bolli smjör eða smjörlíki til að steikja upp úr

1 15 oz dós ananas (smátt skorin)

3 matsk. hveiti (eða afgangurinn af þurrefnablöndunni hér að ofan)

1 matsk. sykur.

soysósa eftir smekk.

Blandið fyrstu 5 þurrefnunum saman og notið til að velta kjúklingnum upp úr.

Veltið kjúklingnum upp úr þurrefnunum. Bræðið smjörið á stórri pönnu og brúnið kjúklinginn. Færið kjúklinginn yfir á ofnfastadisk. Setjið til hliðar safa af ananasnum í 1 bolla. Setjið ananas bitana yfir kjúklinginn.

Setjið 3 matskeiðar af þurrefnunum á pönnuna og sykurinn og hrærið vel  með smjörinu sem eftir er á pönnunni. Þynnið út með ananas safanum og bætið soysósu eftir smekk. Hrærið þar til sósan þykknar og hellið yfir kjúklinginn og bakið við 175° í eina klukkustund.  Einnig má setja kjúklinginn aftur í sósuna á pönnunni, setja lok á og elda við hægan hita á pönnunni.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Erna Hákonardóttir Pomrenke
Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þögull heili er byrjunin á dauðanum

ernahp@gmail.com

Nýjustu myndir

  • 100_1104
  • 100_1079
  • article-1109082-02FD57B3000005DC-983 468x310 popup
  • rauðkál, kartöflur og baunir átti eftir að láta sjá sig
  • 100_0952
  • Ekki má gleyma piparkökunum
  • 100 0951
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 32754

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband