10.10.2008 | 19:33
Við getum öll hjálpast að
Bréfið hér fyrir neðan gengur nú um Internetið og get ég ekki verið meira sammála svo ég ætla að birta það hér á síðunni minni. 'Eg vil bæta við að nú er einnig tími til komin að skerða notkun á krítar og debet kortum. Ekki að eyða umfram það sem við eigum. Ef ekki er peningur í buddunni eigum við sennilega ekki fyrir hlutnum.
Kæra samstarfsfólk og aðrir Íslendingar!
Þegar illa árar í peningamálum hjá okkur Íslendingum verðum við öll að
leggja okkar að mörkum til að ná jafnvægi aftur. Mikill gjaldeyrisskortur
hrjáir okkur og það sem við getum gert til að hjálpa til við að rétta
skútuna af aftur er að breyta okkar neyslumynstri, draga úr öllum óþarfa og
kaupa íslenskt. Við verðum að byrja á þessu strax og megum engan tíma missa.
Einhver mundi segja að allt sé í raun útlent þó framleitt sé á Íslandi en
það sparar samt að kaupa það sem er framleitt á Íslandi þó hráefnið sé flutt
inn þar sem mun ódýrara er að flytja inn hráefni en fullunna vöru. Einnig
styrkjum við íslenskan iðnað og höldum störfum í landinu.
Stöndum saman og látum ekki einhverja óvildarmenn hlakka yfir óförum okkar
Íslendinga. Kaupum íslenskt, íslenskar bækur, - kjöt,kartöflur -osta og
fisk. Nú er verið að kvetja fólk til að hamstra vörur. Kæri Landi! það er
það vitlausasta sem við gerum. Hvað erum við bættari með að vera með full
búr af mat ef nágrani okkar sveltur? Haldið ró ykkar og eyðið ekki peningum
í vitleysu með hamstri. SPARIÐ, SPARIÐ SPARIÐ!!!
Þessar línur hér á undan sendi ég fyrir helgi til nokkurra vinnufélag í
gamni mínu en hef nú ákveðið að senda þetta til ykkar allra þar sem í ljósi
síðustu atburða tel ég enn brýnna en áður að við öll tökum okkur tak,
stöndum saman og spörum hinn geysi dýrmæta gjaldeyri og styrkjum íslenskt og
íslenskan iðnað. Við munum, ef við stöndum saman, ná að rífa okkur okkur upp
úr þeim öldudal sem við erum stödd í mun fyrr ef við bendum ekki bara á
næsta mann og segja að hann geti sparað en ekki ég.
Kæru vinnufélagar. Endilega sendið svona bréf (ekki þetta bréf endilega) til
allra sem þið þekkið og náum upp stemningu.
Áfram Ísland og Íslendingar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.10.2008 | 03:55
Go Sarah go!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
2.10.2008 | 17:43
Allt getur gerst
Ekki ætla ég að fara að missa svefn yfir þessari frétt enda er vitað mál að Bandarískir fjölmiðlar eru Obama mjög hliðhollir. Hlakka til að sjá kappræðuna á milli Palin og Biden í kvöld. Mig langar til að benda á ágæta grein sem birtist á bbc. http://news.bbc.co.uk/2/hi/americas/7643879.stm
Fyrir nokkru var verið að ræða um verðmæti kosningar "hnappa" í sjónvarpinu. Td. hnappur með mynd af frambjóðandanum er verðmætari en hnappur með aðeins slagorði. Joe Biden var á blaðamannafundi fyrir nokkru og lét hafa það eftir sér að Hillary Clinton hefði verið betri kostur fyrir Obama heldur enn hann sjálfur. Nokkuð furðulegt af frambjóðanda að segja svona og vakti upp þá umhugsun hvort Obaman væri í þann veginn að skipta um förunaut. Ef úr því hefði orðið og Biden dottið út, hefðu hnapparnir með Obama og Biden orðið verðmeiri og eftirsóttir fyrir safnara.
Palin fellur í áliti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2008 | 17:49
Bleikar slaufur og bleikir hárlokkar
Októbermánuður er tileinkaður brjóstkrabbameini og bleikar slaufur eru seldir víða um heim til styrktar krabbameins rannsóknum og til að minna okkur á að fara reglulega í skoðun og láta fylgjast með okkur. Ein snyrtistofan hér í bæ hefur boðið upp á að setja bleikan hárlokk (hair extention) í viðskiptavini fyrir $10 til styrktar krabbameins rannsóknum. Snemma á síðastliðnu ári greindist ég með brjóstkrabbamein. 'Eg tel það hafi bjargað lífi mínu að ég var send í STAFRÆNA RÖNTGENTÆKJA myndatöku. 6 mánuðum áður hafði ég farið í venjulega röntgenmyndatöku og við þá skoðun kom ekkert óeðlilegt fram.Ég var heppin að krabbameinið náðist á byrjunarstigi og var ekki komið á það stig að vera ber eða hnútur heldur krabbameins frumur víðsvegar í brjóstinu. Stafræn röntgentæki "sjá betur" í gegnum þykk brjóst og eru því oft betri sérstaklega fyrir yngri konur. Röntgen tæknirinn sá strax að ekki var allt með feldu. Á meðan ég stóð þarna með brjóstið stíf klemmt sagði hún mér að hún yrði að skoða enn betur í sónar (ómtæki) og sagði mér að ég yrði að leita til skurðlæknis sem allra fyrst. Helst hefði mig langað til að kannast ekkert við að eiga þetta brjóst og flýta mér út og eins langt frá því og hægt væri. Sá var ekki kosturinn. Krabbameinið var á fleiri en einum stað og næst var ég send nokkrum sinnum í MRI og brjóstið "kortalagt" og mælt nákvæm hvar þessar krabbameins frumur voru staðsettar. Eftir tvær skurðaðgerðir til að reyna að fjarlægja krabbameinið var það ráð tekið að fjarlægja brjóstið með þriðju aðgerðinni. Þetta er ekki óalgengt með krabbamein á byrjunarstigi því ekki er um sjáanlegan hnút að ræða og þvi oft erfitt að "sjá" jaðarinn á krabbameins frumunum. Í Bandaríkjunum er talið að ein af hverjum átta konum greinist með brjóst krabba á lífsleiðinni. Búist er við að á árinu 2008 bætist við 182.460 nýjum tilfellum hjá konum og 1.990 hjá körlum. Við megum ekki líta framhjá þeirri staðreynd að karlmenn geta fengið krabbamein í brjóstið.
Smellið á til að sjá bleika lokkinn minn betur.
Á síðastliðnum 25 árum hefur brjóstkrabba tilfellum fjölgað um 30% hjá vestrænum þjóðum sem stafar af auknu eftirliti og greiningu krabbameins á byrjunarstigi. Þar af leiðandi hefur dánartíðni lækkað. Á árunum 2000-2004 fækkaði greindum brjóstkrabbameins tilfellum um 10% í Bandaríkjunum sem má þakka minnkun hormóna notkunar kvenna.
Oft finna konur sjálfar ber í brjósti. Reglan hér í Bandaríkjunum er að konur 40 ára og eldri fari í mammogram (brjóst myndatöku) á hverju ári .
Það er margt sem við getum gert til að minka líkurnar á því að fá krabbamein eins og td. borða hollan mat sérstaklega grænmeti og ávexti, draga úr neyslu á rauðu kjöti, reykja ekki, drekka í hófi og sem minnst, hreyfing og varast að fitna.
Ég spurði föður minn einu sinni hvort hann hafi farið í blöðruhálskrabbameins skoðun. Hann sagði nei, ég hef aldrei verið kallaður. Ég vona svo innilega að fólk haldi ekki að það þurfi að fá boð til að fara í skoðun. Eftir fimmtugs aldur ættu allir karlmenn að fara í blöðruháls skoðun. Hvernig skildi standa á því að kvenfólk er kallað í krabbameinsleitarskoðun (legháls og brjóst) en ég veit ekki til þess að það sé nein skipulögð leitarskoðun hjá karlmönnum? Karlmenn leita síður til læknis en kvenfólk og því mjög mikilvægt að það sé náð til þeirra. Þegar krabbamein næst á byrjunarstig er það mun viðráðanlegri og batahorfur góðar.
Lesandi góður, spurðu móðir þína, systir eða dóttir hvort hún hafi farið í skoðun. Spurðu föður þinn, son eða bróðir hvort hann hafi farið í skoðun.
Lifðu vel.
Hér eru góðar upplýsingar http://www.cancer.gov/cancertopics/types/breast
40.000 bleikar slaufur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 2.10.2008 kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
29.9.2008 | 22:19
lasinn læknir en bloggvinur bætti daginn
Í morgun ók ég niður á Georgetown University Hospital þar sem ég þarf að mæta til skurðlæknisins míns á 6 mánaða fresti í eftirlitsskoðun. Þegar þangað er komið er biðstofan sneisafull af fólki. Ég geng upp að afgreiðsluborðinu og innrita mig og þá segir ritarinn að Doktorinn minn sé á eftir áætlun og hvort mér væri sama þó ég sæi einhvern annan lækni. Síðan bætir hún við að doktorinn hafi veikst og liggi fyrir, en ætli að fara heimleiðis þegar svimi líði hjá. Ég varð að bíta í það súra eppli því hvað er annað hægt að gera? Ekki ætla ég að fara að láta líða yfir doktorinn. Ég var búin að panta þennan tíma fyrir 3 mánuðum en læknar eiga það til að veikjast eins og við hin. Reyndar alveg merkilegt að þeir skuli ekki vera sílasnir þar sem þeir eru daglega innan um alla þessa vesalings sjúklinga. Ég sá síðan staðgengil læknisins míns sem var ung og falleg kona. Hún vildi fá mig aftur eftir 3 mánuði eftir að ég hef farið í mammogram (brjóstaexray). Ekki get ég kvartað yfir því að ekki sé fylgst vel með mér þarna á Georgetown. Allt til fyrirmyndar á þeim bæ.
Eftir að búið var að ganga frá öllu á Georgetown og panta tíma fyrir næstu heimsókn brá ég mér yfir til hennar Ólafar bloggvinkonu minnar sem er guðfræðinemi í Washington D.C. Hentar mjög vel að fara til hennar frá Georgetown. Heimsóknin var sérstaklega ánægjuleg og gaman að kynnast Ólöfu. Hér er mynd af okkur bloggvinkonunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.9.2008 | 22:03
Getur varla verið íslenskara
Eitt af því fyrsta sem ég læt verða af að gera á haustin er að setja sængurnar aftur á rúmin því sumar mánuðir hér eru of heitir til sængur nota. Mikið lifandis ósköp er gott að kúra undir sæng enda sváfum öll yfir okkur fyrstu tvær næturnar með sængurnar aftur á.
Í dag var ekta íslenskt veður. Það hefur kólnað töluvert hjá okkur og seinnipartinn tók að hvessa og rigna. Ég dró pönnuköku pönnuna mína fram og gerði nokkrar pönnukökur handa syninum sem ég vissa að myndi gera mikla lukku. Í kvöld bíða sængurnar okkar og fátt er betra heldur en að kúra undir hlýrri sæng og hlusta á regnið berja á gluggana. Já heimurinn fer á mis að þekkja ekki íslenskar pönnukökur og dún sængur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.9.2008 | 21:06
Gleðilegt Haust
Gleðilegt haust. Í dag 22 september heldur fyrsti dagur haustsins innreið sína. Víðsvegar um heim miðast árstíðarnar við sólstöðu eða jafndægur, ekki veðurfar. Árstíðarnar eru einnig allar jafnlangar og ná yfir 3 mánuði hver hvernig sem viðrar, nema á Íslandi. Þannig að sl. vor byrjaði þann 20 mars og stóð til 21 júní sem er fyrsti dagur sumars. Haustið byrjar ekki fyrr en 22 september og veturinn byrjar síðan ekki fyrr en 21 desember.Í Almanaki Háskóla Íslands http://www.almanak.hi.is/ segir: árstíðir, tímaskeið sem árinu er skipt í eftir árlegri sveiflu veðurfarsins. Aðalárstíðirnar eru venjulega taldar tvær, sumar og vetur, og samkvæmt því er árinu skipt í íslenska misseristalinu (-> tímatal, forníslenskt). Á mótum aðalárstíðanna eru svo tvær aukaárstíðir, vor og haust. Mörk þeirra hafa verið skilgreind á fleiri en einn veg. Er oft látið svo heita að þau séu við jafndægur og sólstöður. Nær þá vorið frá vorjafndægrum að sumarsólstöðum, sumarið síðan fram að haustjafndægrum, o.s.frv. Orsök árstíðaskiptanna er möndulhalli jarðar sem veldur því að norðurskaut og suðurskaut hallast að sól á víxl á göngu jarðar um sólina. Við Íslendingar höldum upp á Sumardaginn Fyrsta, fyrsta fimmtudaginn eftir 18. apríl. Á síðu Veðurstofu Íslands segir að haldið sé upp á Sumardaginn fyrsta annan fimmtudaginn eftir Leonisdag (Leonisdagur er 11 apríl) sem er jafnframt fyrsti fimmtudagurinn eftir þann 18 apríl (þ. e. á tímabilinu milli 19.-25. apríl). Það er því ekki skrítið þó fyrsti sumardagurinn okkar sé oft hráslagalegur og gengur jafnvel á með éljum. Annarstaðar á norðurhveli jarðar er vorið rétt farið að láta sjá sig og við á hjara veraldar erum að státa okkur af fyrsta sumardeginum. Það kemur svolítið spánskt fyrir sjónir að við nútíma Íslendingar miðum komu sumarsins við þennan Leonisdag sem var tileinkaður Leó mikla, páfa í Róm en hann dó árið 461.
Til gamans má nefna að lægsti hiti sem mælst hefur á landinu á sumardaginn fyrsta (frá og með 1949) var í Miðfirði 21 apríl árið 1988 og mældist aðeins -18,2° og í Reykjavík var sjódýptin 4 sentímetrar á sumardaginn fyrsta árið 1949. Í almanakskýringum Háskóla Íslands segir síðan: Vetrardagur, fyrsti, laugardagurinn að lokinni 26. viku (í sumaraukaárum 27. viku) sumars. Fyrsta vetrardag ber upp á 21.-27. október, nema í rímspillisárum: 28. október. Um eitt skeið (a. m. k. frá 1600 og fram yfir 1800) var venja að telja veturinn hefjast á föstudegi, en reglur þær sem nú er farið eftir í íslenska almanakinu, eru engu að síður gamlar, að líkindum samdar á 12. öld. Í gamla stíl (júlíanska tímatalinu) var vetrarkoman 10.-17. október ef miðað er við föstudag
Bæði fyrsti sumardagur og fyrsti vetrardagur voru messudagar fram til ársins 1744.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.9.2008 | 20:31
Palin-Clinton 2012 ?
Það hefur ekki borið mikið á Hillary Clinton eftir að hún féll frá sem forsetaefni Demókrata. Þó svo að Hillary Clinton hafi lýst stuðningi sínum við Barrack Obama og beðið aðdáendur sína um að styðja Obama í forsetakosningunum hefur hún sjálf legið lágt.
Væri það kannski henni til gæfu ef Obama yrði ekki fyrir valinu að setjasð að í Hvíta Húsinu? Joe Biden er ekki vinsæll meðal kjósenda og á örugglega ekki eftir að gefa aftur kost á sér árið 2012 enda er karlinn orðinn lúinn. Fylgi McCain hefur aftur á móti stór aukist með vali hans á Sarah Palin. Hann hefur yngst upp með þessa göfugu frú sér við hlið. Ég tel að almenningur beri meira traust til McCains sérstaklega eins og hvernig þetta ófremdar efnahags ástand er í dag. Obama mun hækka skattana, það gera Demókratar alltaf og eins og ástandið er í dag hefur almenningur ekki bolmagn til þess að þola hærri skatta. Nauðungar uppboð orðið daglegt brauð, vinnumissir og almenningur með verulegar áhyggjur af ástandinu.
2012 verður spennandi ár í forseta kosningunum þar sem miklar líkur eru á að Hillary Clinton og Sarah Palin verða uppistandandi frambjóðendur flokka sinna í forseta kosningunum.
Stjórn Palin og McCains" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
18.9.2008 | 14:23
Karla klósett
Ein blogg vinkona mín vakti upp þá spurningu hvers vegna við dömur erum tregar við að nota karlaklósettin. Myndin hér fyrir neðan skýrir mitt svar betur en nokkurt orð getur gert. Annars væri gott ráð hjá körlum að hafa poka í vasanum með Cheerios hringjum og henda einum ofan í klósettið til að hafa einkvað til að miða á. Geta æft sig í tippa skyttu fimni
Smellið á til að stækka myndina. Vel þess virði.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.9.2008 | 13:05
gúnguskapur í dómstólum
Hvernig er hægt að leyfa annarri þjóð (Noregur í þessu tilfelli) að vaða svona yfir okkur og hunsa íslenskan dóm? Hvaða máli skiptir það okkur hvaða reglur eru í gildi í Noregi eða annarstaðar í heiminum í máli um forráðarétt íslenskra þegna? Þýðir þetta að nú getur hver sem er flutt úr landi með börnin og látið breyta umráðarétt barnanna því íslenskir dómstólar eru linir og virðast ekki hafa bein í nefinu til að stöðva það sem ég myndi kalla mannrán. Ekki gott mál.
"Almenna reglan á Íslandi er sú að ef um barn yngra en 18 ára er að ræða þá þarf samþykki frá báðum foreldrum eða þá staðfestingu frá sýslumanni eða öðrum á því að viðkomandi foreldri sé með fullt forræði".
Fluttur til Noregs án samþykkis móður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.9.2008 | 17:41
mannvonska
Illvíg deila nágranna í Kjós | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.9.2008 | 14:46
Super cool sticky notes
Mikið fjör á þessari skrifstofu og engin ástæða til að kvíða komu mánudagsins. Sá þessa stórskemmtilegu menn í sjónvarpinu hjá mér í morgun. þið getið séð meir af þeim á www.eepybird.com Skoðið myndbandið fyrst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.9.2008 | 02:37
Mikil stemning hjá McCain og Palin
Obama er einfaldlega að missa stjórn á sjálfum sér og virðingu frá kjósendum. Dónaleg framkoma hans og skítkast í garð Söru Palin hefur lagst illa í alla hvort sem það eru demókratar eða repúblikanar. Hann lagði sig lágt þegar hann líkti henni við svín með varalit. Hann sér augsýnilega mikið eftir því að hafa sniðgengið Hillary Clinton
Sara Palin aftur á móti hefur unni hjarta þjóðarinnar og nýtur geysilega mikilla vindælda. 'Eg fór á rallý með McCain og Söru Palin í gær í Fairfax. Fyrst átti að halda fundinn í gagnfræðaskóla, en þar sem aðsóknin í inngöngumiða var svo mikil var staðsetningin flutt yfir í Van Dyke garðinn þar sem yfir 23.000 manns söfnuðust saman. Ég býst við að biðröðin við hliðið hafi verið ca.1,6 km löng. Frábær stemning var á staðnum og fer ekki á milli mála að ef McCain verður kosin forseti er það mikið til vegna vinsælda Söru Palin.
Joe Biden varaforseta efni Obama var í New Hampshire í dag og sagði á fundi að Hillary hefði verið betri kostur sem varaforseta efni. Furðulegt af frambjóðanda að segja svona. Í útvarpinu var síðan rætt um það hvort Obama væri að íhuga að gefa honum spark og láta til leiðast og skríða til Hillary. Hann er að missa allt niður um sig.
Smellið á myndirnar til að stækka þær
Biðröð
Sakaður um kvenfyrirlitningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 12.9.2008 kl. 04:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
6.9.2008 | 14:16
Hanna
Búið að vera mjög þurrt það sem af er af mánuðnum og jörðin uppskrælnuð. Við erum búin að bíða með eftirvæntingu eftir Hönnu og nú hefur daman loksins látið sjá sig. Rigndi af og til í nótt og jörðin sleikti upp hvern dropa sem féll, en nú er komin stöðug úrhellisrigning og stórir pollar farnir að myndast en samt á eftir að herða á rigningu og vindum. Hanna á að vera yfir Alexandríu um kl.2 í dag á svipuðum tíma þegar háflæði er í Potomac ánni sem veitir ekki á gott. Síðast þegar við fengum svona úrhelli, þustu maurarnir inn í hús til okkar til að leita sér skjóls. 'Oskemmtileg heimsókn sem endaði með útrýmingar herferð.
'Arlega drukkna um 250 manns (í USA) í bílum sínum við það að reyna að aka yfir götur sem eru undir vatni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2008 | 19:33
og hvað verður um gömlu bílana?
Hver skildi heildartala innfluttra bíla vera á ári hverju og hvað verður um gömlu skrjóðana sem enginn vill? Ekki gufa þeir bara upp. Sem betur fer man ég ekki til þess að hafa séð "bílakirkjugarð" eða "junk yard" eins og maður sér erlendis. Hvað verður um bíl hræin? Vonandi eru þau ekki send til vanþróaðra ríkja.
Nýskráningar bíla ekki færri í sex ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 6.9.2008 kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.9.2008 | 14:56
Vonandi fer þetta betur
Dregur úr styrk fellibyls | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2008 | 21:23
Sarah Palin, glæsileg og eldklár
Nú kom hann okkur svo sannarlega á óvart. Snilldarval hjá McCain sem fáum datt í hug nema kannski einum ungum manni sem hefur verið að blogga um hana og safna undirskriftum allt frá 2007. Gaman að kíkja á bloggið hans http://palinforvp.blogspot.com/
Þessi 5 barna "hockey mom" eins og Sarah Palin kallar sig lét fyrst til sín kveða í foreldrafélagi barnaskólans í heimabæ sínum í Alaska(parents teachers association). Sat síðan í borgarstjórn og sem leiddi hana upp stigann í embætti ríkisstjóra Alaska sem hún hefur þjónað í tvö ár við miklar vinsældir. Þegar hún tók sæti í borgarstjórn var það hennar fyrsta verk að "hreinsa til" og rak meðal annars lögreglustjórann fyrir spillingu. Sarah er ákveðin og veit hvert hún stefnir og kemur mjög vel fram. Mér líst mjög vel á þessa geðþekku konu eftir að hafa hlustað á hana og eftir það sem ég hef lesið um hana og held að hún eigi eftir að gera vel.
Hver er Sarah Palin? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.8.2008 | 00:46
Aftur í skólann
Þá er Andrea mín byrjuð aftur í háskólanáminu. Lítið frí hjá henni í sumar þar sem hún var í vinnu og tók efnafræði samtímis til að létta á haust önninni. Hlóðum bílinn á laugardaginn og ókum af stað. Hún var nýbúin að krækja sér í leiðinda kvefpest og er eiginlega sárlasin. Við hjálpuðum henni að flytja dótið sitt inn og keyptum það sem á vantaði. Því miður fékk hún ekki herbergið sem hún hafði beðið um, þetta er mun minna heldur en það sem hún hafði í fyrra. Eins og flestar byggingarnar þarna í heimavistinni, er engin loftkæling og herbergin því oft eins og bakaraofnar. Tvær saman í herbergi og lítið pláss til að hreyfa sig. Rúmið er svokallað "loftbed" og er næstum upp undir loft og skrifborðið undir til að spara gólfpláss.
Mig sár verkjaði að þurfa að skilja hana eftir lasna í þessarri loftlausu hita kompu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.8.2008 | 23:13
Álag á tölvunni............
Bloggar | Breytt 26.8.2008 kl. 00:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Hitt og þetta
Nýjustu færslur
- 1.1.2012 Ísold Ylfa nýjasta stjarnan
- 7.9.2011 Gott að fá samkeppni
- 4.1.2011 Íslandsvinur?
- 9.12.2010 Ósvífnir óþokkar
- 11.11.2010 Ekki felldi ég karlinn minn....
- 25.10.2010 Jafnrétti ?
- 17.10.2010 Trú og glaðlyndi
- 14.10.2010 Dagurinn sem heimurinn stóð kyrr.
- 26.8.2010 áhrif lyfja?
- 17.8.2010 Og hvað ætlar Icelandair að gera?
- 6.8.2010 Af hverju NY?
- 5.8.2010 Bíll fyrir blinda
- 12.11.2009 Fólk þarf að gera sér grein fyrir hversu alvarlegt þetta er.
- 3.6.2009 haga sér eins og óþekk smábörn
- 19.4.2009 Ekki má gleyma skotárásinni í Va.Tech og nýlega var nemandi ...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar